Heimsmynd - 01.09.1989, Blaðsíða 16
Ieinn tíma, þegar konur voru meira
þústaðar á mannamótum, svo sem
dansleikjum, en þær eru nú, var
stundum tilkynnt um dömufrí. Gátu
þá konur sjálfar ráðið því við hverja
þær dönsuðu. í dömufríi völdu þær
eins og þeim sýndist og þurftu ekki
kurteisinnar vegna að dansa við
sömu karlhrútana lengi nætur væru
þeir komnir með gras í skóna. Og sumt
af því sem ort hefur verið í danslagatexta
fjallar einmitt um það forræði fyrir kon-
um sem karlar tóku sér um aldir, saman-
ber þessi laglega
orðaða stuna úr
óvissunni: Guð má
vita hvar ég dansa
næstu jól.
Nú þegar konur
eru komnar í dans
stjórnmálanna, þetta
rosalega stóra
sveitaball, þar sem
ýmist er grátið út undir vegg út af skött-
um, eða sopið á glasi upp á tvo þriðju
kostnaðar eins og þeir sem sitja veislur í
Mexíkó, halda þær uppi merki hinna
mjúku mála, sem er ekki í rauninni pólit-
ík eins og við þekkjum hana, heldur
einskonar rórill yfir prjónum. Karl-
rembusvínin skilja ekki mjúk mál yfir-
leitt, ekki frekar en þeir skildu dömufrí-
ið sem þeim fannst skerðing á rétti
þeirrá til að þústa konur. Og að öllu fara
konur öðruvísi að í pólitik en karlar.
Þann L september, þegar dömufríið
byrjaði að nýju á Alþingi, hefur orðið sú
breyting á þingliði Kvennalistans að
Anna Olafsdóttir Björnsson, sagnfræð-
ingur, tekur sæti Kristínar Halldórsdótt-
ur, fyrrum blaðamanns og ritstjóra, en
nú þingmanns og húsfreyju, samkvæmt
fyrri ákvörðun um útskipti á þingmanna-
liði Kvennalistans. Tekst þeim með
þessu móti að „fjölga á toppnum“, eins
og það heitir, því varla hættir Kristín í
kvennapólitíkinni, en manni skilst að
hún hafi verið orðin sérfræðingur
Kvennalistans í ríkisfjármálum. Anna er
það kannski líka, en það veit ekki undir-
ritaður enda aldrei setið við að prjóna.
Stjórnmál eru í eðli sínu tvíþætt: I
fyrsta lagi eru þau flókin mál sérfræðinga
og þeirra sem hverju sinni fara með völd
í landinu. Að hinu leytinu eru þau hið
almenna tal, þegar maðurinn eða konan
á götunni segja álit sitt án þess að hafa
undir höndum nokkrar þær forsendur,
sem gerir hinum áðurnefnda flokki
manna auðveldara að taka ákvarðanir og
móta sér skoðanir. Þegar Kvennalistinn
kom til sögunnar þurfti enginn að efast
um góðan vilja frambjóðenda á listan-
um. Þeim tókst að sveigja umræðu um
sjónarmið bundin félagshyggju út úr fari
kreddukenninga þar sem málum var í
gadda slegið og draga úr áhrifamætti
þeirra flokka, sem sátu í fleti fyrir eins
og þeir væru einkarétthafar sósíalisma.
Aftur á móti ber tal þeirra á Kvennalist-
anum stundum keim af tali mannsins á
götunni um pólitík, og það notfærðu sér
þeir sem töldu sig „vana rnenn".
Fylgisaukning Kvennalistans hefur
verið með nokkrum ólíkindum, einkum
þegar hann taldist hafa nítján prósent
fylgi og þar yfir í skoðanakönnunum.
Tregða þeirra kvennanna við að taka
þátt í stjórnarmyndun virtist ekkert
trufla fylgið, þótt ljóst sé að flokkar hafa
ekkert að gera í pólitík annað en freista
þess að ná völdum til að geta haft áhrif
samkvæmt stefnumiðum. Þessa megin-
reglu hefur Kvennalistinn gefið lönd og
leið, að því er virðist með ágætum ár-
angri, þótt ekki verði vart áhrifa þeirra í
stjórnarandstöðu. Þessi pólitíska patt-
staða virðist láta þeim vel, en talið er að
nú hafi listinn um fimmtán prósent fylgi.
Síðan taka þær Kvennalistakonur til
við að leika sér og láta nú yfir okkur
ganga skiptingar á þingmönnum með
sama hætti og skipt er á þreyttum liðs-
mönnum í boltaleikjum fyrir óþreytta.
Komið hafa fram þær skoðanir, að þing-
menn geti ekki sett menn í staðinn fyrir
sig með þeim hætti sem Kvennalistinn
gerir. En þær munu sigrast á þeirri mót-
báru. Kristín Halldórsdóttir hættir og
Anna Olafsdóttir Björnsson tekur við af
henni. Síðan mun Guðrún Agnarsdóttir
leika sama leikinn, því miðað við þing-
setuergið í karlkyninu verður afbrigði
Kvennalistans að teljast leikur. Þannig
spilar þingmannalið Kvennalistans af
fingrum fram á Alþingi, eilítið mjúkar,
fullar af samúð með smælingjum og jafn-
vel hvölum, svolítið grænar í aðra rönd-
ina en fyrst og fremst hissa á vonsku
heimsins, sem hefur verið svona eins
lengi og elstu menn muna. Dömufríið á
Alþingi heldur áfram þrátt fyrir þá
óvenjulegu skiptingu sem átti sér stað 1.
september.D
Kvennalistakonur láta nú yfir okkur ganga
skiptingar á þingmönnum með sama hætti
og skipt er á þreyttum liðsmönnum í
boltaleikjum.
16 HEIMSMYND