Heimsmynd - 01.09.1989, Blaðsíða 56
Straumsvík og löngum síðar. Hann leiddi til dæmis íslensku
viðræðunefndina í álmálinu svokallaða 1983 og sat þá löngum
fundi í London og Zurich milli þess sem hann skaust heim til
þess að ráða ríkisstjórninni heilt í stjórn hinna erfiðu efna-
hagsmála.
Jóhannes er mörgum ráðgáta en flestir telja hann ljón-
greindan, metnaðargjarnan og ráðríkan. Hann þykir klókur
að fara með tölur og greina aðalatriðin
frá hisminu. Fáir ríða feitum hesti frá
viðureign við hann um reiknikúnstir og
hagfræðikenningar. Hann á auðvelt með
að láta aðra vinna fyrir sig og ræður þar
nokkru geysimikið átórítet. Hann er veg-
lyndur í samskiptum við menn en kon-
unglegt fas hans heldur fólki í vissri fjar-
lægð frá honum. Hann er sagður hakka
bankastjóra í sig án þess að brýna
nokkru sinni róminn. í föðurlegum um-
kvörtunartón les hann þeim pistilinn svo
þeir vilja helst sökkva á kaf í dúnmjúk
bankastjórateppin. En það gerist víst
ekki oft. Yfirleitt er hann þægilegur í
umgengni og flestir telja hann ljúfmenni
hið mesta. Líkt og Sigurður faðir hans
tekur Jóhannes fólk með trompi og
sjarma. Honum lætur vel að láta aðra
vinna fyrir sig en er sjálfur hamhleypa til
verka. Hann á aðgang að mörgum
stærstu bönkum heims og það traust sem
hann hefur aflað sér þar er ómetanlegt
fyrir lánstraust íslendinga. Hann er
sagður eini Islendingurinn sem nýtur þess trausts í alþjóðleg-
um fjármálaheimi að orð hans gilda svo sem um skriflegan
samning væri að ræða. Steingrímur Hermannsson forsætisráð-
herra sagði eitt sinn að Jóhannes vildi ráða miklu enda fylgdi
það mönnum með ákveðnar skoðanir. Hann afgreiddi mál og
kæmi þeim frá en frestaði þeim ekki endalaust eins og sumir
aðrir. Samstarfsmaður segir hann kjarkaðan í starfi sínu. Það
fylgdi því að vera formaður bankastjórnar Seðlabankans að
eiga við margs konar og ólíkar ríkisstjórnir og ráðherra. Hann
ætti mjög gott með að flytja mál sitt við hvern sem væri og fá
menn til að hlusta. Það byggðist meðal annars á yfirburða-
þekkingu hans og sérstökum hæfileikum til að setja mál sitt
fram á einfaldan og auðskiljanlegan hátt. Hann brysti aldrei
kjark til að segja afdráttarlaust skoðanir sínar.
A yngri árum mun Jóhannes hafa staðið nærri krötum í
stjórnmálum en á seinni árum má helst kalla hann frjálslyndan
íhaldsmann. Hann hefur verið gagnrýndur fyrir að hafa trú á
of mikilli miðstýringu en sjálfur segist hann vera talsmaður
aukins markaðsbúskapar.
Stjórnmálamenn hafa stundum látið stór orð falla um Jó-
hannes. Eitt sinn sagði fyrrverandi ráðherra að tími væri kom-
inn til að leiða í ljós hver ætti að stjórna landinu, ríkisstjórnin
eða Seðlabankinn. Og fræg eru ummæli Jóns Baldvins Hanni-
balssonar á sínum tíma sem sagðist mundu láta verða sitt
fyrsta verk að reka Jóhannes Nordal ef hann kæmist til valda.
Öllu þessu tekur Jóhannes Nordal með yfirveguðu jafnaðar-
geði og rósemi og situr sem fastast. Almenningur lítur nánast
á hann sem stofnun.
Rétt eins og Sigurður Nordal var the grand old man í ís-
lenskum fræðum er Jóhannes nú orðinn the grand old man í
íslensku efnahagslífi. Báðir hafa þeir drottnað yfir umhverfi
sínu með afburðagreind, þekkingu og persónutöfrum. Það er
hið nordælska páfadæmi. í stjórnarkreppunni 1980 áður en
Gunnar Thoroddsen myndaði stjórn sína var tilbúin utan-
þingsstjórn með Jóhannes Nordal í forsæti. Það sýnir í hnot-
skurn hvers álits hann nýtur.
Þó að Jóhannes sé fyrst og fremst á kafi í efnahagsmálum
eru áhugamál hans víðfeðm. Úr foreldrahúsum hefur hann
erft ríkan áhuga á bókmenntum og hugvísindum. Hann hefur
verið forseti Hins íslenska fornritafélags, formaður útgáfuráðs
Almenna bókafélagsins og í stjórn hugvísindadeildar Vísinda-
sjóðs og á yngri árum var hann ritstjóri bókmenntatímaritsins
Nýs Helgafells. Líkt og faðir hans og afi, sem hann er skírður
eftir, er hann hrókur alls fagnaðar í vinahópi, fer jafnvel með
eigin skáldskap, og veiði og útivera eru eftirlæti hans.
Kona Jóhannesar Nordals er Dóra
Guðjónsdóttir píanóleikari. Hún er dótt-
ir Guðjóns Ó. Guðjónssonar prentara og
bókaútgefanda, eiganda Prentsmiðju
GuðjónsÓ. Það er kannski engin tilvilj-
un að sú prentsmiðja prentar tékkahefti
fyrir flesta banka landsins og ríkisskulda-
bréf fyrir ríkisstjórnina. Börn þeirra eru
Bera Nordal listfræðingur, forstöðumað-
ur Listasafns íslands, gift Sigurði Á.
Snævarr hagfræðingi hjá Þjóðhagsstofn-
un, Sigurður Nordal rekstrarfræðingur,
forstjóri Prentsmiðju GuðjónsÓ, sem sit-
ur nú ættarsetrið á Baldursgötu 33, Guð-
rún Nordal, doktor í miðaldabókmennt-
um frá Oxford, gift Ögmundi Skarphéð-
inssyni arkitekt, Salvör Nordal, BA í
heimspeki, í sambúð með Árna Þórar-
inssyni blaðamanni á Morgunblaðinu,
Ólöf Nordal laganemi og Marta Nordal
nemi.
TÓNSKÁLDIÐ
Yngri bróðirinn, Jón Nordal, hefur
framhald á bls. 105
D
Uáðir hafa drottnað
yfir umhverfi sínu með
afburðagreind,
þekkingu og
persónutöfrum. Það er
hið nordælska
páfadæmi.
56 HEIMSMYND