Skessuhorn - 25.11.2015, Síða 52
MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 201552
Örn Arnarson hefur kennt við
Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit um
14 ára skeið. Þangað kom hann fyrst
með eiginkonu sinni 2001, þá ný-
útskrifaður sem íþróttakennari við
Kennaraháskóla Íslands í Reykjavík.
„Það lá bara við að flytja til Akraness
eða nágrennis að loknu náminu við
Kennaraháskólann. Sjálfur var ég bú-
inn að fá nóg af því að búa í Reykja-
vík á þessum fjórum námsárum sem
ég var þar. Mig hefur alltaf langað
til að búa úti á landi, ekki í borg-
inni. Þegar ég frétti af sveitaskólan-
um Heiðarskóla undir Skarðsheiði,
þá heillaði það mig mjög að starfa
hér. Ég hóf störf hérna 2001,“ seg-
ir hann. Við hittum Örn Arnarson
að máli einn föstudag nú í nóvem-
ber. Þar segir hann meðal annars frá
viðamikilli könnun sem hann gerði
nýlega um hvert leiðir fyrrum nem-
enda hans hafa legið.
Settust að á Akranesi
Örn útskýrir að hann eigi sínar ræt-
ur á landsbyggðinni. Þar vilji hann
helst vera. Því hafi hann fljótt orð-
ið mettur á höfuðborgarsvæðinu.
„Ég ólst upp austur á Eiðum. Faðir
minn var kennari við Alþýðuskólann
sem þá var, í ein 20 ár eða þar um
bil. Þarna var ég framundir tvítugt
og vissi alltaf að ég yrði kennari,“
hlær hann við. „Upp úr því fór ég
til náms við Kennaraháskólann. Þar
kynntist ég eiginkonu minni en hún
er frá Akranesi, borin þar og barn-
fædd. Hún heitir Harpa Sif Þráins-
dóttir og starfar sem aðstoðarversl-
unarstjóri í Vínbúðinni á Akranesi.“
Örn var sem sagt austan af landi og
Harpa Sif frá Akranesi. Það lá því
á margan hátt beint við hjá þeim
að horfa til Akraness eða svæðisins
sunnan Skarðsheiðar þegar kom að
búsetuvali og atvinnuleit að loknu
námi.
„Ég hafði búið á ýmsum stöð-
um víða um land, svo sem á Súða-
vík, Siglufirði og Fáskrúðsfirði. Mér
þótti Heiðarskóli spennandi vinnu-
staður þegar ég sótti hér um stöðu
íþróttakennara og fékk. Við fluttum
fyrst hingað að skólanum og bjugg-
um í kennarabústað á skólasvæðinu.
Þar vorum við í tvö ár. Hins vegar
varð ég fljótt mjög virkur í íþrótt-
um og félagsstarfi sem oftar en ekki
var úti á Akranesi. Ferðirnar á milli
Heiðarskóla og Akraness urðu því
alltof margar. Við fluttum því út á
Akranes 2003 og höfum búið þar
síðan. Ég kenni hins vegar hér áfram
og er nú umsjónarkennari unglinga-
deildar skólans.“
Á kafi í íþróttum og
félagsmálum
Það hentar Erni mjög vel að búa á
Akranesi og starfa við Heiðarskóla
enda ekki langt að fara milli heimil-
is og vinnu. Fjölskyldan hefur kom-
ið sér vel fyrir á Skaganum. „Við
eigum í dag tvær dætur. Sú eldri
er sex ára en hin verður þriggja ára
3. desember. Ég er mjög ánægður
með Akranes sem bæ til að ala börn
upp í. Leikskólarnir eru æðisleg-
ir og skólarnir góðir. Skagamenn
mega vera mjög stoltir af skólunum
sínum og íþróttastarfinu í bænum.
Það er úr nægu að velja í þeim efn-
um bæði fyrir börn og unglinga.“
Sjálfur er Örn enn mjög virkur í
íþróttum og félagsstarfi. „Fyrst eft-
ir að við fluttum norður fyrir Hval-
fjörðinn stundaði ég bæði knatt-
spyrnu og körfubolta. Ég spilaði
með félaginu Bruna sem var þriðju
deildar fótboltafélag á Akranesi. Það
má segja að þetta hafi verið svolít-
ið hörð útgáfa af Knattspyrnufélag-
inu Kára,“ rifjar Örn upp með brosi
á vör. „Ég var líka í körfuboltanum.
Seinna fór ég svo að dæma í knatt-
spyrnunni og sinnti þeirri dóm-
gæslu í ein fimm eða sex ár. Þá fór
ég aftur á fullu í körfuboltann. Ég
hætti svo að spila í körfunni fyrir
tæpum tveimur árum. Síðan hef ég
sinnt stjórnarstörfum í Körfuknatt-
leiksfélagi Akraness og er núna for-
maður þess.“
Stýrir
körfuboltafélaginu
Örn segir að það sé mjög gaman
að sinna körfuboltanum á Akra-
nesi. „Okkur er takast að byggja
upp aukna stemmingu fyrir þess-
ari íþróttagrein á Skaganum. Það
er að fjölga í yngri flokkunum og
stöðugt fleiri áhorfendur koma nú á
leikina. Frá og með síðasta keppn-
istímabili höfum við spilað aftur í
íþróttahúsinu á Vesturgötu. Það er
alvöru keppnishús með góðu plássi
fyrir áhorfendur. Áður vorum við
alltaf í íþróttahúsinu á Jaðarsbökk-
um sem hentar verr því þar er afar
lítil aðstaða fyrir fólk sem vill koma
og horfa á leikina. Á Vesturgötu
erum hins vegar kannski að fá um
400 manns á leiki sem er nokkuð
sem ekki hefði verið hægt á Jaðar-
sbökkum. Það er nýbúinn að vera
stórleikur gegn Skallagrími í Borg-
arnesi sem var mjög skemmtilegt
enda eins konar nágrannaslagur í
gangi þar,“ segir hann. Örn er sátt-
ur við stöðu mála. „Allt starfið í
kringum körfuboltann er krefjandi
en mjög skemmtilegt og gefandi.“
Vill líta til fleiri
þátta en prófa
Í spjalli okkar víkjum við aftur að
Heiðarskóla þar sem við sitjum
þegar viðtalið er tekið. Skólinn
heldur í vetur upp á hálfrar aldar
afmæli sitt. Örn hefur meðal ann-
ars af því tilefni gert könnun með-
al brottskráðra nemenda þar sem
niðurstöðurnar hafa vakið nokkra
athygli. Við fáum hann til að segja
aðeins frá þessari könnun. „Síð-
asta vor var gerð fagleg og fjárhags-
leg úttekt á Heiðarskóla. Þarna var
meðal annars lagt mat á skólastarf-
ið og gæði þess. Hún vakti mig til
umhugsunar. Stundum er talað um
að skólinn komi ekki nógu vel út úr
samræmdu prófunum þar sem hann
hefur ekki þótt skora nógu hátt á
landsvísu. Fólk gleymir því þá oft
að við erum iðulega með fáa nem-
endur í hverjum árgangi. Þessir ár-
gangar geta verið mjög ólíkir. Það
getur verið erfitt að sjá einhverja
heildarmynd og meta gæði skóla-
starfs út frá einstaka prófaárangri
þegar þeir eru fámennir. Á minni
tíð við skólann hafa árgangar ver-
ið að sveiflast úr fimm nemendum
upp í nítján. Ég tel að niðurstaða
úr samræmdum prófum sé ekki
mælikvarði sem hægt sé að nota á
allt skólastarfið. Í framhaldinu fór
ég að hugsa hvort besti mælikvarð-
inn á gæði skóla væri ekki að skoða
hreinlega hvernig nemendur vegn-
ar eftir að þau hafa lokið námi við
skólann,“ útskýrir hann.
Kannaði afdrif
nemenda sinna
Örn segir að honum hafi hreinlega
legið hugur á að vita hvort nem-
endur úr Heiðarskóla hefðu farið í
meira nám, hvort þau teldu sig vera
hamingjusöm og ánægð, hvort þau
væru sjálfstæð og ábyrg og yfir höf-
uð hvernig þeim hefði gengið í líf-
inu eftir að þau hættu í skólanum.
„Ég smalaði saman öllum fyrrver-
andi nemendum mínum sem ég gat
náð til gegnum Facebook og bjó til
hóp úr því. Þetta voru útskriftar-
hópar frá 2002 – 2015. Ég gerði
þetta alfarið á eigin vegum því mig
langaði sjálfum til að vita betur um
það hvernig þessum krökkum sem
ég hafði kennt hefði gengið á lífs-
brautinni. Þetta er orðinn um 150
nemenda hópur þar sem þau elstu
eru nú að nálgast þrítugsaldurinn
en þau yngstu 17 ára gömul. Þau
eru auðvitað í mjög ólíkum lífsað-
stæðum því á þessu aldursbili ger-
ist mikið á æviskeiði fólks. Sum
eru enn í námi á meðan önnur eru
komin á fullt í að stofna fjölskyldur
og jafvel búin að því.“
Hinir gömlu nemendur Arnar
féllust á að hann fengi að leggja fyr-
ir þau spurningalista sem 111 svör-
uðu. „Þetta var kannski ekkert há-
vísindalegt en niðurstöðurnar urðu
um margt fróðlegar og skemmti-
legar. Þarna finnst mér gæði skól-
ans birtast með fjölbreyttum hætti,
ekki bara gæði sjálfs námsins held-
ur líka uppeldisins sem hér fer
fram. Það er nefnilega líka ríkur
þáttur í góðu skólastarfi. Við meg-
um ekki bara einblína á einkunnir
heldur líka skoða hvernig einstak-
lingarnir geta staðið sig í lífsbarátt-
unni.“
Heiðarskólanemum
gengur almennt vel
Að sögn Arnar sýna niðurstöður að
heilt yfir njóti nemendur frá Heið-
arskóla töluverðrar velgengni. „Þau
eru sátt við lífið og hvernig þeim
hefur vegnað. Nemendur héðan
telja sig hamingjusamt fólk. Þeir
hafa dreifst í allar áttir og búa bæði
hér á landi og erlendis. Sumir fara
ekki í neitt viðbótarnám á meðan
aðrir hafa fetað námsbrautina, far-
ið í iðnnám eða tekið stúdentspróf
og farið í háskóla. Listinn yfir at-
vinnugreinar sem þau starfa við er
mjög fjölbreyttur,“ segir hann
„Skólar ættu að skoða mögu-
leikana á að gera svona kannan-
ir. Ég held að þeir sem njóta þjón-
ustu skólanna sem eru jú nemend-
ur, viti best af öllum hvað raun-
verulega kemur út úr skólastarf-
inu. Við kennarar og aðrir getum
setið á fundum og reynt að meta
hvað vel sé gert innan veggja skól-
ans. Við getum líka fengið utanað-
komandi matsaðila til þess og rýnt
í niðurstöður úr samræmdum próf-
um. Hins vegar er sjaldan spurt
hvað nemendunum sjálfum finn-
ist um það hvernig skólavistin hafi
nýst þeim í lífinu. En á endanum
er það þó hlutverk grunnskólans að
búa nemendur undir lífið í breið-
um skilningi. Við þurfum að skoða
betur hvernig við erum rækja ein-
mitt það hlutverk og svona kann-
anir gætu verið liður í því,“ segir
Örn Arnarson kennari við Heiðar-
skóla í Hvalfjarðarsveit.
mþh
Örn Arnarson umsjónarkennari við Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit:
„Grunnskólar búa nemendur undir lífið í breiðum skilningi“
Örn Arnarson umsjónarkennari við Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit.
Heiðarskóli í Hvalfjarðarsveit.
Örn Arnarson og Harpa Sif Þráinsdóttir með dæturnar tvær, þær Hrafhildi Helgu
sex ára og Maren Lind þriggja ára.