Skessuhorn - 25.11.2015, Side 42
MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 201542
Á hrossaræktarbúinu Skáney í
Reykholtsdal hefur átt sér stað
mikil uppbygging undanfarin ár.
Blaðamaður kíkti í heimsókn til
Hauks Bjarnasonar og Randi Hola-
ker en þau hafa verið að bjóða upp
á reiðnámskeið og þjálfun á hross-
um í nýrri reiðskemmu sem byggð
hefur verið á bænum. Haukur hef-
ur alltaf búið á Skáney og þar ólst
hann upp við hestamennskuna. Það
kom því væntanlega engum á óvart
þegar hann fór í Hólaskóla og tók
stefnuna á framtíð sem tamninga-
maður og reiðkennari. Randi kem-
ur frá Noregi og er einnig útskrif-
uð tamningamaður og reiðkennari
frá Háskólanum á Hólum, þar sem
þau kynntust. Hún byrjaði sjö ára
gömul í reiðskóla og eignaðist sinn
fyrsta hest 13 ára gömul og eignast
svo sinn fyrsta íslenska hest tveim-
ur árum seinna.
Kom öllum á óvart og
flutti til Íslands
Randi lærði hjúkrunarfræði og
starfaði sem hjúkrunarfræðingur
í tvö og hálft ár. Áhuginn á hest-
um var alltaf til staðar og hún átti
enn íslenskan hest. „Ég fór á nám-
skeið í Noregi hjá Sigrúnu Sigurð-
ardóttur. Ég vann svo í framhald-
inu hjá Sigrúnu í reiðskólanum tvö
sumur í Reykjavík og hestaveikin
jókst bara. Ég ákvað að fara aftur
til Íslands veturinn 2005 og kynn-
ast íslenska hestinum enn betur.
Ferðin átti að taka hálft ár en hér
er ég enn, tíu árum seinna,” seg-
ir Randi og hlær. „ Haustið 2005
fór ég í Háskólann á Hólum og
útskrifaðist þaðan sem reiðkenn-
ari árið 2008,” segir Randi. „Með
námi mínu á Hólum starfaði ég
m.a. hjá Antoni Páli Níelssyni og
Ingu Maríu Jónínudóttur í Syðra
Holti í Svarfaðardal, og þeim
Mette Mannseth og Gísla Gísla-
syni á Þúfum í Skagafirði.”
Allir sem geta setið
á hesti geta komið á
námskeið á Skáney
Randi og Haukur kynntust á Hól-
um og fluttu svo saman á Skáney
eftir að Haukur útskrifaðist árið
2009. Þau eru bæði búin að ljúka
tamninga- og reiðkennaranámi og
vinna nú saman á Skáney. Þar eru
þau að rækta hross, temja og með
reiðkennslu fyrir alla aldursflokka.
„Við höfum verið að kenna alveg
niður í fjögurra ára gömlum börn-
um og alveg upp úr. Það geta allir
komið til okkar í reiðkennslu því
hér erum við með frábæra aðstöðu
og góð hross,” segir Haukur. „Það
skiptir okkur miklu máli að hafa
hesta sem eru með gott geðslag og
við teljum okkur hafa náð því. Hér
eru hestar sem allir geta notað og
svo erum við einnig með hesta fyrir
vanari knapa. Við getum ekki farið
að bjóða fólki upp á annað en góð
hross þegar það kemur til okkar,
hvort sem það er að fá lánuð hross
í reiðkennslu eða að kaupa af okk-
ur hross sem við erum að rækta,”
bætir Randi við.
Kenna unglingum í
Borgarfirði
Reiðkennsla hefur farið vaxandi,
enda er komin frábær kennsluað-
stöðu og hesthús fyrir allt að 50
hesta á Skáney. „Við erum búin að
vera með frumtamninganámskeið
í haust en það var þriggja helga
námskeið og tókst það mjög vel.
Hópar hafa tekið sig saman og sótt
kennslu hjá okkur. Einnig hefur
verið þónokkuð um að fólk panti
sér einkakennslu. Síðustu ár hefur
verið í boði fyrir nemendur í ung-
lingadeild á Kleppjárnsreykjum og
Varmalandi að taka það sem val að
koma í knapamerkin hér hjá okkur.
Þá erum við með bóklega og verk-
lega kennslu og krakkarnir taka eitt
knapamerki á ári. Þau börn sem
skrá sig í hestamannafélagið Faxa
eru styrkt frá félaginu, skólinn sér
um kostnað við bóklegu kennsl-
una og foreldrarnir borga svo fyrir
hluta af verklegri kennslu. Börnin
geta fengið hesta hér en geta líka
komið með eigin hesta ef þau kjósa
það frekar. Knapamerkjanámið er
frábært því þar lærir knapinn frá
grunnþáttum í merki 1 og upp í
merki 5 sem er töluvert krefjandi
og nákvæmt nám í reiðmennsku.
Það geta því allir tekið þetta val
sem vilja, það þarf hvorki að eiga
hest né vera vanur hestum,” segja
Haukur og Randi.
Geta bráðlega tekið á
móti hópum í gistingu
og reiðkennslu
Um framhaldið segja þau að nú
sé verið að vinna að gistiaðstöðu
í reiðskemmunni. Þar er gert ráð
fyrir fjórum herbergjum og svefn-
aðstöðu fyrir átta nemendur. Það
er þó ekki stefnan að fara út í
bændagistingu heldur er aðstaðan
ætluð þeim sem koma langt að til
að fara á námskeið hjá þeim. „Við
stefnum á að auka námskeiðahald.
Það er t.d. mikil eftirspurn erlend-
is frá fólki sem vill koma á nám-
skeið. Vonandi verður aðstað-
an klár sem fyrst en fólk er þeg-
ar farið að spyrja hvenær það get-
ur komið,” segir Randi og hlær.
Hún hefur mikið ferðast og ver-
ið að kenna fólki á Norðurlönd-
unum og nú hafa þessir nemendur
haft samband og vilja koma til Ís-
lands á námskeið til hennar. Það er
mjög algengt að áhugafólk um ís-
lenska hestinn erlendis sé að koma
til Íslands og upplifa að fá að ríða
út í þeirri fallegu náttúru sen hér
er. „Það er allt öðruvísi að ríða út
erlendis heldur en hér á Íslandi.
Það eru margir sem koma hér ár
eftir ár og fara í hestaferðir. Nú
er ákveðinn hópur sem vill fá eitt-
hvað aðeins öðruvísi og það er það
sem við stefnum á. Við ætlum ekki
að stunda hestaferðir heldur meira
að vera með reiðkennslu og svo
að fara í kvöldreiðtúra hér í sveit-
inni,” segir Randi.
Heiðarleiki í
viðskiptum
Á Skáney hefur verið stunduð
hrossarækt í áratugi. Hún bygg-
ir á ræktun sem Marinó og Vil-
borg, afi og amma Hauks, byrjuðu
á um 1940 þegar þau hófu búskap.
Foreldrar Hauks, þau Bjarni Mar-
inósson og Birna Hauksdóttir taka
svo við af þeim og svo hafa Hauk-
ur og Randi komið að hrossa-
ræktunni síðari árin. „Það eru að
koma svona 10-15 folöld á ári og
við erum með tíu fyrstu verðlauna
hryssur í folaldseign og eigum þrjá
fyrstu verðlauna stóðhesta. Þetta
er því alveg ágætis ræktun. Við
erum samt ekki að stefna á að hafa
sem flest hross, frekar að fækka ef
eitthvað er. Gæðin skipta mestu
máli og þá ekki síst ganglag og
geðslag hestsins,” segir Haukur.
„Við leggjum mikið uppúr heiðar-
leika í viðskiptum og að huga vel
að þeirri þjónustu sem við bjóðum
upp á. Í hrossarækt eru upphæð-
irnar háar svo það getur skemmt
rosalega mikið að passa ekki upp á
heiðarleikann. Ef maður selur hest
sem er alveg ömurlegur spyrst það
hratt út og kemur í bakið á manni.
Það borgar sig því upp á frekari
viðskipti og orðspor að vanda sig
í viðskiptum. Það spyrst líka út
ef maður hefur látið frá sér góða
hesta svo heiðarleiki og metnaður
á alltaf eftir að skila sér.”
Stefna á meiri
reiðkennslu
Þau Randi og Haukur eru spurð
hvort þau ætli að halda áfram í
tamningum nú þegar reiðkennslan
er þetta vinsæl og aðstaðan orðin
svona góð. „Við erum með fasta-
kúnna sem við viljum halda áfram
að eiga í viðskiptum við, svo við
hættum ekki að temja fyrir aðra.
Reiðkennslan heldur vonandi
áfram að aukast. Við erum bara
að prófa okkur áfram, sjá hvað er
skemmtilegt og hvað gengur vel
og svo kemur hitt bara í ljós. Við
erum bara að þrengja þetta nið-
ur og finna hvað við viljum gera í
framhaldinu. Þetta er hörku vinna
og við erum í raun alltaf í vinnunni.
Það er líka rosalega skemmtilegt
að hafa þennan möguleika, að geta
unnið við áhugamálið og elskað
vinnuna sína. Það er þó líka mikil-
vægt að passa sig að taka frí stund-
um. Einnig þurfum við að gæta
að því að staðna ekki í því sem við
erum að gera. Þess vegna fáum við
oft gestakennara og reynum alltaf
að vera að þróa okkar aðferðir og
bæta okkur í því sem við erum að
gera sem kennarar. Einnig förum
við á námskeið annað af og til. Það
er sama hversu klár maður held-
ur að maður sé, maður lærir alltaf
eitthvað nýtt af öðrum,” segja þau
Haukur og Randi að lokum.
arg
Næg eftirspurn eftir reiðkennslu í Borgarfirðinum
Rætt við Randi Holaker og Hauk Bjarnason á Skáney
U n
Gott í vetur
sími 868-7204 / www.myranaut.is / myranaut@myranaut.is
Lágmarkspöntun af skrokk. Inniheldur steikur, hakk og gúllas.1/8
Haukur og Randi á útreiðum. Ljósm. Gabrielle Boiselle.
Börn á reiðnámskeiði hjá Hauki og Randi á Skáney. Ljósm. Josefine Morell.