Skessuhorn - 25.11.2015, Page 40
MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 201540
Sló í gegn með fiski og
frönskum
Eins fram kom í upphafi þá stóð
Bjarki fyrir rekstri veitingastaðarins
Stykkisins í Stykkishólmi. Í sum-
ar sem leið vakti svo athygli þegar
hann og Jónína Riedel unnusta hans
lögðu í að fjárfesta í veitingavagni.
Þau fengu pláss fyrir hann við höfn-
ina og seldu úr honum djúpsteikt-
an fisk með frönskum kartföflum.
Þetta er veitingavagninn Finsens
fish & chips. Fiskréttir af þessu tagi
hafa um áratuga skeið verið afar
vinsæll skyndibiti víða í Evrópu. Í
stuttu máli sagt þá sló rekstur Fin-
sens fish & chips í gegn. Það gekk
afar vel þær sumarvikur sem vagn-
inn var opinn. Samhliða þessu rak
Bjarki pizzustaðinn Stykkið.
Að sögn Bjarka er heilmikið að
gerast í einstaklingsframtakinu í
ferðaþjónustunni í Stykkishólmi.
„Skemmtilegt er líka að þetta er
nánast allt ungt fólk sem stendur að
þessu. Ég held að þetta sé einsdæmi
að jafn margt ungt fólk í einu sveit-
arfélagi hafi byrjað atvinnurekst-
ur á svo skömmum tíma. Grósk-
an er mjög mikil. Þetta er magn-
að. Ég skal alveg viðurkenna að ég
hafði efasemdir um að þetta myndi
allt ganga til dæmis í sumar þegar
við opnuðum Finsens fish & chips-
vagninn. Á sama tíma opnaði veit-
ingastaðurinn Skúrinn, það er kaffi-
hús í bænum og ýmislegt annað. En
ég held að reynslan í sumar hafi sýnt
að það hafi verið feikinóg að gera
hjá öllum. Það var mikil umferð í
Stykkishólmi í sumar og er enn þó
svona langt sé liðið á haustið.“
Mannfrek atvinnugrein
Aðspurður segir Bjarki að það sem
helst hái veitinga- og ferðaþjónust-
unni í Stykkishólmi núna sé mann-
eklan. „Það er erfitt að finna fólk til
vinnu í Stykkishólmi. Manneklan er
mikil, sértaklega á sumrin en nú er
farið að vanta á veturna líka. Ferða-
þjónustunan er mjög mannfrek at-
vinnugrein, þar er fátt sem vélar
geta gert. Veitingastaðirnir eru farn-
ir að hafa opið miklu lengur en áður
fram á haustið og jafnvel allan vet-
urinn. Árið 2013 var fyrsti veturinn
þar sem við höfðum opið á Stykk-
inu. Þá vorum við eini veitingastað-
urinn sem hafði opið í nokkra mán-
uði yfir vetrartímann. Í fyrra vorum
við eini veitingastaðurinn sem hafði
opið í nóvember, desember og janú-
ar. Nú í vetur verður hins vegar opið
í Sjávarpakkhúsinu niður við höfn-
ina þar sem Sara systir mín ræður
ríkjum. Svo opnaði Skúrinn í sum-
ar eins og nefndi áðan. Hann verð-
ur opinn í vetur. Þar eru flottir hlut-
ir að gerast.“
Sjálf ætla þau Bjarki og Jónína að
opna Finsen-vagninn aftur í sum-
arbyrjun á næsta ári. „Ég ætla að
opna beint eftir lokapróf í vor. Það
verður þá í lok apríl. Þessi rekstur
hentar okkur vel. Hann passar með
skólanum og þetta er góður grunn-
ur fyrir það að gera eitthvað meira í
framtíðinni.“
Atvinnugrein sem er
að breyta miklu
Þrátt fyrir velgengnina segist Bjarki
ekki vita hvort hann leggi ferðaþjón-
stuna fyrir sig. „Ég veit ekki hvað
verður. Ég er ekki mikið í langtíma-
áætlunum. Ferðaþjónustan kraumar
alveg í mér en ég hef engar fastmót-
aðar hugmyndir um hvað ég ætla að
verða þegar ég verð stór,“ segir Bjarki
Hjörleifsson og brosir. „Mikilvægast
er fyrst og fremst að vera glaður og
sáttur með það sem ég er að gera.
Ég vil geta vandað mig. En ég sé
mikla framtíð í ferðaþjónustu og er
mjög hlynntur henni. Það ætti að
gera atvinnugreininni miklu hærra
undir höfði en nú er. Hún er að
skaffa gífurlegar tekjur fyrir ótrú-
lega margt fólk. Ferðaþjónustan er
að gerbreyta mannlífi í Stykkishólmi
og auðga það á jákvæðan hátt. Fyrir
tíu árum labbaði maður um og þekkti
alla. Nú fer maður um og heyrir tíu
tungumál töluð á röltinu og er alltaf
að sjá ný andlit.“
Bjarki segir að þessari grósku fylgi
mikil framtakssemi. „Við erum nú
með átak um að kynna Stykkishólm
meira sem vetraráfangastað en ver-
ið hefur. Það eru ýmsar hugmyndir á
lofti. Við viljum stefna að því að það
verði frítt þráðlaust internet í öllum
bænum. Það yrði til mikilla þæginda
fyrir ferðafólk. Þetta er þó ekki orðið
að veruleika en þetta er í vinnslu. Það
er búið að opna heimasíðuna www.
visitstykkisholmur.is og þar eru all-
ar helstu upplýsingar sem fólk þarf.
Síðan er hugsuð sem leiðarvísir í
gegnum bæinn og er mjög stílhrein
og flott. Ég er bjartsýnn á framtíð-
ina,“ segir Bjarki Hjörleifsson.
mþh
„Ég fór suður í fyrra en Jónína Ridel
kærastan mín var þá við nám í París.
Þá var ég nýbúinn að kaupa vin minn
út úr pizzastaðnum Stykkinu og átti
hann því einn og rak hann. En mig
langaði til mennta mig og því fór ég
suður í Háskóla Íslands. Þar er ég nú
á öðru ári í námi til BA prófs í stjórn-
málafræði.“ Við hittum Bjarka Hjör-
leifsson, athafna- og leikskáld frá
Stykkishólmi á kaffihúsi í miðborg
Reykjavíkur. Hann kemur beint úr
þriggja tíma prófi í stjórnmálasál-
fræði og er greinilega feginn að vera
laus úr því. Hann er samt ekki óvanur
því að hafa nóg að sýsla. Bjarki hefur
vakið athygli undanfarin misseri fyr-
ir dugnað og útsjónarsemi í veitinga-
mennsku í Stykkishólmi. Hann er þó
ekki viss um hvort hann leggi það
fyrir sig.
Lærdómsríkur tími í
Ameríku
Bjarki segist fæddur og uppalinn í
Hólminum. „Ég bjó þar samfellt
þar til ég varð 17 ára. Þá fór ég sem
skiptinemi til Oregon-fylkis í Banda-
ríkjunum og var þar í eitt ár. Það var
fjör. Fyrst bjó ég hjá kátum halelúja-
hoppurum þar sem ekki var allt sem
sýndist. Það var fólk sem gaf sig út
fyrir að vera mjög trúað innan kristni
en þegar nánar var skoðað mátti al-
veg deila um hversu djúpt það risti.
Kannski voru þau trúuð fyrir sitt
leyti en kristin gildi eins og náunga-
kærleikur voru ekki mjög í heiðri
höfð á því heimili. Það var alveg á
hreinu,“ segir Bjarki og glottir um
leið og hann fær sér kaffi.
Svo verður hann pínulítið hugsi
og dregur keiminn. „Ja, ég svo sem
kannski heldur ekki þægasti ungling-
ur í heimi. Á endanum var mér bók-
staflega hent út af heimilinu án þess
að ég hefði neinn annan stað til að
búa á eða neitt. Vandalaus í Amer-
íku. Það vildi hins vegar svo vel til
að ég hafði eignast mjög góða vini.
Ég flutti inn á fjölskyldu þeirra. Það
var mikið heillaspor og ég hef hald-
ið nánum tengslum við það fólk allt
fram á þennan dag. Ég fór nú síðast
í haust og heimsótti þau, hef farið til
þeirra í nokkur brúðkaup og við höf-
um mikið samband. Það er dýrmæt
vinátta. Eftir á að hyggja þá er gam-
an að hugsa til þess að ég fór þarna
út, hitti fólk sem ég átti enga samleið
með en kynntist svo öðru fólki sem
er miklir vinir mínir í dag. Þetta var
skemmtileg lífsreynsla.“
Leikritaskáld með mörg
járn í eldinum
Hann fór aftur heim til Íslands og
í Stykkishólm. Þar hófst tímabil at-
hafnamennsku og leiklistar. „Ég hef
skrifað leikrit. Í þeim hafa alltaf ver-
ið undirliggjandi pólitísk element
eða samfélagsgagnrýni. Það er samt
leyndarmál hvar ég stend í stjórn-
málum,“ brosir hann og bætir við að
sennilega hafi samfélagsáhuginn þó
leitt til þess að hann ákvað að leggja
stund á stjórnmálafræði.
„Síðasta leikritið sem ég skrif-
aði heitir „Lýðræði.“ Það gerist á
ruslahaugum og fjallar um lýðræði
á þessum ruslahaug en reyndar inn-
an gæsalappa. Þetta leikrit var sett
upp í Stykkishólmi árið 2014 af leik-
félaginu Grímni en svo vill til að ég
er formaður þess. Það er ég búinn að
vera í ein fimm eða sex ár. Leikfélag-
ið hefur sett upp tvö leikrit sem ég
hef skrifað. Fyrra leikritið hét „Við
dauðans dyr.“ Það var sýnt 2012. Sú
uppsetning var hið fullkoma egó-
tripp af minni hálfu. Ég var formaður
leikfélagsins, skrifaði leikritið, leik-
stýrði því og lék í því. Þetta var auð-
vitað hálf farsakennt og segir kannski
meira um mannekluna í leikfélaginu
heldur en allt annað. En þetta gekk
alveg upp. Ég hef þó ekki leikið síð-
an en haldið áfram að skrifa. Núna er
penni minn hins vegar beygður af því
að skrifa ritgerðir í háskólanum.“
Bjarki Hjörleifsson leik- og athafnaskáld og stjórnmálafræðinemi frá Stykkishólmi:
„Ég vil geta vandað mig“
Bjarki og Jóhanna Riedel á góðri stundu í Finsens fish & chips-vagninum góða í
Stykkishólmi þegar hann var nýopnaður í sumar.
Góðgætið sem sló í gegn. Fiskur og franskar. Í baksýn sést Finsens-vagninn. Bæði heimamenn og ferðalangar keyptur sé fisk og franskar í stríðum straumum í
Stykkishólmi í sumar.
Rjómabúið Erpsstaðir framleiðir ýmiskonar ljúfmeti
sem hentar í eftirrétti eða bara sem ábætir milli mála
Ljúffengur rjómaís margar bragðtegundir • Skyrkonfekt og gómsætir ostar
Einnig hið rómaða gamaldags skyr sem hentar vel í ostakökur og deserta
Njótið jólanna
Gleðileg Jól
Gerum okkur
glaðan dag um jólin
Rjómabúið Erpsstöðum • erpsstaðir.is • rjomabu@simnet.is • 868 0357
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
3