Skessuhorn - 25.11.2015, Qupperneq 86
MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 201586
„Er jólaundirbúningurinn
hafinn hjá þér?“
Spurning
vikunnar
(spurt í Borgarnesi)
Elfa Hauksdóttir:
„Já, ég er aðeins byrjuð að baka
og þrífa.“
Anna Ragnheiður Hallgríms-
dóttir:
„Nei, en hann hefst innan tíðar.“
Ingimundur Jósepsson:
„Nei, hann hefst eftir viku af
desember.“
Sveinbjörn Sigurðsson:
„Nei, ekki ennþá. Ég byrja að
undirbúa jólin í byrjun desemb-
er.“
Ingibjörg Daníelsdóttir:
„Já, ég er búin að pækla hangi-
kjötið og Steini minn er farinn
að velta því fyrir sér hvað á að
vera í matinn á aðfangadag, það
er hans framlag til jólaundir-
búningsins.“
Eftir góðan níu stiga sigur á Breiða-
bliki síðastliðinn miðvikudag héldu
leikmenn Skallagríms norður yfir
heiðar og mættu Þór Akureyri í 1.
deild kvenna í körfuknattleik. Liðin
fylgdust að í upphafi leiks en gest-
irnir úr Borgarnesi náðu heldur
undirtökunum í leiknum um miðj-
an fyrsta leikhluta og leiddu með
átta stigum í leikhléi, 29-37.
Leikmenn Þórs byrjuðu mun
betur í síðari hálfleik. Skallagríms-
konum voru lengi í gang og misstu
forystuna til heimamanna um miðja
þriðja leikhluta. Það varði hins veg-
ar ekki lengi, með góðum spretti
hrifsuðu Skallagrímskonur for-
skotið á nýjan leik, létu það aldrei
af hendi og unnu að lokum með
tveimur stigum, 56-58.
Erikka Banks var atkvæðamest í
liði Skallagríms með 18 stig og níu
fráköst. Næst henni kom Kristrún
Sigurjónsdóttir með tólf stig og
einnig níu fráköst.
Eftir sigurinn trónir Skalla-
grímsliðið ósigrað á toppi deildar-
innar með 14 stig úr fyrstu sjö leikj-
um tímabilsins. Næst mætir liðið
Njarðvík á útivelli laugardaginn 28.
nóvember.
kgk
Skallagrímskonur tróna
ósigraðar á toppnum
Kristrún Sigurjónsdóttir hefur leikið vel með Skallagrími í vetur.
Ljósm. Ómar Örn Ragnarsson.
Snæfell mætti Tindastóli í hörku-
leik í Domino‘s deild karla í körfu-
knattleik í Stykkishólmi síðastlið-
inn fimmtudag. Heimamenn byrj-
uðu betur, leiddu allan fyrsta fjórð-
unginn en gestirnir frá Sauðárkróki
fylgdu þeim eins og skugginn.
Leikmenn Tindastóls náðu að jafna
í upphafi annars leikhluta og fylgd-
ust að næstu mínúturnar áður en
Snæfellingar náðu forystunni aft-
ur og leiddu með níu stigum í leik-
hléi, 52-43.
Leikmenn Snæfells stóðu feti
framar gestunum í þriðja leikhluta
en í lokafjórðungnum sóttu Tinda-
stólsmenn ákaft og náðu að minnka
muninn í eitt stig þegar mínúta lifði
leiks. Nær komust þeir hins veg-
ar ekki og Snæfell hafði að lokum
þriggja stiga sigur, 94-91.
Sherrod Wright og Austin Bra-
cey voru fremstir meðal jafningja
í liði Snæfells með 24 stig hvor.
Næstur þeim kom Sigurður Þor-
valdsson með 17 stig og Stefán
Karel Torfason skoraði 13 stig og
tók sex fráköst.
Eftir leikinn situr Snæfell í sjö-
unda sæti deildarinnar með sex stig
eftir sjö leiki. Næst mætir liðið FSu
á Selfossi föstudaginn 27. nóvem-
ber.
kgk
Snæfell lagði Tindastól
í Hólminum
Stefán Karel Torfason keyrir að körfunni í leiknum gegn Tindastól. Ljósm. sá.
ÍA tók á móti Skallagrími í sann-
kölluðum Vesturlandsslag í 1. deild
karla í körfuknattleik síðastliðið
miðvikudagskvöld. Síðast mættust
þessi lið í mögnuðu einvígi í úr-
slitakeppni um laust sæti í úrvals-
deild vorið 2012. Þá höfðu Borg-
nesingar betur, komust upp í úr-
valsdeild en skildu Skagamenn
eftir. Vesturlandsslagsins er alltaf
beðið með talsverðri eftirvæntingu
meðal stuðningsmanna beggja liða
og fjölmenni lagði því leið sína á
pallana. Hálftíma fyrir leik voru fá
sæti auð og spennustigið hátt í hús-
inu.
Mjótt var á munum lengst fram-
an af fyrsta leikhluta. Rétt undir lok
hans náðu leikmenn Skallagríms
heldur yfirhöndinni en Skaga-
menn fylgdu þeim eins og skugg-
inn. Heimamenn gerðu atlögu að
forystunni með góðum spretti um
miðjan annan leikhluta en gestirnir
stóðu hana af sér og leiddu með tíu
stigum í hálfleik, 44-54.
Skallagrímsmenn mættu gríðar-
lega ákveðnir til síðari hálfleiks og
keyrðu á leikmenn ÍA. Skagamenn
áttu ekkert svar við þessu áhlaupi
gestanna sem juku forskot sitt í 24
stig og gerðu í raun út um leikinn.
Heimamenn gerðu heiðarlega til-
raun til að minnka muninn með
stuttum sóknum en þriggja stiga
skot þeirra vildu ekki niður. Mun-
urinn hélst svo að segja óbreytt-
ur allt til leiksloka og lokatölur á
Vesturgötunni 77-100, Skallagrími
í vil.
Sigtryggur Arnar Björnsson fór
mikinn í liði Skallagríms. Hann
skoraði 35 stig og tók sex fráköst.
Næstur honum kom J.R. Cadot
sem skoraði 24 stig og reif niður
15 fráköst.
Í liði Skagamanna var Sean Tate
var iðnastur við stigaskorun með
28 stig. Fannar Freyr Helgason
kom honum næstur með 22 stig og
sjö fráköst.
Eftir leikinn eru liðin jöfn að
stigum í 4.-5. sæti deildarinn-
ar, hvort um sig með sex stig eft-
ir fimm leiki.
Í næsta leik taka Skallagríms-
menn á móti KFÍ föstudaginn 27.
nóvember. Skagamenn heimsækja
hins vegar Fjölni í Grafarvoginn
sunnudaginn 29. nóvember.
kgk/ Ljósm. jho.
Skallagrímur sigraði Vesturlandsslaginn
Framherjinn J.R. Cadot treður með
tilþrifum eftir hraðaupphlaup Skalla-
gríms.
Fannar Freyr Helgason fer framhjá
Þorsteini Þórarinssyni í teignum.
Leikstjórnandinn Sean Tate lætur skot
ríða af.
Sigtryggur Arnar Baldursson fór mikinn í liði Skallagríms. Hér
metur hann leikstöðuna en Áskell Jónsson er til varnar.
Iðkendum yngri flokka ÍA fjölgar stöðugt og skemmtu þeir
áhorfendum með skotleik í leikhléi.