Heimsmynd - 01.05.1989, Qupperneq 41
ur, miskunnarlaus, sífellt fundvís á snögga bletti andstæðings-
ins og stundum allt að því ofsafenginn. Hann hafi vissulega
verið maður stórra geðbrigða, skapstór og skapbráður, eink-
um á fyrri árum, en síðan orðið mildari og kyrrari þó að ávallt
hafi verið stutt í eldglóðina. Lúðvík Jósefsson sagði um hann
að hann hefði verið stórbrotinn samferðamaður, mikill stjórn-
málamaður, heilsteyptur og minnisverður. Eðvarð Sigurðs-
son, verkalýðsforingi og þingmaður, sagði að þó að Bjarni
hafi virst harður viðskiptis og stundum fráhrindandi í viðmóti
hefðu kostir hans verið augljósir; hann kynnti sér mál vel, var
raunsær í ályktunum, afgreiddi mál vafningalaust og treysta
mátti orðum hans. Það voru þessir tveir menn, Bjarni og Eð-
varð, sem áttu mestan þátt í hinu fræga júnísamkomulagi 1964
sem var eins konar vopnahléssamningur milli verkalýðshreyf-
ingar og stjórnvalda og skildi eftir sig drjúg spor.
Bjarni Benediktsson stóð
eins og bræður hans föstum
fótum í íslenskri menningu,
hafði djúptæka þekkingu á
sögu og bókmenntum og hann
var svo minnugur að hann gat
rakið gömul mál blaðalaust úr
ræðustóli frá orði til orðs.
Jafnstórbrotið og líf hans var
svo urðu endalokin hörmuleg.
Hann brann inni ásamt konu
sinni, Sigríði Björnsdóttur frá
Ánanaustum í Reykjavík og
litlum dóttursyni á Pingvöllum
sumarið 1970.
Börn Bjarna og Sigríðar eru
fjögur. Elstur er Björn Bjarna-
son (f. 1944) lögfræðingur.
Björn sver sig í ættina, þykir
ráðríkur og nokkuð einþykkur.
Hann hugði til frama í pólitík
eins og ættmenn hans margir
en tapaði fyrir Friðriki Sophus-
syni í frægum formannskosn-
ingum í Sambandi ungra sjálf-
stæðismanna árið 1973 og sner-
ist þá á aðrar brautir. Hann
var deildarstjóri og síðar skrif-
stofustjóri forsætisráðuneytis-
ins í tíð Geirs Hallgrímssonar
1974 til 1978 og var þá hægri
hönd hans, kunnugir sögðu að
hann hefði verið nákomnari og
haft meiri áhrif á Geir en
nokkur annar maður. Hann er
nú aðstoðarritstjóri Morgun-
blaðsins. Björn Bjarnason hef-
ur látið sig vestræna samvinnu
miklu varða og verið einn
helsti talsmaður NATO hér á
landi. Það er til marks um
hversu mikils álits hann nýtur
að hann hefur verið áheyrnarfulltrúi í
svokölluðum Bilderbergklúbb en í hon-
um eru áhrifamestu stjórnmálamenn og
fjármálajöfrar á Vesturlöndum.
Næst Birni er Guðrún Bjarnadóttir
(f.1946). Hún er gift Hrafni Þórissyni,
starfsmanni Atlantshafsbandalagsins í
Brússel. Þá kemur Valgerður Bjarnadótt-
ir (f.1950) viðskiptafræðingur. Hún þykir
hafa hinn pólitíska neista, er skapmikil
og sjarmerandi, og hafa margra augu
beinst að henni sem upprennandi stjörnu í þeim efnum en hún
hefur ekki enn sem komið er gefið sig að slíku svo heitið geti.
Maður hennar var Vilmundur Gylfason, alþingismaður, ráð-
herra og frumkvöðull og formaður Bandalags jafnaðarmanna.
Vilmundi auðnaðist á stuttri ævi að verða einhver litríkasti og
sérstæðasti stjórnmálamaður landsins. Sambýlismaður Val-
gerðar er Kristófer Már Kristinsson sem um hríð sat á þingi
fyrir Bandalag jafnaðarmanna. Þau eru búsett í Brússel.
Yngst er Anna Bjarnadóttir (f. 1955) blaðamaður, hún var gift
Porvaldi Gylfasyni hagfræðingi, bróður Vilmundar. Seinni
maður hennar er svissneskur blaðamaður og búa þau í Sviss.
SYSTURNAR - BLÖNDALAR OG ZOÉGAR
Auk þeirra Sveins, Péturs og Bjarna eignuðust Guðrún og
Benedikt fjórar dætur. Kristjana Benediktsdóttir (1910-1955)
var gift Lárusi H. Blöndal
mag. art. Hann var árið 1927
einn af stofnendum Heimdall-
ar en á kreppuárunum varð
hann félagi í Kommúnista-
flokki íslands og fór það mjög
á skjön við skoðanir mága
hans af Engeyjarætt. Þau
Kristjana eignuðust fimm börn
og þar á meðal þrjá syni sem
allir eru fyrirferðarmiklir og
áberandi í þjóðfélaginu eins og
þeir eiga kyn til. Börnin eru:
Benedikt Blöndal (f. 1935)
hæstaréttardómari, um langt
skeið einn virtasti lögfræðingur
landsins. Halldór Blöndal (f.
1938) alþingismaður fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn frá 1979. Hann
sver sig um margt í ættina, er
vel að sér í bókmenntum og
sögu, skörulegur í ræðustóli og
fornyrtur nokkuð sem Bene-
dikt afi hans. Halldór kom all-
mikið við sögu við stjórnarslit-
in 1988 og þykir líklegur til að
vaxa á næstu árum til frekari
áhrifa innan þingliðs flokksins.
Kristín Blöndal (f.1944) kenn-
ari, gift Árna Pórssyni barna-
lækni. Haraldur Blöndal
(f.1946) hæstaréttarlögmaður.
Hann hefur látið nokkuð að
sér kveða í stjórnmálum og
gegnt ýmsum trúnaðarstörfum
fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hann
er varaborgarfulltrúi í Reykja-
vík. Ragnhildur Blöndal (f.
1949), gift Knúti Jeppesen,
arkitekt í Reykjavík.
Ein dóttir þeirra Guðrúnar
og Benedikts dó ung en yngst-
ar eru tvíburarnir Guðrún Benediktsdótt-
ir (f. 1919) og Ólöf. Guðrún er gift Jó-
hannesi Zoega, hitaveitustjóra Reykja-
víkur frá 1962, áður forstjóra Landsmiðj-
unnar. Börn þeirra eru: Tómas Zoega
(f.1946) geðlæknir. Guðrún Zoéga
(f.1948) verkfræðingur, nýkjörinn for-
maður Sjálfstæðiskvennafélagsins Hvat-
ar en í stjórn þess hafa löngum setið
konur af Engeyjarætt. Hún er varaborg-
arfulltrúi í Reykjavík. Benedikt Jóhann-
Stórgerð lyndiseinkunn,
afburðadugnaður og greind
eru œttarfylgja
Engeyjarœttarinnar.
Ragnhildur Helgadóttir, fyrrum ráðherra, er sú
af Engeyjarætt sem hefur náð lengst á
stjórnmálasviðinu á eftir frænda sínum Bjarna
Benediktssyni. Ragnhildur er barnabarn
Kristínar Bjarnadóttur, hálfsystur
Engeyjarsystranna, sem gift var Helga
Tómassyni, geðlækni á Kleppi, sem varpaði
fram stóru bombunni 1930.
HEIMSMYND 41