Heimsmynd - 01.09.1989, Blaðsíða 110
/
Aratugur...
framhald af bls. 14
maðurinn skyggði á hann. Þorsteinn
liggur ekki á þeirri skoðun sinni að Dav-
íð vilji taka við. Hann hefur hins vegar
hvergi fullyrt að Davíð muni taka við.
Nokkrir þingmanna Sjálfstæðisflokks
eru mjög óánægðir með núverandi for-
ystu. Eyjólfur Konráð Jónsson hefur
sagt að hann vilji ekki láta þessa drengi
komast upp með að eyðileggja flokkinn.
Annar þingmaður sagði að með þessa
forystu gagnaði fyrirsjáanleg fylgisaukn-
ing flokknum lítið. Þetta vita bæði Þor-
steinn og Friðrik og væru því tilbúnir til
að skella skuldinni hvor á annan.
Þorsteinn Pálsson vill ekki ganga að
Friðriki Sóphussyni og segja honum að
hans nærveru sé ekki æskt lengur. Hann
vill heldur ekki eiga beint frumkvæði að
því að ota einhverri konu fram í slaginn.
Hann hefur nefnt nafn Katrínar Fjeld-
sted í nánum hópi, en telur í sömu mund
að tíminn til landsfundar sé of skammur
til að byggja upp stuðning við ákveðna
konu.
Þorsteinn Pálsson hefur lagt það til, að
konur skipi þriðja sæti á öllum listum
flokksins. Davíð Oddsson mun vera and-
vígur slíku kvótakerfi. Davíð er hins veg-
ar sagður myndu vilja losna við Katrínu
Fjeldsted úr borgarstjórn og það vilja
víst aðrir sjálfstæðismenn í borgarstjórn
líka. Einhveijir þeirra myndu vilja sjá á
eftir henni út í landsmálapólitíkina svo
hún væri ekki fyrir þeim á listanum í
Reykjavík. Þó virðist borgarstjóra ekki
finnast meira en svo til þeirra koma sem
skipa listann, að ef hann ætti að velja sér
eftirmann á næstu vikum mundi hann
leita út fyrir listann. Þær kenningar eru í
gangi að Davíð Oddsson hyggist jafnvel
bjóða sig fram til varaformanns og síðan
fara á fullt í næstu þingkosningar, en til
þess að framboðið verði tekið alvarlega
þurfi hann að sýna fram á arftaka sem
hann muni byggja upp fram að borgar-
stjórnarkosningum í vor. Arftakinn, sem
nefndur er í þessu sambandi, er Olafur
B. Thors.
Hvað Davíð gerir veit enginn, en
margir bíða spenntir. Það sýnir áruna í
kringum þann mann. Umdeildur er hann
og ráðríkur, hrokafullur að margra mati
en foringi að sama skapi. Davíð Odds-
son veit vel að það er stórt skref fyrir
hann að stíga að fara inn á svið lands-
málanna. Hann veit að forveri hans Geir
Hallgrímsson var jafnvel enn vinsælli
sem borgarstjóri áður en hann varð ráð-
herra. Davíð Oddson hefur einnig velt
því fyrir sér hvernig honum gengi að
vinna með Jóni Baldvini Hannibalssyni,
Ólafi Ragnari Grímssyni og Steingrími
Hermannssyni. Davíð nýtur mikils
stuðnings innan valdakerfis Sjálfstæðis-
flokks. Er það tilviljun að Morgunblaðið
virðist gera meira úr hjólastólaævintýri
hans en efnahagstillögum Þorsteins Páls-
sonar?
Davíð hefur horft upp á Þorstein vin
sinn Pálsson eiga afar erfiða daga. En
enginn verður óbarinn biskup. Bæði
hann og margir aðrir tala um, að Davíð
hefði nú brugðist öðruvísi við ýmsum
erfiðum aðstæðum sem Þorsteinn hefur
staðið frammi fyrir. Hafi Davíð verið
heitur undanfarið og hugsi hann sér til
hreyfings, hefur það án efa haft áhrif á
hann að Þorsteinn haggast ekki nú. Þor-
steinn ætlar ekki að gefa þumlung eftir.
Hann ætlar sér eitt tækifæri enn og sumir
hallast að því að landsfundurinn verði
ein hallelúja samkunda þar sem í mesta
lagi verði gerðar einhverjar breytingar á
kjöri í miðstjórn. Það getur allt gerst
fram að landsfundi. Hugsi einhverjir sér
til hreyfings, Davíð meðtalinn, kemur
það líklega ekki í ljós fyrr en á síðustu
stundu.
Þeir eru til sem segja að Davíð gæti
hirt flokkinn þegar honum sýndist. Það
er samt einn maður sem stendur í vegin-
um fyrir honum nú og sá er Þorsteinn
Pálsson. Áratugur strákanna er ekki lið-
inn en öld óvissunnar er framundan.D
VIÐBÓTARHAR
sem er sérhannað fyrir þig.
Þú syndir, þværð þér um hárið þurrkar
það og greiðir - svo eðlilegt sem þitt
eigið hár.
RAKARA- OG HÁRGREIÐSLUSTOFAN
HRINGBRAUT119 S 22077
110 HEIMSMYND