Skessuhorn - 25.11.2015, Blaðsíða 48
MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 201548
Jólin koma í Borgarbyggð
Sunnudaginn 29. nóvember verður kveikt á jólatré Borgarbyggðar við
hátíðlega athöfn á Kveldúlfsvelli (við ráðhúsið) í Borgarnesi kl. 17:00
Dagskrá:
Ávarp Guðveigar Önnu Eyglóardóttur formanns byggðarráðs
Sungin verða nokkur vel valin jólalög til að koma
Borgfirðingum í alvöru jólaskap
Grýla og Stekkjarstaur koma til byggða og færa börnunum ávaxtanammi
Nemendur níunda bekkjar Grunnskólans í Borgarnesi gefa gestum og
gangandi heitt kakó
Við hlökkum til að sjá ykkur í jólaskapi
Ef veður verður slæmt verður athöfninni frestað
Hægt er að leita upplýsinga á vefnum www.borgarbyggd.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Tvö pör í Stykkishólmi ákváðu
að opna veitingastaðinn Skúrinn í
sumar. Skessuhorn fjallaði um opn-
unina en við kíktum aftur í heim-
sókn til að sjá hvernig gengi eftir
fyrstu mánuðina. Það eru þau Arn-
þór Pálsson, Þóra Margrét Birgis-
dóttir, Sveinn Arnar Davíðsson og
Rósa Kristín Indriðadóttir sem eiga
og reka Skúrinn. Þeir Arnþór og
Sveinn eru Hólmarar í húð og hár
en Þóra kemur úr Mosfellssveit og
Rósa úr Borgarnesi. „Hugmynd-
in var að bjóða upp á fjölbreytt-
an mat fyrir alla. Við erum t.d. að
bjóða upp á heimilislegan mat í há-
deginu á veturna og er það eitthvað
sem Hólmarar eru duglegir að nýta
sér. Það er kannski lítið mál að reka
svona stað hér á sumrin því það er
svo mikið um ferðamenn. En til
þess að geta rekið staðinn allt árið
þurfum við á Hólmurum að halda.
Við höfum líka fengið frábærar við-
tökur hjá þeim,” segir Arnþór.
Sveinn Arnar átti
hugmyndina
Aðspurð hvernig það hafi kom-
ið til að þau ákváðu að opna sam-
an veitingastað hlæja þau öll. „Það
fyndna við þetta er að hugmyndin
kom frá Svenna,” segir Arnþór og
hlær. „Ég kunni ekkert að elda svo
Addi þurfti að kenna mér allt. Fyrst
kenndi hann mér bara það sem var
á matseðlinum og ég kunni ekki að
elda neitt annað. Núna eftir að við
fórum að bjóða upp á hádegismat
hef ég verið að læra aðeins að elda
nýja hluti. Addi er kokkur og var yf-
irkokkur á Fimm fiskum svo hann
kann þetta alveg. Þetta byrjaði svo
allt í fyrrahaust þegar ég fékk fisk
sem mig langaði að biðja Adda um
að elda fyrir mig. Við Rósa buðum
þeim þá í mat og ég sagðist hafa
magnaða viðskiptahugmynd. Okk-
ur fannst þetta báðum svo góð hug-
mynd og boltinn fór strax að rúlla,”
segir Sveinn og hlær. Þær Rósa og
Þóra segjast þó ekki hafa haft mikla
trú á þessari hugmynd til að byrja
með. „Við sátum bara báðar þarna
og hugsuðum að þetta væri nú ekki
að fara að gerast. En þeir héldu
bara áfram og við áttuðum okk-
ur fljótt á að þetta var alvara. Þeir
eyddu bara öllum stundum í þetta,”
segir Þóra.
Vilja hafa djúsí mat
Á matseðlinum er að finna alls-
konar mat en lagt er upp úr því að
hafa matinn “djúsí”. „Þú ert ekk-
ert að koma hingað ef þú ert í stífri
megrun, það er jú hægt að fá sal-
at. En við reynum að hafa matinn
frekar djúsí og sveittan. Við erum
alltaf að pæla í nýjum hlutum og
stefnum á að uppfæra matseðilinn
á næstunni. Svo erum við með hug-
myndir fyrir jólin, kannski bjóðum
við upp á jólaborgara,” segir Arn-
þór. Þeir Sveinn og Arnþór sjá að
mestu um að elda en Þóra og Rósa
Opnuðu veitingastað í Hólminum í sumar
Sveinn Arnar, Rósa Kristín sem heldur á Efemíu Rafneyju, Þóra Margrét og Arnþór.