Skessuhorn - 25.11.2015, Side 46
MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 201546
Nú þegar aðventan gengur í garð
fara jólalögin að óma á flestum út-
varpsrásum og jólaljósin að lýsa
upp skammdegið. Þessi tími er þó
ekki einungis jólalög og tóm gleði
hjá öllum, þrátt fyrir að viðkom-
andi geti verið mikið jólabarn. Jú,
nemendur um allt land sitja sveitt-
ir heima, þamba Red Bull og kaffi,
sofa takmarkað og drekkja sér í
bókum. Þetta er tími jólaprófa hjá
ansi mörgum. Davíð Ingi Magn-
ússon hefur gengið í gegnum
nokkur jólaprófatímabil og þekk-
ir því þetta ástand. Hann vinnur
nú að því að hjálpa öðrum í þess-
um sporum. Davíð Ingi ólst upp á
Eystri-Leirárgörðum í Hvalfjarð-
arsveit. Hann kláraði stúdents-
próf og fór í Háskóla Íslands það-
an sem hann útskrifaðist í sumar
með meistarapróf í lögfræði.
Byrjaði með tveimur
námskeiðum
fyrir fimm árum
Haustið 2010 fékk vinur Dav-
íðs Inga, Atli Bjarnason, þá hug-
mynd að bjóða nemendum við
Háskóla Íslands upp á upprifjun-
arnámskeið fyrir lokapróf. Var það
upphafið af Nóbel námsbúðum.
Fyrsta árið voru haldin námskeið í
bókhaldi og stærðfræði fyrir nem-
endur í viðskiptafræði. Námskeið-
in urðu strax fullsetin svo Atli
vildi stækka þetta og bjóða upp á
fleiri námskeið. Hann hafði því
samband við Davíð Inga og Sig-
valda Fannar Jónsson og fékk þá
með sér í verkefnið. „Þessi nám-
skeið byggja á jafningjafræðslu.
Við finnum nemanda sem hef-
ur lokið ákveðnu námskeiði með
framúrskarandi árangri. Við þjálf-
um þann einstakling svo upp til
að halda tíu klukkustunda nám-
skeið fyrir núverandi nemendur
sem eru að fara í lokapróf. Þetta
hefur reynst mjög vel og á síðasta
skólaári vorum við með um 200
námskeið og yfir 5000 nemendur
á Íslandi. Það eru fleiri nemendur
en eru í öllum skólum landsins að
Háskóla Íslands undanskildum,”
segir Davíð Ingi.
Fyrir nemendur í 20
skólum á Íslandi
“Við höfum byggt þetta þannig
upp að við finnum einhvern sem
þekkir vel til í viðkomandi skóla.
Sá aðili aðstoðar okkur við að
finna nemendur sem hafa lokið
áföngum með góðum árangri og
eru til í að kenna undirbúnings-
námskeið fyrir núverandi nemend-
ur. Viðkomandi fær ávallt þjálfun
hjá okkur áður en hann eða hún
er með námskeið. Það hefur sýnt
sig að þetta virkar vel og við þríf-
umst á hrósi frá okkar nemendum.
Að meðaltali eru um 15-20 nem-
endur á hverju námskeiði en þó
hafa nemendur verið á bilinu einn
og alveg upp í 150,” segir Davíð
Ingi. Nóbel námsbúðir hafa ver-
ið að bjóða upp á námskeið fyrir
nemendur í um 20 skólum hér á
Íslandi og eru núna farnar að færa
sig út fyrir landsteinanna, alla leið
til Kaliforníu.
Fluttu til Kaliforníu
Í byrjun sumars fluttu strákarnir
þrír saman til Kaliforníu þar sem
þeir hafa unnið að því að koma upp
Nobel 101, Inc. Það hefur að sögn
Davíðs Inga verið mikil vinna að
koma sér af stað úti en þeir stefna
á að hafa 10.000 nemendur í náms-
búðum hjá sér strax núna á haus-
tönn. „Hugmyndin að fara með
Nóbel námsbúðir erlendis kom
fyrir ári síðan. Við strákarnir fór-
um í sumarbústað yfir helgi inni í
Hvalfirði þar sem lokaákvörðunin
var tekin auk þess sem næstu skref
voru skipulögð. Því næst voru flug-
in einfaldlega bókuð og svo í júní
lentum við á bandarískri grundu.
Þetta hefur því allt saman gerst á
frekar skömmum tíma. Við völd-
um Kaliforníu því það er fjölmenn-
asta ríkið í Bandaríkjunum og þar
eru stærstu skólarnir. Það eru um
þrjár og hálf milljón nemenda í
Kaliforníu. Við erum komnir með
tengiliði í um þrjátíu skólum úti.
Námsbúðirnar okkar eru ótengdar
skólunum sjálfum og það er ekkert
beint samstarf þar á milli. Við finn-
um einfaldlega hæfa tengiliði sem
svo sjá um þetta innan veggja skól-
anna,” segir Davíð Ingi.
Stefna á milljón
nemendur
Um framhaldið segir Davíð að
þeir ætli sér alls ekki að stoppa
við þarna. „Planið var alltaf að
hefja leik í Kaliforníu en svo ætl-
um við að fara sem víðast. Fyrst
munum við koma þessu í gang um
öll Bandaríkin. Eftir það munum
við byrja á öllum enskumælandi
löndum. Þar sem við erum nú
þegar búnir að þýða allt efni yfir
á ensku. Það hefur þó ekki ver-
ið tekin ákvörðun hvert við för-
um næst, utan Bandaríkjanna, en
við erum með spennandi staði í
huga og stefnum á að vera komnir
með milljón nemendur fyrir árið
2020,” segir Davíð Ingi brosandi
að lokum.
arg
Eru með námsbúðir á Íslandi og í Kaliforníu
Davíð Ingi Magnússon við Miklagljúfur. Davíð Ingi Magnússon og Sigvaldi Fannar Jónsson á Malibu.
Þegar aðventan gengur í garð og
koma jólanna nálgast fara marg-
ir að huga að jólabakstrinum. Þó
flest þekkjum við bakstur inni á
heimilum eru ekki allir sem þekkja
bakstur af annarri stærðargráðu. Í
Geirabakaríi í Borgarnesi er jóla-
baksturinn löngu hafinn og búið
að hengja upp jólaskraut. „Við
erum örugglega fyrst fyrirtækja
í Borgarnesi að bjóða aðvent-
una velkomna með skreytingum.
Ef keyrt er yfir brúnna blasir við
vegfarendum Aðventu-Borgarnes.
Grýlu- og Leppalúðakaffi er kom-
ið á boðstólana og smakk af öllum
smákökusortunum okkar,“ segja
þær Sigga Dóra og Erla í Geira-
bakaríi.
Að komast óvenju snemma í
jólaskap er að þeirra sögn með-
al ánægjulegra fríðinda sem fylgir
starfinu. „Það er alltaf gaman þeg-
ar við byrjum á smákökusortun-
um. Oft þarf að hafa hraðar hend-
ur við baksturinn og þá eru stund-
um allir í bakaríinu að vinna við
þær í einu. Það er mjög skemmti-
legt og þá eru allir glaðir,“ segir
Sigga Dóra og Erla tekur í sama
streng. Jólaandinn svífi yfir vötn-
um þegar jólabaksturinn hefst. „Þá
byrja strákarnir að syngja jólalög á
fullu og alltaf stemning um leið og
kryddkakan og enska jólakakan fer
í bakstur. Hún fyllir vitin jólailmi
og maður svífur um í nokkurs kon-
ar jólavímu,“ segir Erla og brosir
„og fólk kemur langan veg að til
að fá sér þá ensku. Einnig er jóla-
brauðið okkar alltaf mjög vinsælt.
Í fyrra sendum við til að mynda
fimm hundruð stykki norður á Ak-
ureyri,“ bætir Sigga Dóra við.
Piparkökuskreytingar
og upplestur á
fjölskyldustund
Geirabakarí hefur í gegnum tíð-
ina staðið fyrir ýmsum viðburðum
á aðventunni, til að mynda lauf-
abrauðsgerð og piparkökuskreyt-
ingum. Í ár verður enginn breyting
þar á því til stendur að stefna fólki í
Geirabakarí miðvikudaginn 9. des-
ember næstkomandi.
„Þá verður fjölskyldustund hjá
okkur í Geirabakaríi,“ segir Sigga
Dóra. „Við ætlum að bjóða upp á
ljúfa tónlist, skreyta saman pipar-
kökur og piparkökuhús. Svo verð-
ur upplestur, Steinar Berg ætlar að
koma og lesa upp úr nýju bókinni
sinni Trunt, trunt,“ segir Erla.
Sigga Dóra segir að fyrst hafi
verið boðað til fjölskyldustundar
með þessum hætti á aðventunni í
fyrra. „Þá hittumst við og skreytt-
um piparkökur. Fólk tók mjög vel
í það þannig að við ákváðum að
þróa þetta aðeins áfram með því að
bæta við upplestri og svona,“ seg-
ir hún og Erla bætir því við að það
sé aldrei að vita nema samdar verði
sögur sérstaklega til upplesturs á
fjölskyldustundinni. „Það yrði þá
í höndum Erlu, henni er ýmislegt
til lista lagt,“ segir Sigga Dóra um
kollega sinn og brosir.
„Fyrst og fremst verður þetta
notaleg stund sem við ætlum að
eiga hérna saman,“ segir Erla að
endingu
kgk
Jólaskapið kemur með jólabakstrinum í Geirabakaríi
Sigga Dóra og Erla í Geirabakaríi. Smákökusortirnar eiga sinn þátt í því að koma starfsfólkinu í jólaskapið.
Hróður jólabrauðanna úr Geirabakaríi hefur borist víða. Í fyrra voru t.a.m. fimm
hundruð stykki send norður til Akureyrar.
Vefjubrauðið í kjúklingavefjurnar er bakað á staðnum.