Skessuhorn - 25.11.2015, Page 55
MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 2015 55
Áður en aðventan gengur í garð hafa
margar verslanir landsins verið fyllt-
ar af jólaskrauti. Margt af því er sam-
kvæmt tískustraumum það árið en
annað klassískt. Þó að flestir grafi
upp helling af jólaskrauti úr geymslu
í upphafi aðventu, eru sumir nýjunga-
gjarnir þegar kemur að jólaskrauti og
langar í eitthvað nýtt og öðruvísi fyr-
ir hver jól, til að nota í bland við það
gamla. Þó að verslanir séu stútfullar
af stjörnum, jólasveinum og snjókörl-
um í öllum stærðum og gerðum eru
líklega til óteljandi möguleikar til að
föndra nýtt jólaskraut. Ótal margt er
hægt að gera og marga hluti er hægt
að nýta, jafnvel hluti sem til eru á
flestum heimilum. Hér má sjá nokkr-
ar hugmyndir af sniðugu jólaskrauti.
grþ
Ótal möguleikar til að skreyta
Heimatilbúin könglatré geta verið
mjög falleg.
Vínglös og önnur staup má nota á
skemmtilegan hátt.
Hvíttaðir könglar eru í tísku í ár. Þá má
annað hvort hvítta með vatnsþynntri
málningu eða með því að leggja þá
í klór. Svo eru þeir notaðir í ýmsar
skreytingar.
Fjaðratré eru fallegt skraut. Fjaðrir í
öllum litum fást í föndurbúðum.
Glerkrukkur má nota á ótal vegu undir
jólaskraut. Hér er búið að skreyta
krukkurnar að innan og bora göt á
lokið til að hægt sé að hengja þær upp.
Það má líka nota fingrafar til að gera
andlit á hreindýri, jólasveini eða
snjókarli.
Setjið handafar fjölskyldumeðlima
á jólakúlu og málið svo snjókarla á.
Persónulegt og skemmtilegt skraut.
Leikfangabílar með jólatré á þakinu
eru vinsælt skraut í ár.
F E R Ð A L A G T I L F O R T Í Ð A R
Í þessari fróðlegu og skemmtilegu bók er sagt frá utan-
garðsfólki og förufólki á Vesturlandi og Vest fjörðum
frá síðari hluta 18. aldar og fram á fyrstu ár 20. aldar.
Hrífandi grasrótarsaga sem bregður nýju og óvæntu
ljósi á Íslandssöguna.
Bókin er ríkulega myndskreytt, þar á meðal með teikn -
ingum Halldórs Baldurssonar.