Heimsmynd - 01.05.1989, Page 72
Kínverskur réttur á
Memories of China.
Humar að
kantónskum hœtti
með engiferi og
lauk. Þessum humri
er flogið ferskum frá
Maine-fylki á
austurströnd
Bandaríkjanna til
London tvisvar í
viku.
Kínversk veitingahús hafa undanfarið
tekið mið af þeirri þróun sem átt hefur
sér stað annars staðar. Æ fleiri staðir
leggja nú meira upp úr útliti en áður,
betri þjónustu og þægilegra umhverfi en
því hefur verið ábótavant á mörgum
stöðum í Soho þar sem þjónustan hefði
oft mátt vera betri. Af þessu leiðir að-
eins hærra verð en málsverðurinn verður
líka ánægjulegri. Rétt eins og Roux-
bræður eru þekkt nöfn á frönsku línunni
eru tveir kínverskir matreiðslumeistarar
í London sem þykja bera höfuð og herð-
ar yfir alla aðra. Annar er Mr. Kong,
sem rekur meðal annars veitingahús með
sama nafni, og hinn er Mr. Kenneth Lo
en hann bauð HEIMSMYND að borða á
tveimur veitingahúsum sínum, öðru á
Ebury Street og hinu við höfnina í
Chelsea.
Kenneth Lo er á áttræðisaldri. Hann
var þekktur tennisleikari og sjónvarps-
maður, hefur skrifað á fjórða tug mat-
reiðslubóka, rekur matreiðsluskóla í
London og hefur skrifað reglubundið um
kínverskan mat í fjölmiðla og fjallað um
hann í heimildamyndum og sjónvarpi
víða um heim. Hann kom frá Kína ungur
maður og stundaði háskólanám í Cam-
bridge. Um hríð var hann í utanríkis-
þjónustunni þar til hann sneri sér alfarið
að matargerð og stofnaði fyrsta veitinga-
stað sinn, Memories of China, í Belgra-
via fyrir áratug. Síðasta vor opnaði hann
annan stað undir sama nafni við Chelsea
Harbour.
Staðurinn í Belgravia er við 67 Ebury
Street, rétt hjá Viktoríubrautarstöðinni
og Buckingham Palace Road, enda stær-
ir Mr. Lo sig af því að gestir úr höllinni
líti stundum við hjá honum, þó ekki
drottningin sjálf. „Drottningin er ekkert
fyrir mat,“ segir Anne, bresk eiginkona
Lo. En hertogaynjan af Jórvík er hrifin
af kínverskum mat og hefur Lo bæði fært
henni bækur sínar og wok-pönnu sem
„hin slæma móðir, Fergie" (viðurnefni
bresku pressunnar), fikrar sig nú áfram
með. Memories of China á Ebury Street
er ekki mjög dýr staður þótt þangað sæki
margt frægt fólk (nýlega var þar Hussein
Jórdaníukonungur og Michael Caine er
tíður gestur en hann býr í næsta húsi við
veitingastaðinn í Chelsea). Staðurinn er
látlaus með hvítum múrsteinsveggjum og
kínverskri skrautritun á veggjum.
Matseðillinn er mjög fjölbreytt-
ur, a la carte og að auki er
hægt að fá sérvalinn matseðil
með nokkrum réttum fyrir
fjóra eða fleiri sem er sniðugt
þegar um austurlenskan mat
er að ræða. Mr. Lo bauð
okkur fyrst upp á stolt stað-
arins sem er humar fram-
reiddur að kantónskum hætti með engi-
feri og lauk. Þessi réttur er dýr miðað
við aðra en virði hvers pens. (21 pund á
meðan margir aðrir réttir kosta um 8
pund). Þessum humri er flogið ferskum
frá Maine-fylki á austurströnd Banda-
ríkjanna til London tvisvar í viku. Næst
brögðuðum við glóðarsteikt lamb að
mongólskum hætti sem er vafið í salat-
72 HEIMSMYND