Heimsmynd - 01.05.1989, Blaðsíða 21
KRISTNIHALD í
FÆREYJUM
egar kvikmyndafélagið
Umbi frumsýndi
myndina Stella í Orlofi
haustið 1986 þusti þriðjungur
þjóðarinnar á myndina á
skömmum tíma. Stella
skilaði aðstandendum sínum
góðum hagnaði og nægri
bjartsýni til að ráðast í gerð
kvikmyndar af allt öðru tagi.
Þann 25. febrúar síðastliðinn
var síðan myndin Kristnihald
undir Jökli frumsýnd.
Leikstjóri er Guðný, dóttir
höfundar verksins, og með
helstu hlutverk fara Sigurður
Sigurjónsson, Baldvin
Halldórsson og Margrét
Helga Jóhannsdóttir.
Myndin hlaut mjög góða
dóma hjá gagnrýnendum en
því miður virðist slæm færð
hafa haft einhver áhrif á
aðsókn. „Við renndum alveg
blint í sjóinn með hver
aðsókn yrði,“ segir Kristín
Pálsdóttir
kvikmyndagerðarmaður og
Guðný Halldórsdóttir bætir
við að 30 þúsund áhorfendur
þurfi að koma til að dæmið
gangi upp. Hingað til hafa
um 15 þúsund manns séð
myndina, „en það eru ekki
þessir venjulegu bíógestir,"
segir Kristín, „heldur mikið
af fólki sem hefur ekki farið
í bíó árum saman og biður
um prógramm og
stúkusæti.“
I þessari mynd er
samankomið úrval íslenskra
leikara og samspil þeirra er
að mati gagnrýnenda
frábært. Þessa dagana
stendur yfir norræn
kvikmyndahátíð í Færeyjum,
sú fyrsta sem þar er haldin, í
tilefni þess að Færeyingar
eru að frumsýna fyrstu
innlendu kvikmyndina sína.
Kristnihald undir Jökli
verður sýnd þar í fyrsta sinn
utan landsteinanna en þaðan
fer myndin líklega til
dreifingaraðila í Los
Angeles, þess bæjar á
vesturströnd Bandaríkjanna
(um 13 milljónir íbúa), sem
Halldór Laxness dvaldi í
ungur maður.
Guðný Halldórsdóttir
leikstjóri verður í ítarlegu
viðtali í næsta tölublaði
HEIMSMYNDAR.
MADONNA
MONA LISA
Söngkonan Madonna er
búin að skipta um gervi.
Núna lítur hún út eins og
Mona Lisa, hvíta hárið er
orðið dökkbrúnt og rauðu
varirnar eru málaðar í
mildari lit. Eftir sem áður er
hörund hennar mjólkurhvítt
og undirfötin svört.
Madonna er þrítug og segist
orðin þreytt á gömlu
ímyndinni. Nýja platan
hennar, Like a Prayer,
fjallar um áhrif kaþólskrar
trúar í lífi hennar og þær
ástríður sem trúin vekur
með henni. „Ég hef sungið
um margvíslegar tilfinningar
á umliðnum árum en í fyrsta
sinn núna er ég tilbúin að
sýna þær,“ segir Madonna.
„Þetta krefst mikils
hugrekkis af minni hálfu og
með þessari nýju plötu er ég
að taka meiri áhættu en ég
hef nokkru sinni gert.“
Madonna hefur fengist við
fleira en sönginn upp á
síðkastið en nýlega lauk
sýningum á leikriti eftir
David Mamet sem hún lék í
á Broadway í New York.
„Leikurinn vakti með mér
nýjar spurningar og krafði
mig um hógværð í samvinnu
við aðra, sem ég var ekki
vön.“
Spurningin er hvort
áhorfendur kæra sig um
hógværa Madonnu í Monu
Lisu gervi eftir þá sem vildi
líta út sem Marilyn Monroe
endurborin.
HEIMSMYND 21