Skessuhorn - 23.11.2016, Síða 59
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 2016 59
Boga Kristín Thorlacius blóma-
skreytir hefur að undanförnu lagt
drög að því að stækka Blómalindina
í Búðardal en einhver töf verður á
framkvæmdum. Það kemur þó ekki
til með að hafa áhrif á vöruúrval og
þjónustu á aðventunni en þessa dag-
ana er jólaundirbúningur að kom-
ast á fullt og nýjar vörur að detta í
hús. Eins og áður verður boðið upp
á hefðbundna skreytingaþjónustu,
fólki býðst að koma með eldri skreyt-
ingar og fá þær uppgerðar og einnig
að láta vefja jólakransa hvort sem er á
hefðbundinn hátt með greni eða með
mosa, allt eftir óskum hvers og eins.
„Stefna mín í ár er að innleiða nát-
túrulegar skreytingar þar sem notaður
er kúlumosi á hringi og í ýmiss konar
skreytingar. Þykkblöðungar koma
sterkir inn, þ.e. pottablóm sem nær
ekkert þarf að vökva og henta því afar
vel. Skógurinn, mosinn og náttúran
eru mín slagorð,” segir Boga en fyrstu
vikuna í aðventu fer hún í skógarferð
og safnar efni sem skógurinn gefur af
sér. „Ég passa þó að ganga ekki á nát-
túruna og eyðileggja. Ég tek börk af
föllnum trjágreinum og mosann tek
ég þannig að ekki sjáist að ég hafi ver-
ið á ferðinni,” bætir Boga við.
Vöruúrvalið í Blómalindinni
verður með svipuðum hætti og áður,
jólalína frá Heklu, frostrósin, jóla-
og gjafavara frá House Doctor og
Interiohuset og fleiri aðilum. „Til að
halda stemningunni á aðventunni tíni
ég inn vörur smátt og smátt fram að
Þorláksmessu,” segir Boga að lokum.
sm
U n
Gott í vetur
sími 868-7204 / www.myranaut.is / myranaut@myranaut.is
Lágmarkspöntun af skrokk. Inniheldur steikur, hakk og gúllas.1/8
Upphaf aðventu í Borgarbyggð
sunnudaginn 27. nóvember 2016
Ljós og náttúra Vesturlands - Sýning í
Safnahúsi opnuð kl.15.00
Jón R. Hilmarsson sýnir ljósmyndir sem hann
hefur tekið á Vesturlandi. Við opnunina
mun Alexandra Chernyshova koma fram og
boðið verður upp á veitingar.
Jólaljósin tendruð á Kveldúlfsvelli kl. 17.00
Ljósin verða tendruð á jólatré
Borgarbyggðar við Kveldúlfsvöll. Þar
mun Geirlaug Jóhannsdóttir formaður
byggðarráðs flytja ávarp og tendra
jólaljósin. Jólalög verða sungin af Barnakór
Borgarness undir stjórn Steinunnar
Árnadóttur. Grýla og jólasveinarnir koma
til byggða og nemendur Grunnskólans í
Borgarnesi bjóða uppá heitt kakó.
Gleðileg hátíð
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
„Skógurinn, mosinn og náttúran eru mín slagorð“
Kíkt í heimsókn í Blómalindina í Búðardal
Mosahringur og hvítt jólaskraut er
sterkt inni núna.
Kertaskreytingar, jólavörur og skógarstóllinn sem Boga skreytti.
Jólavara og skógarstóllinn hennar Bogu sem hún skreytti.
Kerta- og jólaskreyting með potta-
plöntum og skrautefni úr íslenskri
náttúru.
Talsvert má finna af gamaldags
jólavörum í Blómalindinni.