Skessuhorn


Skessuhorn - 25.11.2015, Side 55

Skessuhorn - 25.11.2015, Side 55
MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 2015 55 Áður en aðventan gengur í garð hafa margar verslanir landsins verið fyllt- ar af jólaskrauti. Margt af því er sam- kvæmt tískustraumum það árið en annað klassískt. Þó að flestir grafi upp helling af jólaskrauti úr geymslu í upphafi aðventu, eru sumir nýjunga- gjarnir þegar kemur að jólaskrauti og langar í eitthvað nýtt og öðruvísi fyr- ir hver jól, til að nota í bland við það gamla. Þó að verslanir séu stútfullar af stjörnum, jólasveinum og snjókörl- um í öllum stærðum og gerðum eru líklega til óteljandi möguleikar til að föndra nýtt jólaskraut. Ótal margt er hægt að gera og marga hluti er hægt að nýta, jafnvel hluti sem til eru á flestum heimilum. Hér má sjá nokkr- ar hugmyndir af sniðugu jólaskrauti. grþ Ótal möguleikar til að skreyta Heimatilbúin könglatré geta verið mjög falleg. Vínglös og önnur staup má nota á skemmtilegan hátt. Hvíttaðir könglar eru í tísku í ár. Þá má annað hvort hvítta með vatnsþynntri málningu eða með því að leggja þá í klór. Svo eru þeir notaðir í ýmsar skreytingar. Fjaðratré eru fallegt skraut. Fjaðrir í öllum litum fást í föndurbúðum. Glerkrukkur má nota á ótal vegu undir jólaskraut. Hér er búið að skreyta krukkurnar að innan og bora göt á lokið til að hægt sé að hengja þær upp. Það má líka nota fingrafar til að gera andlit á hreindýri, jólasveini eða snjókarli. Setjið handafar fjölskyldumeðlima á jólakúlu og málið svo snjókarla á. Persónulegt og skemmtilegt skraut. Leikfangabílar með jólatré á þakinu eru vinsælt skraut í ár. F E R Ð A L A G T I L F O R T Í Ð A R Í þessari fróðlegu og skemmtilegu bók er sagt frá utan- garðsfólki og förufólki á Vesturlandi og Vest fjörðum frá síðari hluta 18. aldar og fram á fyrstu ár 20. aldar. Hrífandi grasrótarsaga sem bregður nýju og óvæntu ljósi á Íslandssöguna. Bókin er ríkulega myndskreytt, þar á meðal með teikn - ingum Halldórs Baldurssonar.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.