Skessuhorn - 25.11.2015, Side 32
MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 201532
Logi Örn Axel Ingvarsson er ung-
ur og efnilegur fimleikamaður úr
Hvalfjarðarsveit. Hann byrjaði að
æfa fimleika sex ára gamall og hef-
ur æft allar götur síðan, fyrst með
Fimleikafélagi Akraness en nú æfir
hann hópfimleika með Stjörnunni í
Garðabæ. „Ég bjó líka í eitt ár í Sví-
þjóð og þar prófaði ég áhaldafim-
leika í fyrsta sinn en mér finnst hóp-
fimleikarnir skemmtilegri. Ég fór
að hafa meira vit á þessu eftir árið
úti og setti mig betur inn í þetta,“
segir Logi í samtali við Skessuhorn.
Hann segir aðstöðuleysi á Akranesi
hafa orðið til þess að hann færði sig
í Stjörnuna. „Aðstaðan uppi á Skaga
leyfði mér ekki að halda áfram. Við
fórum þrír strákar og tvær stelpur,
því við gátum ekki bætt okkur meira
hjá FIMA,“ segir hann. „Það eru til
ágætis áhöld þar en það vantar til
dæmis almennilega lendingardýnu.
FIMA gerði heimagerða gryfju núna
í ÞÞÞ húsinu en það gerir ekkert til
lengri tíma litið, þegar félagið þarf
að færa sig úr því húsnæði,“ heldur
Logi áfram og vill meina að Fim-
leikafélag Akraness þurfi nauðsyn-
lega að fá betra húsnæði. Logi seg-
ir aðstöðuna hjá Stjörnunni vera til
fyrirmyndar og að félagið búi yfir
einum af bestu sölum landsins.
Tekur sex tíma
að fara á æfingar
Logi Örn æfir fjórum sinnum í
viku í Garðabæ, í þrjá tíma í senn.
Það tekur því dágóðan tíma úr vik-
unni að komast til og frá æfingum.
„Æfingatíminn er þetta langur af
því að það fer klukkutími í upphit-
un og teygjur, við græðum lítið á
styttri tíma. Ég fer bara á milli með
strætó og þetta tekur um sex klukku-
tíma í heildina,“ segir hann og tel-
ur það lítið mál að verja svo mikl-
um tíma í fimleikana, enda er áhug-
inn brennandi og æfingarnar hafa
skilað sér. Logi Örn var valinn í ís-
lenska fimleikalandsliðið sem keppti
á Evrópumeistaramóti í Laugardals-
höll í fyrra og keppti nýverið fyrir
hönd Stjörnunnar á Norðurlanda-
móti. „Ég er núna á þeim aldri að ég
get bæði keppt með senior og junior
liðum. Á Norðurlandamótinu núna
keppti ég með senior liði en á næsta
ári keppi ég með junior liðinu,“ seg-
ir hann ánægður með að stórmót séu
haldin á hverju ári. „Það eru reynd-
ar stífari æfingar fyrir stórmótin og
ef maður kemst í landsliðið, þá fer
maður í æfingabúðir. Landsliðsúr-
tökurnar byrja tæpu ári fyrir mótin
og það er allt saman mjög vel skipu-
lagt,“ segir hann.
Útivist í uppáhaldi
Logi hefur nóg að gera fyrir utan fim-
leikana. Hann er nemandi á náttúru-
fræðibraut í Fjölbrautaskóla Vestur-
lands, stundar nám í Tónlistarskól-
anum á Akranesi þar sem hann spil-
ar á gítar og er meðlimur í Björgun-
arfélagi Akraness. Framtíðardraum-
urinn er að komast í hátækniverk-
fræði. „Mér finnst fínt í FVA. Það er
samt mikil breyting frá Heiðarskóla,
þar sem ekki eru nema 90 nemend-
ur. Þannig að það var pínu kalt í
byrjun en það er að breytast,“ seg-
ir hann og brosir. Hann þarf því að
skipuleggja tímann sinn vel til að allt
gangi upp. „Ég læri á þriðjudögum
og fimmtudögum, þegar engar fim-
leikaæfingar eru. Svo lauk ég tveim-
ur áföngum í ensku á meðan ég var í
10. bekk og er því með fjórar góðar
eyður í stundatöflunni, sem ég læri
alltaf í.“ Þrátt fyrir miklar annir eru
áhugamál Loga mörg. Hann hefur
verið í hestamennsku frá fæðingu og
undanfarin ár hefur hann verið dug-
legur að taka ljósmyndir. „Útivist
er samt það besta sem ég geri. Sér-
staklega að fara á skíði,“ segir hann
og ljómar. Hann segist eyða mest
af peningum sínum í útivistarbún-
að. „Ég keypti mér til dæmis fjalla-
skíði nýlega. Á þeim er hægt að losa
um festingarnar og þá eru þau eins
og gönguskíði, þá er hægt að ganga
hvert sem er og renna sér svo niður.
Best er að finna sér púðursnjó, það
er æðislegt.“ Logi fer einnig mikið
í fjallgöngur og tjaldferðir með vin-
um og foreldrum sínum. „Ég tek
helst myndir úti í náttúrunni, finnst
skemmtilegast að mynda þar. Það er
líka gaman að taka upp myndbönd
og klippa þau. Til dæmis ætla ég að
reyna að búa til skíðamyndband í
vetur,“ segir Logi Örn Ingvarsson.
grþ
Í fimleikum þarf
að skipuleggja
tímann vel
Logi Örn Axel Ingvarsson er liðtækur fimleikamaður úr Hvalfjarðarsveit.
Smiðjuvellir 32 - 300 Akranes - Sími 431 5090 - Fax 431 5091 - www.apvest.is
Bráðum koma blessuð jólin...
Mikið úrval af allskyns gjafavöru
Apótek Vesturlands verður með fjölbreytt
úrval af allskyns gjafavöru fyrir jólin.
Mikið úrval af bað- og ilmvöru auk ýmissa
annarra góðra kosta.
Komdu og kannaðu úrvalið.
Afgreiðslu
tími:
Virka da
ga
9–18
Laugar
daga
10–14
Sunnud
aga
12–14