Heimsmynd - 01.05.1989, Blaðsíða 84
Bogdan Kowalczyk hefur ekki
alltaf átt sjö dagana sæla þessi
ellefu ár, sem hann hefur dvalið
á íslandi, fyrst fimm ár sem
þjálfari Víkings og síðan sex ár
sem þjálfari landsliðsins. Eftir
sigurinn í Frakklandi í febrúar
var hann hafinn til skýjanna.
Haft var eftir erlendum
kunnáttumönnum að hann væri meðal
bestu þjálfara heims, ef hann væri ekki
hreinlega bestur. „Við erum með gull-
mola í höndunum þar sem Bogdan er,“
var haft eftir Ólafi Jónssyni landsliðs-
nefndarmanni.
Það er ekki alltaf, sem honum hafa
verið svo vandaðar kveðjurnar. Þess er
skemmst að minnast, að eftir ólympíu-
leikana í Sól fékk hann það óþvegið á
íþróttasíðum dagblaðanna. Einn frétta-
ritari hafði meira að segja séð votta fyrir
brosi á andliti hans eftir tapleikinn við
Sovétmenn, og var helst á honum að
skilja að þarna væri landráðamaður á
ferð. Að vísu verður að taka íþróttasíður
dagblaðanna með hæfilegum fyrirvara,
því að þær eru þær einu síður, sem eftir
eru, þar sem geðbrigði og skapsmunir fá
að fljóta um alla dálka, svo að út af flóir
stundum. En krafan var nokkuð ein-
dregin: við þennan óheillafugl þyrfti að
losna sem fyrst.
Bogdan er orðinn nokkuð hagvanur
hér, hefur dvalið langdvölum á landinu
með fjölskyldu sinni, konu og ungum
sonum, sem gengið hafa hér í barna-
skóla, og öll eru mælt á íslensku. En
hann hefur líka átt annað heimili í Pól-
landi. Eftir að hann tók við þjálfun Vík-
ings gerði hann liðið á nokkrum árum að
stórveldi hér innanlands og vel gjald-
gengt á Evrópumælikvarða. Víkingar
urðu Islandsmeistarar í fjögur ár og unnu
bikarmótið þrisvar. Hann tók við lands-
liðinu 1983 og síðan hefur leiðin legið
upp á við með nokkrum öldudölum þó:
Þátttaka í tvennum ólympíuleikum,
Bogdan Kowalczyk. Er
hann orðinn besti þjálfari
heims? Aðferðirnar eru
umdeildar, en
árangurinn ekki.
heimsmeistarakeppninni í Sviss, mörgum
stórmótum og nú síðast gullverðlaun í B-
keppninni í Frakklandi, sem tryggði
þátttöku í heimsmeistaramótinu í
Tékkóslóvakíu á næsta ári. „Framfarirn-
ar í handboltanum á undanförnum árum
má að stórum hluta rekja til þess hvernig
Bogdan hefur starfað," sagði Guðjón
Guðmundsson liðsstjóri í viðtali nýlega.
Hann hefur raunar unnið svo náið með
Bogdan, að rætt hefur verið um að
Bogdan setji það sem skilyrði við ráðn-
ingu annars staðar, að hann fái Guðjón
með sér. Hins vegar hafa austantjaldsað-
ferðir Bogdans ekki verið óumdeildar.
Margir vilja halda því fram að við aga-
lausa Islendinga dugi ekkert annað. Hins
vegar eru landsliðsmennirnir okkar ekki
sú manngerð, sem er því vön að þegja og
hlýða. Þeir eru ófeimnir við að gagnrýna
og vilja að sanngjarnt tillit sé tekið til
þess, sem þeir hafa fram að færa.
Aðferð Bogdans hefur verið kölluð
einræði - með undankomuleiðum þó.
Hann er lítið hrifinn af því sem hann
kallar sósíaldemókratíseringu, eða að
minnsta kosti eigi hún ekki við í hand-
boltanum. Hann vinnur mjög nákvæm-
lega og kerfisbundið og hefur skrifað
niður allar sínar æfingar og á þær skráð-
84 HEIMSMYND