Heimsmynd - 01.05.1989, Blaðsíða 25
töldu sig hafa skaddast andlega á þátt-
tökunni, tapað áttum við allt tilstandið.
Og samfara kvenfrelsisbaráttu og öðrum
uppreisnarhreyfingum sjöunda og átt-
unda áratugarins sköpuðust neikvæð við-
horf í hinum vestræna heimi gegn slíkum
uppákomum. Blómabörn hippahreyfing-
anna voru heimspekilega sinnuð og létu
sér meira annt um sál en líkama. Hug-
sjónir skiptu þau öllu, föt og snyrtivörur
engu, enda áttu þau ekki peninga til að
kaupa neitt. Framsæknar konur létu
ekki nægja að gagnrýna fegurðarsam-
keppnir í ræðu og riti, heldur efndu til
mótmælaaðgerða þeim til háðungar.
Rauðsokkur leiddu kvígu á eina keppn-
ina, og minnisstætt er þegar kvenna-
framboðskonur birtust með gylltar
pappakórónur á borgarstjórnarfundi til
að undirstrika mótmæli sín.
Ííðarandinn breyttist, pendúllinn
sveiflaðist frá efahyggju til efnis-
hyggju. Uppatímabilið gekk í
garð með áherslu á munaðarleg-
an lífsstíl, ytri glæsileika og
snjalla hönnun. Neysluþjóðfélag
á fullu með tilheyrandi auglýs-
ingaflóði. Og fegurðarsam-
keppnir blómstra sem aldrei
fyrr.
Þær eru nú haldnar í hverju krumma-
skuði allt í kringum landið, enda verða
hvorki meira né minna en sjö blómarósir
sendar utan á þessu ári í alþjóðlegar
keppnir.
„Háar og hraustlegar norrænar konur
eru í tísku,“ segir Baldvin Jónsson, sem
annast hefur framkvæmd á vali ungfrú
íslands undanfarin ár, og er af mörgum
talinn maðurinn bak við sigra stúlknanna
okkar á alþjóðavettvangi. Hann leggur
mikla áherslu á landkynningarþáttinn:
„Heimurinn skiptist í markaðssvæði,
sem heyja grimmt stríð sín á milli. Þar
erum við íslendingar dvergar meðal
jötna. Það hjálpar okkur raunar að þjóð-
arframleiðslan er ekki feiknamikil að
magni. Séum við þekkt er hægur vandi
að selja hana alla.
Franska Perrier ölkelduvatnið er frægt
og þess vegna keypt um allan heim. Is-
lenskt ölkelduvatn er líka mjög gott. Það
er bara enginn sem kannast við það.“
Ingjaldur Hannibalsson hjá Utflutn-
ingsráði staðfestir að stúlkur eins og
Hólmfríður Karlsdóttir og Linda Péturs-
dóttir hafi veitt ómetanlegt liðsinni. Út-
flutningsráð er samtök aðila sem afla
þjóðinni gjaldeyris, hvort sem er á sviði
sjávarafurða, iðnaðar, ferðaþjónustu,
flutninga eða annars. Þegar Linda var
kjörin ungfrú heimur var gert samkomu-
lag við eigendur keppninnar, breskt
hlutafélag, um að hún ynni hundrað
daga á þessu ári (þeir gætu orðið fleiri og
þá eru ferðadagar ótaldir) að kynningum
fyrir íslenska aðila, það er að segja Út-
flutningsráð, Ferðamálaráð og Flugleiði.
BALDVIN JÓNSSON
- á sinn þátt í sigurgöngu fegurðardísanna
„Það sjónarmið að vera á móti fegurðarsamkeppni á
fullan rétt á sér, alveg eins og fólk hefur leyfi til að vera
á móti handbolta og hvalveiðum. Ég mundi sjálfur ekki
hafa lagt vinnu í keppni sem eingöngu snerist um að
velja fegurstu konu á íslandi. En hér er miklu meira á
ferðinni. íslensk stúlka sem hreppir titilinn ungfrú
heimur (Miss World) vinnur kynningarstarf sem vekur
meiri athygli á landi okkar og þjóð en nokkuð annað
sem ég fæ komið auga á. Opinberir aðilar hafa þó ekki
þurft að leggja fram eina krónu til keppninnar," segir
Baldvin Jónsson. Honum tókst að endurreisa fegurðar-
samkeppnir hér á landi eftir langt niðurlægingarskeið,
með þeim árangri sem raun ber vitni. Jafnvel er farið
að leita til hans um aðstoð erlendis frá. Þannig fengu írar hann fyrir skemmstu
til að vera formaður í dómnefnd um fegurstu stúlku þar í landi. Hann starfar
raunar sem auglýsingastjóri á Morgunblaðinu en fór að stjórna fegurðarsam-
keppninni Ungfrú ísland árið 1982, að beiðni Einars Jónssonar heitins sem
unnið hafði gott starf á þeim vettvangi á árum áður. „Mér reyndist erfitt að fá
stúlkur til að keppa. Almenningur hafði engan áhuga, um 100 til 150 manns
komu til að fylgjast með úrslitum,“ segir Baldvin um fyrstu keppnina.
„Sama ár fór ég til London að skoða heimskeppnina þar og mér sýndist Is-
lendingar hafa möguleika á að vinna hana. En það yrði að gera allt sem hægt
væri til að stúlkur þyrftu ekki að skammast sín fyrir að vera með. Keppnin yrði
að vera með þeim brag að þeim yrði ekki mætt með fyrirlitningu, heldur gætu
þær verið hreyknar af þátttöku sinni og fengju auðveldlega leyfi foreldra sinna
til að keppa. Við reyndum að vanda sem best til skemmtananna þar sem stúlk-
urnar voru kjörnar. Ungir og upprennandi listamenn voru fengnir til að koma
fram eða einhverjir mjög þekktir eins og til dæmis Kristján Jóhannsson söngv-
ari og Rod Stewart."
Að keppni lokinni fengu efnilegustu stúlkurnar þjálfun í tvo mánuði áður en
haldið var utan á heimskeppnir. Mest áhersla var lögð á íþróttir og líkams-
rækt, en auk þess var fengið fagfólk til að leiðbeina þeim um framsögn, hár-
greiðslu, snyrtingu og annað sem að gagni mætti koma. Þær fóru þannig betur
undirbúnar að heiman en stúlkur frá öðrum löndum.
„Fyrstu fimm árin voru uppbyggingarstarf," segir Baldvin. „Það fór að skila
árangri 1985, þegar Sif Sigfúsdóttir vann titilinn ungfrú Norðurlönd og Hólm-
fríður Karlsdóttir titilinn ungfrú heimur. Þessir fyrstu sigrar erlendis um langt
skeið skiptu sköpum. Héðan af mátti gera sér vonir um að okkar keppendur
yrðu í hópi þeirra fremstu."
Enda spyrja blaðamenn nú strax þegar stúlknahópurinn kemur til keppni:
hvar er ungfrú ísland? Hólmfríður Karlsdóttir ruddi brautina, og þegar Linda
Pétursdóttir kom á eftir var öll umfjöllun um hana tengd íslandi: íslensk stúlka
verður ungfrú heimur, um hana leikur ferskur íslenskur blær, hún er efst á
hnettinum, og þar fram eftir götunum. Blaðamenn fóru mörgum orðum um
hvað það væri merkilegt að þetta litla land skyldi eiga slíka fegurðardís. Og
þeir fundu upp ótal orðaleiki þar sem eyes og ice, augu (þessi bláu hennar
Lindu) og ís voru látin ríma saman.
„Blaðagreinar um þær Hólmfríði og Lindu hafa birst í ótal löndum og skipta
núorðið eflaust þúsundum, auk þess sem sex hundruð milljónir manna fylgjast
með krýningu ungfrú heims hverju sinni,“ sagði Baldvin Jónsson.
Höfuöpaur fegurðarsamkeppninnar, Baldvin Jónsson og Ólafur Laufdal. Milli þeirra sifja (frá
vistri) Margrét, eiginkona Baldvins, Kristín Ketilsdóttir, eiginkona Ólafs Laufdal, og ungfrú
Reykjavík 1988, Guðný Elísabet Ólafsdóttir.
HEIMSMYND 25