Heimsmynd - 01.05.1989, Page 109

Heimsmynd - 01.05.1989, Page 109
ERU EYÐNIRANNSÓKNIR Á YILLIGÖTUM? Um aldamótin 1600 æddi sjúkdómur um Evrópu eins og eldur í sinu. Margir töldu hann eiga rætur að rekja til heimkomu Kólumbusar og áhafnar hans frá Haiti. Sjúkdómur þessi, sem breiddist út við kynmök, var heiftarlega bráður, smitandi og illkynja og leiddi marga til dauða á örfáum vikum eftir smit. Talið er að hann kunni að hafa fækkað íbúum Evrópu um allt að þriðjungi. Um það bil öld síðar hafði samt þetta bráðbanvæna form sjúkdómsins vikið og hann breyst í þá niðurbældu en landlægu sótt, sem við þekkjum í dag, þar sem hann ágerist smám saman með langvinnum mismunandi sjúkdómsstigum. Vegna hæfileika sjúkdómsins til að taka á sig gervi og einkenni annarra sýkla, vitnuðu læknar oft til hans, sem „dulgervingsins mikla“, en við þekkjum hann sem sárasótt (sýfilis). í þessum mánuði kemur út í London bókin The HIV- Myth eftir Jad Adams. í þeirri bók eru rakin á mjög sannfærandi hátt hin augljósu meinafræðilegu líkindi milli sárasóttar og eyðni. Þetta er heillandi og hrollvekjandi bók, sem ber brigður á kenninguna um hinn svokallaða eyðnigrunn, sem byggist á því að eyðni orsakist af mannlegri ónæmisbæklunarveiru (á ensku skammstafað HIV). Augljósasta röksemdin gegn því að HIV orsaki eyðni er sú, að sumir eyðnisjúklingar sýna engin merki um viðvist veirunnar. Læknar eru reyndar orðnir svo vanir þessu sjúkdómseinkenni, að aðeins sjö prósent sjúklinga eru látin undirgangast HIV mótefnapróf. Á hinn bóginn er heimurinn svo fullur af fullkomlega heilbrigðu fólki, sem ber HlV-veiruna í sér, en sýnir engin merki um að þróa með sér eyðni. Reyndar er kunnugt um fjölda tilfella þar sem HIV- veiran er áfram óvirk, enda þótt sjúklingurinn sé að dauða kominn úr eyðni. Þá er bent á að fjöldi eyðnitilfella í Englandi var einu þúsundi minni en spár gerðu ráð fyrir þrátt fyrir aukningu HlV-sýkingar. Höfundur bókarinnar, Jad Adams, sem er blaðamaður, skýrir svo frá að lítill en vaxandi hópur vísindamanna sé þeirrar skoðunar, að HlV-veiran sé af rangri gerð til að geta orsakað banvænan sjúkdóm. Afleiðing þessarar greiningarskekkju, segir hann, er sú að öllu rannsóknarfjármagni hefur verið beint að HIV og vanrækt að rannsaka aðrar mögulegar orsakir eyðni. Ein slík orsök, eða meðorsök, sem Adams heldur fram að gæti verið skyld eyðni er sárasóttin, en eitt höfuðeinkenni hennar er einmitt ónæmisbæling. Eyðnihrörnun líkist mjög taugasárasótt. Húðsár vegna sárasóttar eru óþekkjanleg frá húðkrabbasárunum í Kaposis Sarcoma (Kaposi lýsti fyrst því ástandi húðar, sem ber nafn hans, hjá hópi sárasóttarsjúklinga). Þar að auki, segir Adams, gæti verið um að ræða uppsafn ómeðhöndlaðra sárasóttartilfella í samfélagi samkynhneigðra (þar sem eyðnitilfelli eru fjórtán sinnum tíðari en annars staðar). Svo er að sjá, að sárasótt þurfi mun lengri meðferð með mun stærri lyfjaskömmtum en hingað til hefur verið talið; og með þessum hætti gæti stökkbrigði sárasóttarsýkilsins hafa náð að þróast og breiðast út, að því er Adams heldur fram. Sumir eyðnisjúklingar hafa sýnt batamerki með fúkkalyfjagjöf (óhugsandi ef eyðni stafaði af sannri veiru) og Adams heldur fram að brýn þörf sé á rannsóknum á sambandinu milli þessa tvenns, auk mögulegra annarra orsaka til eyðni en af veiruvöldum.D ARÐBÆR KVENNABARÁTTA Viðskipti eru viðskipti“ er alþjóðlegt kjörorð kaupsýslumanna og þýðir, að í þau blöndum við hvorki ást, vináttu, pólitík, trúarskoðunum né nokkru Líkan af HIV- einingunni byggt á rannsóknum vísindamanna. því sem er viðskiptunum sjálfum óviðkomandi. Þannig voru hugkvæmir kaupsýslumenn fljótir að finna út að markaðssetja mátti byltingarhreyfingu unga fólksins 1968 á margvíslegan hátt: Framleiða fatadruslur með litlum tilkostnaði og selja með drjúgri álagningu, skyrtuboli og plaköt með byltingar- og friðarslagorðum, byltingarsöngva á plötum að því ógleymdu að sjá æskulýðnum fyrir hassi, sýru og öðrum efnum, sem lyftu þeim upp úr gráum hversdagsleikanum inn í fyrirheitna landið. Nú eru að spretta upp úr kvennabaráttunni margvísleg viðskipti, sem ekki eru endilega einskorðuð við konur. Eitt sem konur hafa fundið sjálfum sér til foráttu er skortur á sjálfstrausti í heimi karlaveldisins. Það er því fyrsta verk kvennasamtaka víða um heim að halda sjálfseflingarnámskeið fyrir konur. Evelyn Thurmond, sem sótt hafði slíkt námskeið í London, sá í hendi sér, að karlinn hennar hefði ekki síður gott af að lappa upp á sjálfstraustið. Og ásamt nokkrum námskeiðssystrum kom hún á fót sjálfstraustsnámskeiði fyrir karla og fljótt kom í ljós að eftirspurnin var gífurleg. Hér er tækifærið, konur: Eftir að hafa lært að auka sjálfstraust ykkar í heimi karlaveldisins getið þið skapað ykkur atvinnu við að auka sjálfsöryggi karla, sem eru í rusli eftir vaxandi innrás kvenna á fyrri yfirráðasvið þeirra.D HEIMSMYND 109
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.