Skessuhorn - 25.11.2015, Side 34
MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 201534
Grundfirðingurinn Ingólfur Örn
Kristjánsson hefur slegið í gegn hjá
norska þriðju deildar knattspyrnu-
liðinu Volda IT í Noregi. Ingólfur
sem áður hafði spilað með Víkingi
Ólafsvík, Grundarfirði og Völsungi
hóf ferilinn sem markmaður en er
núna betur þekktur fyrir að hrella
markverði. Sumarið 2011 spilaði
Ingólfur í markinu hjá Grundar-
firði og átti stóran þátt í að liðið fór
alla leið í úrslitakeppnina í 3. deild
það árið. En sumarið eftir langaði
hann að breyta til og spila í fram-
línunni og gekk það glimrandi vel
að hann skoraði 17 mörk í tíu leikj-
um með Grundarfirði. Eftir það var
ekki aftur snúið og hefur hann spil-
að sem framherji síðan.
En hvað kom til að Ingólfur
ákvað að reyna fyrir sér í Noregi?
„Ja, það var þannig að Pétur Heiðar
Kristjánsson sem var að þjálfa Dal-
vík/Reyni í fyrra hefur mikil tengsl
út og hann kom mér í samband
við umboðsmann í Noregi,“ seg-
ir Ingólfur en hann var búsettur á
Akureyri á þessum tíma og var að
mæta á nokkrar æfingar hjá Dalvík/
Reyni og Þór. „Haustið 2014 kom
þessi umboðsmaður frá Noregi að
skoða leikmenn á Norðurlandi og
það var settur upp æfingaleikur fyr-
ir hann. Þá spilaði KA við saman-
safn nokkurra leikmanna af Norð-
ur- og Austurlandi og ég tók þátt í
þeim leik.“ Eitthvað hefur Ingólf-
ur heillað umboðsmanninn því að
hann var kominn með tilboð fljót-
lega eftir þetta. „Pétur ýtti á mig að
prófa þetta og ég sló til.“
Stóð við orð sín
Það fór svo þannig að Ingólfi var
boðið að mæta til ónefnds þriðju-
deildarliðs í Noregi í febrúar á
þessu ári en það fór ekki alveg eins
og áætlanir stóðu til. „Nei, því að
það lið hætti við á síðustu stundu.
Ég var búinn að pakka ofaní tösku
og nánast á leiðinni út á flugvöll
þegar ég fékk símtal um að þeir
hefðu hætt við. Umboðsmaðurinn
sagði mér að örvænta ekki því hann
ætlaði að finna annað lið fyrir mig,“
segir Ingólfur. Umboðsmaðurinn
stóð við orð sín því skömmu síðar
hringir hann með annað tilboð. „Þá
var mér boðið til Volda IT á reynslu
og ég fer til þeirra í viku heimsókn
í mars. Eitthvað hefur þeim litist
vel á mig því að ég var alfarinn út
20. mars en ég þurfti að taka þessa
ákvörðun nánast samdægurs þar
sem tímabilið var að byrja hjá þeim.
Ég fékk vinnu hjá þeim við að þjálfa
börn í knattspyrnu,“ segir Ingólfur
en það búa á milli 9 og 10 þúsund
manns í Volda en þetta er mikill há-
skólabær sem er í eins og hálfs tíma
akstursfjarlægð frá Álasundi.
Brynjar bættist í hópinn
Indíana Þórsteinsdóttir unnusta
Ingólfs kom svo út til hans í maí og
una þau hag sínum vel ytra. Tíma-
bilið í Noregi hófst svo í bikarn-
um 28. mars og svo byrjaði deild-
in 12. apríl. „Ég var smá stund
að koma mér inn í þetta og skor-
aði fyrsta markið mitt í þriðju um-
ferð en eftir það komu þau í röð-
um,“ segir Ingólfur og brosir. Það
eru spilaðir 26 leikir í þessari deild
og spilaði Ingólfur 24 af þeim en
hann var tvo leiki í banni. Í þess-
um 24 leikjum skoraði hann 17
mörk. „Já, þetta gekk mjög vel hjá
mér þó að liðið hafi verið í svolitlu
basli mestallt tímabilið.“ En Volda
IT voru nýliðar í deildinni og voru
í botnbaráttu allan tímann. Annar
Grundfirðingur kom svo til þeirra
um mitt tímabil en Brynjar Krist-
mundsson kom frá Víkingi Ólafs-
vík og vænkaðist hagur liðsins tals-
vert við það. „Það var fyrir mína
tilstilli að Brynjar kom til okkar og
náðum við vel saman“ segir Ing-
ólfur. Brynjar spilaði tíu leiki og
endaði liðið í sjöunda sæti í 14 liða
deild með tíu sigra, átta jafntefli og
átta töp sem verður að teljast við-
unandi árangur. Ingólfur meiddist
á hné um mitt tímabil og æfði lítið
eftir það og spilaði þjáður alla leik-
ina. Hann fór svo í aðgerð á hné
eftir tímabilið þar sem hann var
með skaddaðan liðþófa en hann
ætti að vera klár fyrir næsta tíma-
bil.
Leikmaður ársins
Ingólfur segist hafa fundið fyr-
ir áhuga annarra liða í Noregi en
ekkert sem hann vill gefa upp. „Það
verður bara að koma í ljós. Ég fer
út 8. janúar en hvort það verður til
Volda eða eitthvað annað kemur
í ljós.“ Mörg liðin í þriðju deild-
inni eru b-lið sterkari liða. Til að
mynda spilaði liðið við Sogndal-2
sem er með stóran heimavöll og
kjöraðstæður. „Já, það var oftast
skemmtilegast að spila útileikina
en mörg þessara liða eru með frá-
bæra velli og topp aðstæður. All-
ir eru þeir samt með gervigrasvelli
af bestu gerð,“ segir Ingólfur en
hann hefur ekki spilað á grasi síð-
an hann var á Íslandi. Ingólfur var
svo valinn leikmaður ársins ásamt
því að vera markahæstur hjá liðinu
eftir tímabilið.
Það verður forvitnilegt að fylgj-
ast með hvernig Ingólfi reiðir af á
næsta tímabili en hann er staðráð-
inn í að vera áfram í Noregi með
unnustu sinni og raða inn mörk-
unum. tfk
Ingólfur Örn Kristjánsson spilar í norsku þriðju deildinni
Úr markinu í markaskorun
Nýbúinn að skora fyrir Volda IT.
Ingólfur Örn á æskuslóðum í Grundarfirði.
Gleð
ileg j
ól og
farsæ
lt ko
mand
i ár!
Jólag jöf hestamannsins!
Forsala miða á Landsmót 2016 stendur yr og lýkur henni 31. desember 2015.
Miði er frábær jólag jöf í pakka hestamannsins og þú færð falleg
g jafabréf hjá miðasölu www.tix.is send heim.
Kauptu jólag jöna núna á www.tix.is
www.landsmot.is