Heimsmynd - 01.05.1989, Blaðsíða 78
HITT & ÞE
U R
A
TÍSKUHEIMINUM
sentímetra sólum? Einmitt.
Oj, bara, en staðreynd. Hin
hörmulega tíska áttunda
áratugarins var sambland af
fatnaði frá stríðsárunum,
hippa- og diskóklæðnaði.
Nema nú ganga
tískuhönnuðir skrefi lengra
og ýkja áherslurnar. Útvíðu
buxurnar eru enn útvíðari,
mjaðmabuxurnar lengra fyrir
neðan mitti og skórnir með
enn þykkari sólum en áður,
helst úr korki.
Pessi tíska kann að höfða
til unglinga sem tóku sín
fyrstu skref með mæðrum í
útvíðum buxum en það er
ólíklegt að hún höfði til
þeirra sem voru á
táningsaldri um miðbik
áttunda áratugarins. Hin
hliðin, og sú betri, á þessu
máli er að nú eru
tískuhönnuðir þurrausnir í
tímabilum nema þeir taki
upp á því að fara að
endurtaka sveiflur frá 1983.
Pað gengur náttúrlega ekki.
Það gengur heldur ekki að
koma með fatnað í
geimfarastfl eins og Paco
Rabanne gerði á sjöunda
áratugnum. Pví reynir nú á
hvort tískuhönnuðir geta
verið nógu frumlegir í að
koma með eitthvað nýtt.O
ÁTTUNDI
ÁRATUGURINN
Því miður er áhrifa þessa
stfllausa áratugar farið
að gæta í tískuheiminum nú.
Tískufrömuðir sækja
annaðhvort hugmyndir í
tíma eða rúm. Þeir fara
aftur um áratugi, jafnvel
aldir, eða þeir leita fanga í
landfræðilegum skilningi,
samanber áhrif kínversks
klæðnar, japansks, suður-
amerísks og svo framvegis.
Undanfarin ár hefur tíska
sjöunda áratugarins verið
endurvakin í ýmsum
myndum samhliða áhrifum
frá fyrri áratugum. Það er
orðið nógu langt um liðið og
ofnæmið fyrir bleikum litum,
túberuðu hári og minipilsum
þorrið. Andúðin á stfl(leysi)
áttunda áratugarins situr
hins vegar eftir í mörgum
þeim sem komnir voru til
vits og ára í kringum 1975.
Engu að síður er það
staðreynd að sveiflur frá
þessum tíma eru ríkjandi í
tískunni nú.
Hvaða áhrif er hægt að
sækja til áttunda áratugarins
í tískunni? Spyrjið Katharine
Hamnett í London,
Christian Lacroix eða Jean-
Paul Gaultier í París. Hver
man ekki eftir maxi-
tískunni, síðum leðurkápum,
diskóklæðnaði með
pallíettum, stórum
skyrtukrögum, útvíðum
buxum og skóm með 20