Skessuhorn - 23.11.2016, Síða 68
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 201668
LITIR:
www.smaprent.is | smaprent@smaprent.is
2.900
ISK
LITIR:
1.480
ISK
2.900
ISK
Hjónin Ólafur Árni Benediktsson
og Guðrún Ágústsdóttir minnast
þess bæði að kjöt hafi verið reykt
heima fyrir þegar þau voru að alast
upp en reykkofa höfðu þau ekki
þegar þau fóru að búa á Stóra-
Vatnshorni í Haukadal árið 1957.
Það var svo fyrir um 15 árum síð-
an að þau hjónin tóku að reykja
sitt jólakjöt en þá hafði Árni reist
þeim reykkofa í landi Stóra-Vatns-
horns þar sem dóttir þeirra býr í
dag ásamt fjölskyldu. Reykkofinn
var reistur á gömlum tóftum sem
Árni telur hafa verið gamla rétt.
Segja má að þetta hafi byrjað þegar
Árni fór á grjóthleðslunámskeið hjá
Guðjóni Kristinssyni hleðslumeist-
ara en á námskeiðinu var hlaðið á
gömlu tóftirnar þar sem kofinn
stendur nú. Eftir námskeiðið fékk
Árni þá hugmynd að nýta þá vinnu
sem þarna hafði farið fram, kláraði
hleðsluna og byggði kofann.
Í kofanum er reykt kjöt, heima-
gerð bjúgu og stundum lax. Þegar
fréttaritari leit við voru þau hjón-
in að klára að hengja upp bjúgu og
Árni að hefjast handa við að kveikja
upp í, en þarna er allt tað- og birki-
reykt. Hangikjötið fór upp um
tveimur vikum fyrr.
Ólíkar aðferðir
Guðrún er frá Kirkjuskógi í Suður-
dölum en Árni frá Hömrum í Hauka-
dal. Þótt bæði hafi kynnst því að mat-
ur væri reyktur heima fyrir hafa þau
hvort sína sögu að segja. „Heima var
reykt í gömlu torfhúsi eða hlóðaeld-
húsi en það var samtengt íbúðarhús-
inu og innangengt í eldhúsið okkar.
Ég man að reykinn lagði í milligang-
inn,“ rifjar Guðrún upp.
Heima hjá Árna á Hömrum var
aðeins annar háttur á. „Heima voru
stundum nokkur stykki sett í stromp-
inn þegar það var verið að þvo þvott
en þá var þvottavatnið soðið á hlóð-
um og kveikt upp í taði og mó. Kjötið
var látið hanga talsvert lengi og síð-
an geymt í ornuðu heyi. Það lá við
að heyið væri brennt, það var svo
brúnt,“ segir Árni. Þessa geymsluað-
ferð þekkti fréttaritari ekki svo Árni
bætir við: „Og eggin voru geymd í
ösku.“
„Í Kirkjuskógi var þvotturinn
þveginn í gamla eldhúsinu og amma
bakaði oft flatkökur á eftir, þá skellti
hún þeim á glóðirnar. Það voru sér-
stakir þvottadagar hálfsmánaðarlega.
Þvotturinn var settur í bleyti daginn
áður og þvegið á bretti og skrúbbað,“
segir Guðrún.
Þá bætir Árni við „Ullin var
þvegin heima. Togið tekið af þel-
inu og spunnið. Ég tvinnaði á rokk
og snældu en þetta var þó mikið að
leggjast niður þegar ég var svona
16-17 ára.“
Ríkisrafmagnið
kom 1972
Fyrsta hjúskaparár Árna og Guð-
rúnar á Stóra-Vatnshorni var þvott-
ur þveginn á hlóðum úti við læk. „Ég
var ekki voða lagin við að halda eldi
í því. En ég var eitthvað að reyna,“
segir Guðrún. Hún bætir því við að
þetta hafi verið að leggjast af á þess-
um tíma. Um 1960 fengu þau ljósa-
mótor og litlu síðar stærri mótor
sem einnig knúði þvottavél. Ríkis-
rafmagnið kom svo 1972 í Hauka-
dalinn.
Farið með geyminn í
hleðslu
Talið berst aðeins að jólahaldi á
uppvaxtarárum hjónanna. Bæði eru
á því að jólin hafi verið mjög hátíð-
legur tími og allt í föstum skorð-
um. „Það var mikil kyrrð sem færð-
ist yfir á aðfangadagskvöld,“ seg-
ir Guðrún. Jólatré voru sett upp á
aðfangadag og kveikt á kertunum á
aðfangadagskvöld.
„Það var sungið í kringum jóla-
tréð á aðfangadagskvöld, jóla-
dag, gamlárskvöld, nýársdag og
á þrettándanum. Svo var húslest-
ur á aðfangadagskvöld og nýárs-
dag,” segir Árni. Á heimili Guð-
rúnar var ekki húslestur en allir
áttu að hlusta prúðir á útvarpsmess-
una. Árni man eftir þeim tíma þeg-
ar útvarp var ekki til á hans heim-
ili en þá var farið á aðra bæi ef eitt-
hvað sérstakt var í útvarpinu. “Ég
man að við keyptum útvarp 1944
eða 1945. Þá þurfti að fara með
geyminn að Háafelli til að hlaða
hann því þar var vatnsaflsstöð.“
Tímarnir hafa augljóslega breyst
og það er notalegt að heyra sög-
ur frá gamla tímanum þótt maður
vilji helst ekki hverfa frá þeim nú-
tíma þægindum sem bjóðast í dag.
Og það er ekki laust við að einhver
jólatilfinning fylgi með þegar ekið
er út Haukadalinn með sterka reyk-
lyktina í fötum og nýfallinn snjór
loksins farinn að sjást á jörðu.
sm
Jólaundirbúningurinn í reykkofanum
Árni og Guðrún framan við reykkofann.
Kveikt upp í kofanum. Allt er tað- og birkireykt á Vatni.
Bjúgu, hangiket og annað góðmeti komið í reyk.