Heimsmynd - 01.09.1989, Blaðsíða 36
Landlæknir Bandaríkjanna hefur ráðlagt mönnum að búast ekki við virku bóluefni gegn alnæmi á þessari öld.
[kki eru nema ein tíu ár síðan
menn töldu smitsjúkdóma vart
lengur teljandi ógnun við tækni-
þróuð vesturlönd. Þeirra kross
væri einkum illkynja æxli,
hjartamein og hrömunarsjúk-
dómar. En nú er upp kominn
sjúkdómur sem hefur feykt þess-
ari spilaborg um koll.
Árið f981 varð þess vart í
Bandaríkjunum að kvillar, sem
áður voru afar fágætir, voru að
breiðast úr meðal samkynhneigðra
karla. Sammerkt þessum sjúkdómum var
að þeir voru áður þekktir hjá fólki sem
haldið var veilum í náttúrlegu varnar-
kerfi líkamans, ónæmiskerfinu.
Brátt fór lækna að gruna að um áður
óþekktan smitsjúkdóm væri að ræða.
Samanburður á sýktum og ósýktum
hommum, en annars sambærilegum,
benti til að þeir sýktu skæru sig úr um
fjöllyndi í kynlífi. Brátt þóttust menn
geta rakið ný tilfelli veikinnar gegnum
samkynja kynmök við áður sýkta karla.
Lokastig sjúkdómsins, sem jafnan
dregur menn til dauða, hlaut á ensku
nafnið AIDS, Acquired Immunodef-
iciency Syndrome, sem fyrst var á ís-
lensku útlagt áunnin ónœmisbœklun en
fékk síðan þjálli heiti, eyðni og alnæmi.
Heilbrigðisyfirvöld hafa tekið upp síð-
arnefnda heitið, og mun ég nota það.
Árið 1982 varð alnæmis vart meðal eit-
urlyfjaneytenda, sem deildu sprautum
með öðrum, og hjá mönnum sem þegið
höfðu blóð eða blóðafurðir en höfðu
ekki unnið til smitunar með öðrum
hætti. Að meðaltali liðu ein tvö ár milli
blóðgjafar og fyrstu sjúkdómseinkenna,
og ævinlega mátti rekja að minnsta kosti
eina blóðgjöf til homma eða eiturlyfja-
sprautanda.
I janúar 1983 voru í Bandaríkjunum
skráð tvö tilvik af alnæmissmiti hjá kon-
um sem bjuggu með körlum sem tóku
eiturlyf í æð. Þar með var ljóst að sjúk-
dómurinn getur smitast sem kynsjúk-
dómur, jafnt meðal samkynhneigðra sem
gagnkynhneigðra, og með blóði sem
berst milli manna. Síðan hefur komið í
ljós að fóstur eða nýburar smitaðra
mæðra geta sýkst á meðgöngutíma, við
fæðingu eða með móðurmjólkinni.
Blóðblöndun við sýktan einstakling
getur valdið sýkingu, til dæmis ef hjúkr-
unarfólk stingur sig á sprautunálum sem
sjúklingar hafa notað.
Þar með eru upptaldar þekktar smit-
leiðir sjúkdómsins. Engin dæmi eru um
það að skorkvikindi sem sjúga blóð færi
alnæmi milli manna.
Dagleg samskipti við alnæmissjúklinga
virðast ekki vera smitandi. I rúmlega tvö
þúsund tilvikum, sem skráð voru í
Bandaríkjunum, þar sem hjúkrunar-
starfslið komst með húð eða slímhúð í
snertingu við blóð eða aðra líkamsvökva
alnæmissjúklinga, smitaðist enginn.
Luc Montagnier og samstarfsmenn
hans við Pasteurstofnunina í París ein-
angruðu snemma árs 1983 veiru sem
36 HEIMSMYND
eftir ÖRNÓLF THORLACIUS