Skessuhorn - 25.11.2015, Qupperneq 65
MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 2015 65
Kaffi og léttar veitingar
Kökur og smáréttir í miklu úrvali
Opnunartími:
Sunnudaga - Fimmtudaga 11:00 - 19:00
Föstudaga og Laugardaga 11:00 - 21:00
Blómasetrið - Kaffi Kyrrð • Skúlagötu 13 • Borgarnesi • s: 437-1878
www.blomasetrid.is • wwww.kaffikyrrd.is • facebook.com/blomasetridkaffikyrrd
Kertaljós og kossar - Njótum aðventunnar
Blómasetrið - Kaffi Kyrrð
Friðar- og kærleiksjól
í Blómasetrinu
Blóm
Gjafavara
Skreytingar
og margt fleira
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Þegar kemur að aðventunni hef-
ur reynslan sýnt okkur að auknar
líkur séu á eldsvoðum vegna auk-
innar notkunar rafmagns og kerta-
ljósa. Einnig er því miður oft svo
að verulegur skortur er á eldvörn-
um á heimilum. Því munu félags-
menn Neista, félags slökkviliðs-
manna í Borgarbyggð, standa fyr-
ir eldvarnarátaki nú á aðventunni
þar sem félagsmenn munu hvetja
almenning til að efla eldvarnir á
heimilum í aðdraganda hátíðanna.
Kannanir hafa sýnt að á mörgum
heimilum eru eldvarnir ófullnægj-
andi sem leiðir að því að íbúar eru
berskjaldaðir fyrir eldsvoðum. Með
kynningu og sölu á viðeigandi bún-
aði munu félagsmenn Neista að-
stoða fólk við að koma sér upp eld-
varnarbúnaði sem hæfir húsnæði
þess. Neistamenn ætla að bjóða
upp á reykskynjara, slökkvitæki
og eldvarnarteppi á góðum kjör-
um en með kaupum á þessum bún-
aði mun viðkomandi styrkja félags-
starf Neista og rennur ágóðinn af
sölunni í sjóð til góðgerðarmála
og uppbyggingu félagsins. Dag-
ana 27. nóvember og 11. desember
munu félagsmenn kynna þetta eld-
varnarátak og taka á móti pöntun-
um fyrir eldvarnarbúnaðinum við
Bónus og Nettó frá kl. 15-18. Fyr-
ir þá sem ekki sjá sér fært að hitta
á okkur þessa daga þá er hægt að
senda inn fyrirspurnir og pantanir á
netfangið: neisti@borgarbyggd.is.
-Fréttatilkynning/ Ljósm. Haf-
steinn Sverrisson
Eldvarnarátak Neista -
félags slökkviliðsmanna
í Borgarbyggð
Fyrir ekki svo löngu máttu hundar
ekki vera í þéttbýli hér á landi og
talið að þeir ættu einungis heima í
sveitum þar sem þeir jafnframt gerðu
gagn. Í dag er öldin önnur og mjög
algengt að hundar séu í eigu fólks og
búi á heimilum þess og tegundaval-
ið er orðið býsna fjölbreyttar. Valdís
Vignisdóttir úr Borgarnesi er með
þrjá hunda af tegundum sem ekki
eru algengar. Annars vegar á hún
tvo hunda af teguninni papillon og
hins vegar einn af tegundinni afghan.
„Hundar eru mitt aðal áhugamál og
ég sinni þeim eiginlega allan daginn,”
segir Valdís. Mikil vinna við umhirðu
ætti ekki að koma á óvart því einn af
hundum Valdísar er stór og þar að
auki með feld sem nær næstum nið-
ur að jörðu. „Ég eyði mjög miklum
tíma í feldvinnu á afghaninum enda
þarf að baða hann vikulega og stund-
um oftar. Hann á það til að flækjast
mjög mikið. Ég get alveg verið í fjóra
til fimm tíma að baða hann, blása og
flækjugreiða. Hvað papillon hundana
varðar þá baða ég þá kannski á svona
tveggja vikna fresti,” bætir hún við.
Hefur alltaf verið mikill
dýravinur
Afghan hundarnir sem Valdís á eru af
mjóhundaætt en það eru svokallað-
ir hlaupahundar. Veiðieðlið er mjög
sterkt og hlaupa þeir þá bráðina
uppi, enda komast þeir um 50-60
kílómetra á klukkustund. Það gefur
því auga leið að þeir þurfa sitt pláss
og mikið rými allavega til að spretta
úr spori. „Afghaninn minn þarf miðl-
ungs mikla hreyfingu en ég reyni að
hreyfa alla hundana daglega. En við
erum svo heppin að hafa stóran af-
girtan garð sem þeir geta hlaupið
frjálsir í,” segir Valdís. Við spurðum
hana hvernig þetta áhugamál hefði
komið til? „Ég hef alltaf verið mikill
dýravinur og mig hafði lengi langað
til að eignast hund. Foreldrar mín-
ir samþykktu það svo og ég eignað-
ist fyrsta hundinn 2008, hann Draum
sem er af tegundinni papillon. Mig
var þó búið að langa í hund af Afgh-
an kyni í mörg ár þegar ég lét verða
af því og fékk hann Vestra. Ég sé svo
sannarlega ekki eftir því. Það er mín
uppáhalds tegund enda eru þessir
hundar bara svo fallegir, skemmtileg-
ir og aðeins öðruvísi,” segir Valdís.
Er mikið að sýna
Við spurðum að lokum af hverju
hundar, en ekki önnur dýr? „Þetta
eru svo æðisleg dýr, mínir bestu vin-
ir sem ég gæti ekki verið án. Ég er
mikið að sýna hundana og það hef-
ur gengið mjög vel. Afghaninn minn
er orðinn bæði íslenskur og alþjóð-
legur meistari. Alltaf á tveggja vikna
fresti tek ég hundana í sýningarþjálf-
un hér heima, svona til að halda þeim
við. Þeir verða alltaf jafn glaðir þegar
ég tek upp sýningartauminn.”
arg
„Þetta eru æðisleg dýr og mínir bestu vinir“
Valdís Vignisdóttir að sýna Vestra sem er af tegundinni Afghan.
Papillon hundarnir hennar Valdísar.