Skessuhorn - 25.11.2015, Page 74
MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 201574
Skagakonan Íris Ósk Einarsdóttir
rekur Dansstúdíó Írisar á Akranesi.
Dansstúdíóið hefur verið starfandi
í tæp fimm ár á Skaganum en var
lokað síðustu önn. Nú horfir til
breytinga hjá Írisi en stúdíóið verð-
ur opnað á nýjan leik eftir áramót-
in, í nýju og betra húsnæði. „Við
vorum ekki í nógu góðu húsnæði
áður. Við höfum því verið að vinna
í því að setja upp nýjan sal núna og
erum komin í framtíðarhúsnæði
við Smiðjuvelli 17, í sama húsi og
Bílás,“ segir Íris.
Fékk hæstu einkunn
Íris segist vera í draumastarfinu
sínu. Hún hefur sjálf dansað næst-
um alla ævina og er hvergi nærri
hætt, þó nú snúist dansinn að mestu
leyti um kennslu. „Ég byrjaði sjálf
að dansa þriggja ára gömul hjá Jó-
hönnu Árnadóttur frænku minni,
sem var með dansskóla hér á Akra-
nesi. Þar var ég til ellefu ára ald-
urs.“ Eftir að Íris hætti í samkvæm-
isdönsunum sneri hún sér að free-
style dansi og tók þátt í alls konar
keppnum. „Ég flutti svo til Reykja-
víkur þegar ég var 17 ára og þá fór
ég aftur að dansa samkvæmisdansa
og fara á allskyns námskeið. Ég
var tvítug þegar ég byrjaði í dans-
kennaranáminu,“ segir hún. Þó
að Írisi þyki allur dans skemmti-
legur er samkvæmisdansinn í sér-
stöku uppáhaldi. „Það er svo falleg
og skemmtileg íþrótt. Ég elska til
dæmis kjólana og allt við þetta. Ég
hefði sjálf viljað dansa samkvæm-
isdansa á mínum unglingsárum ef
það hefði verið hægt.“ Íris kenndi
dans í Reykjavík í fimm ár, áður
en hún fluttist aftur á Skagann. Þá
hafði hún lokið danskennaranám-
inu ásamt einu prófi af tveimur og
var komin með kennararéttindi. Íris
hefur nú lokið báðum prófunum og
stóðst þau bæði með glans. Prófin
þykja þung en Íris fékk hæstu ein-
kunn í dansi á báðum prófunum. „Í
prófunum þarf maður að dansa alla
dansana, bæði sem dama og herra.
Svo er maður dæmdur eftir dans-
getunni. Eftir það eru dregin spjöld
og á þeim eru ákveðin spor sem
maður þarf að lýsa bæði verklega og
munnlega. Maður þarf því að sýna
sporin vel og segja frá hverju smá-
atriði á meðan,“ útskýrir Íris.
Skagakrakkarnir
standa sig vel
Í Dansstúdíói Írisar eru kenndir
samkvæmisdansar og þeir æfðir sem
keppnisíþrótt. „Svo erum við með
barnadansa alveg niður í þriggja
ára og bjóðum upp á blandaða tíma
í Freestyle og HipHop frá tíu ára
aldri og upp úr. Svo höfum við ver-
ið með nokkrar tegundir af zumba;
fyrir börn, zumba fitness þar sem
er tekið á því og zumba gold, sem
eru rólegri tímar ætlaðir fyrir eldra
virkt fólk eða þá sem eru með bak-
eða hnéverki. Auk þess munum við
núna bjóða upp á hjónahópa,“ seg-
ir Íris. Hún segir dansarana á Skag-
anum hafa staðið sig mjög vel í
keppnum. „Ég byrjaði upphaflega
með tvö keppnispör en þeim hefur
fjölgað. Þau keppa í mjög stórum
hópum en hafa staðið sig rosalega
vel, hafa komist á verðlaunapalla og
gengið vel.“ Hún segir aðsóknina í
dansinn hafa verið mikla og því hafi
verið leitt að geta ekki boðið upp á
tíma síðustu önn. „Það eru marg-
ir sem vilja æfa dans, sérstaklega
stelpurnar. Ég væri alveg til í að sjá
fleiri stráka, bæði samkvæmisdansi
og í freestyle. En þeir strákar sem
hafa verið hjá okkur hafa verið al-
veg æðislega góðir.“
Verða með
gestakennara
Íris segist vera spennt að hefja
kennslu aftur, í nýju og flottu hús-
næði. „Ég er með rosalega flottar
stelpur sem aðstoða mig við kennsl-
una, svo sem Margréti Brands sem
er gamall keppandi í samkvæmis-
dönsum. Við verðum með flotta
kennara í kringum okkur í vetur
og fáum meðal annars gestakenn-
ara úr Reykjavík fyrir keppnispör-
in.“ Þá verða einnig fengnir fleiri
gestakennarar í stúdíóið, til dæm-
is í Freestyle dansinum. „Fyrstu
helgina í febrúar kemur Jun Rafa-
el, danshöfundur úr Swaggerific,
og verður með workshop hjá okk-
ur. Hann hefur komið áður og það
gekk mjög vel. Við ætlum að reyna
að halda því fast að fá hingað kenn-
ara fyrir krakkana.“ Kennslan í nýja
húsnæðinu hefst 11. janúar. Skrán-
ing í dansinn hefst 1. desember en
hægt verður að fylgjast með á Fa-
cebook undir Dansstúdíó Írisar.
„Þar setjum við inn allar upplýs-
ingar. En annars er hægt að skrá
sig í síma 868-6743 eða með því
að senda tölvupóst á irisdans@live.
com.“ grþ
Íris Ósk opnar dansstúdíó
á nýjum stað
Íris Ósk Einarsdóttir rekur Dansstúdíó Írisar á Akranesi.
Hin árlegi jólabasar Félags eldri
borgara í Snæfellsbæ var haldinn
í félagsheimilinu Klifi síðastlið-
inn sunnudag. Þar mátti sjá marga
fallega nytjamuni ásamt mörg-
um listmunum sem eldri borgara
hafa gert að undanförnu. Einnig
var boðið upp á lífræn egg, brauð,
smákökur, rjómavöfflur og heitt
kakó. Fjölmargir bæjarbúar mættu
á jólabasarinn og var mikið versl-
að. Sagðist Emanúel Ragnarsson
formaður eldri borgara vera mjög
ánægður með daginn.
af
Jólabasar eldri borgara
í Snæfellsbæ
Nóg var að gera við eitt af afgreiðsluborðum Félags eldri borgara. Þessar hressu dömur sáu um að baka vöfflur.
Kristófer Jónasson og Sævar Friðþjófsson skemmtu gestum með harmonikkuleik.