Heimsmynd - 01.05.1989, Blaðsíða 24
En við eigum jákvæðari ímyndir.
Þar eru söngvarar, skáld, skák-
menn og íþróttahetjur í bland.
Ekkert kemst þó í hálfkvisti við
þá góðu kynningu sem við höf-
um fengið fyrir atbeina íslenskr-
ar fegurðar á þessum áratug.
Síðan Vigdís Finnbogadóttir var
kjörin forseti íslands árið 1980
hefur hún unnið hug og hjörtu margra
erlendra þjóða með tígulegri framkomu,
þar sem persónutöfrar og yndisþokki
hafa ekki haft lítið að segja. Og nú hafa
fleiri dísir af íslensku bergi brotnar vakið
aðdáun erlendis. Árið 1985 vann Hólm-
fríður Karlsdóttir titilinn ungfrú heimur í
London. Hún var strax virkjuð í þágu
þjóðarbúsins og fengin til að ferðast um
og kynna Island og íslenskar útflutnings-
vörur við mikinn orðstír. Þremur árum
seinna, 1988, hreppti Linda Pétursdóttir
sama titil, og eins og fram kemur hér á
eftir létu útflutningsaðilar ekki happ úr
hendi sleppa. Hún vinnur allt að því sex-
tán stunda vinnudag að því að kynna
land og þjóð. Fleiri stúlkur mætti nefna
eins og Önnu Margréti, sem komst í
þriðja sæti í fyrrnefndri keppni í London
árið 1987, og hefur síðan aðstoðað nokk-
uð við landkynningu. Þessar þrjár fóru
til dæmis saman til Parísar í febrúar á
vegum Ferðamálaráðs, til að blása
Frökkum þeirri hugmynd í brjóst að ís-
land væri ákjósanlegur dvalarstaður í
sumarleyfinu.
Það eru tvær leiðir til að vekja athygli
á Islandi í fjölmiðlum úti í heimi. Önnur
er að gera eitthvað sem er í frásögur fær-
andi, leyfa bjórdrykkju eftir 76 ár, velja
konu í æðsta embætti lýðveldisins, eign-
ast sigurvegara í íþróttum, skák eða feg-
urðarsamkeppni. Hin er að kaupa aug-
lýsingar og það er dýrt. Ýmis stórfyrir-
tæki eyða upphæðum sem fjárlög
íslenska ríkisins mundu varla hrökkva til
að greiða til kynningar á vörum sínum.
Þeirri fjárhæð hefðum við íslendingar
þurft að snara út, til að kosta þá land-
kynningu sem fengist hefur með atbeina
fagurra og glæsilegra íslenskra kvenna.
Þær hafa gert margfalt meira fyrir út-
flutningsvörur okkar og þar með sameig-
inlegar tekjur landsmanna heldur en
elsku stjórnmálamennirnir með allt sitt
pex og þref.
Nú er fyrirbærið fegurðarsamkeppni
oft gagnrýnt, og það með gildum rökum.
Andstæðingar slíkra keppna líkja þeim
við gripasýningar þar sem líkami kvenna
og kynþokki sé skoðað líkt og um skyn-
lausar skepnur væri að ræða. Meðan
karlmenn leggi allt kapp á að vera metn-
ir eftir gáfum, menntun og dugnaði séu
konur dæmdar eftir útlitinu, en varla
taldar vitsmunaverur. „Var ég þá ekkert
annað en umbúðirnar,“ spurði Bryndís
Schram sjálfa sig eftir að hafa tekið þátt í
fegurðarsamkeppni á Langasandi 1957.
Sumir aðrir sigurvegarar á þeim árum
24 HEIMSMYND
■1
jS : ÍK P- *r v V'- * %
Það er varla til sú íslensk
útflutningsvara sem ekki selst betur
þegar fegurðardís með tltilinn ungfrú
heimur leggur henni lið. Hár kynnir
Hófí Svala á írlandi ásamt Margréti
eiginkonu Baldvins Jónssonar.
Linda sem ungfrú heimur 1988. Hún
var aðeins 18 ára þegar hún hreppti
þennan eftirsótta titil.
Linda kynnir fisk á sýningunni Boston
Sealood Show í mars síðastliðnum.
Hvar sem hún kemur stendur fólk í
blðröðum til að fá myndir af henni
með eiginhandaráritun, og viðtöl við
hana i útvarpi og sjónvarpi veita landi
og þjóð auglýsingu, sem er jafnvirði
margra milljóna króna.