Heimsmynd - 01.05.1989, Blaðsíða 67
höfundar og forsvarsmenn kvikmynda-
vera. Hoffman neitar þessu ekki með
öllu. „Ég veit að ég er þekktur fyrir að
færa myndir sem eru komnar á fram-
kvæmdastigið aftur á undirbúningsstig-
ið,“ segir hann með nokkru stolti. En
hvað er raunverulega hæft í þessum
ásökunum? John Malkovich, sem lék á
móti honum í Sölumaður deyr, hefur
sína skilgreiningu. „Tökum dæmi með
atriði þar sem leikarinn þarf að detta og
stingast á höfuðið. Flestir leikarar spyrja
leikstjórann einfaldlega „hvernig þá?“
Leikstjórinn svarar og þeir vinna verkið.
Tíundi hver leikari vill ekki gera eins og
ætlast er til og segir leikstjóranum að éta
það sem úti frýs. Örsmátt hlutfall þeirra
kemur með hugmyndir. Svo vill til að
Dustin er einn þeirra, hann hefur margar
hugmyndir sem stundum tengjast ekki
hlutverki hans beint. Ef leikstjórann
skortir sjálfstraust og er ekki með á nót-
unum er Dustin sagður erfiður. En það
er hinn mesti misskilningur.“ Sjálfur hef-
ur Hoffman ekki áhyggjur af þessum
stimpli. „Fólk er alltaf að spyrja mig af
hverju ég vinni ekki bara verkið og geri
eins og mér er sagt. En það er bara ekki
hægt, þetta verður að vinnast í sam-
starfi."
Rain Man, ef nokkuð, er dæmi um
þess konar samstarf. Hoffman tengdist
þessu verkefni snemma sterkum böndum
og ákvað að það skyldi verða að veru-
leika hvað sem tautaði og raulaði. Um
tíma leit reyndar út fyrir að of mörg ljón
væru í veginum Ýmsir leikstjórar og
handritshöfundar spreyttu sig en gáfust
upp. í öngum sínum rakst Hoffman á
Barry Levinson sem að lokum féllst á að
taka að sér leikstjórnina eftir að Sidney
Pollack hafði siglt í strand. Allir að-
standendur myndarinnar, Levinson,
mótleikari hans Tom Cruise, handrits-
höfundarnir Barry Morrow og Ronald
Bass og framleiðandinn Mark Johnson,
eru sammála um að ef ekki væri fyrir
þráhyggju og ákveðni Hoffmans hefði
Rain Man aldrei orðið til.
aymond Babbitt, sem Hoffman
leikur í Rain Man, er lokaður í
eigin hugarheimi og lítt fær um
að hafa samskipti við annað fólk
né skynja umhverfi sitt. Sjúk-
dómur hans kallast einhverfa.
Samkvæmur sjálfum sér lagði
Hoffman mikið á sig til að nálg-
ast persónuna. Hann eyddi heilu
ári meðal ei'nhverfra og byggði að lokum
túlkun sína á tveimur þeirra er hann
kynntist. „Þegar mér var sent handritið
var gert ráð fyrir að ég vildi hlutverkið
sem Cruise leikur. Það var hlutverkið
sem var ætlað „stjörnunni". En ég hafði
aldrei áður leikið persónu sem opinber-
lega var talin hafa „geðræn vandamál"
framhald á bls. 110