Skessuhorn - 25.11.2015, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 201510
Ekki gefa bara eitthvað,
gefðu frekar hvað sem er.
Með gjafakorti Landsbankans er ekkert
mál að velja réttu jólagjöfina. Þú ákveður
upphæðina og sá sem þiggur velur gjöfina.
Þú færð gjafakortið í næsta útibúi.
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Eftirfarandi störf eru laus til umsóknar:
Starf forstöðumanns í búsetuþjónustu•
Starf byggingarfulltrúa•
Starf kennara í Grundaskóla•
Sótt er um rafrænt á heimasíðu
Akraneskaupstaðar á þar til gerðu eyðublaði
Nánari upplýsingar er að finna á www.akranes.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Laus störf hjá Akraneskaupstað
Norðurál á Grundartanga er eitt
103 fyrirtækja og stofnana sem hafa
skuldbundið sig til draga úr losun
gróðurhúsalofttegunda og minnka
myndun úrgangs, auk þess að mæla
árangur og miðla upplýsingum um
stöðu mála. Forsvarsmenn fyrir-
tækjanna undirrituðu yfirlýsinguna
í Höfða í Reykjavík en ætlunin er að
afhenda hana á loftslagsráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna í París sem
áætlað er að fram fari í desember.
Þar verður Rammasamningur Sam-
einuðu þjóðanna vegna loftslags-
breytinga (UNFCCC) samþykktur,
en markmið hans er að sporna við
hnattrænni hlýnun og draga úr los-
un gróðurhúsalofttegunda.
„Síðustu ár hefur Norðurál náð
góðum árangri við að draga úr los-
un gróðurhúsalofttegunda og erum
við í hópi þeirra álvera sem best
standa sig á heimsvísu. Undirskrift
yfirlýsingarinnar miðar að því að ná
enn frekari árangri sem samræmist
vel rekstraráætlun og markmiðum
fyrirtækisins,“ segir Ragnar Guð-
mundsson forstjóri Norðuráls.
mm
Mikil samstaða um aðgerðir í loftslagsmálum
Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðurðáls, ásamt Katli Berg Magnússyni,
framkvæmdastjóra Festu og Degi B. Eggertssyni borgarstjóra. Það voru Reykja-
víkurborg og Festa sem efndu til samstarfsins og markar undirskriftin formlegt
upphaf verkefnisins.
Snæfellsbær vann stórsigur á Rangár-
þingi eystra í Útsvari Ríkissjónvarps-
ins síðastliðið föstudagskvöld. Viður-
eignin endaði 103-32 og setti Snæ-
fellsbær um leið stigamet í keppninni
í vetur. Lið Snæfellsbæjar skipa þeir
Sigfús Almarsson, Örvar Marteins-
son og Guðmundur Reynir Gunn-
arsson. Var þetta ekki fyrsta stiga-
met þess síðastnefnda í ár því hann
bar fyrirliðaband Víkings Ólafsvíkur
í sumar þegar liðið setti stigamet í 1.
deild karla í knattspyrnu.
Snæfellsbær tók forystuna í þætt-
inum strax í upphafi og lét hana
aldrei af hendi. Piltarnir fóru mik-
inn í stóru spurningunum í lok þátt-
ar en þar áður höfðu þeir m.a. ítrek-
að „stolið“ svarrétti af andstæðing-
um sínum. Í stóru spurningunum
tóku þeir hvorki meira né minna en
40 stig og rufu hundrað stiga múr-
inn í lokaspurningunni. Þar með
hafa bæði liðin af vestanverðu land-
inu tryggt sér þátttökurétt í annarri
umferð keppninnar; en auk Snæfells-
bæjar er Reykhólahreppur stigahæsta
taplið vetrarins og heldur því áfram.
kgk
Snæfellsbær sigraði og sló um leið stigamet
Útsvarslið Snæfellsbæjar rauf hundrað stiga múrinn í viðureigninni gegn Rangárþingi
eystra. F.v. Örvar Marteinsson, Sigfús Almarsson og Guðmundur Reynir Gunnarsson.