Heimsmynd - 01.09.1989, Blaðsíða 82
framkvæmda, mesta kúnstin er að hemja
sig. Það er svo smekksatriði hvort fólk
hemur sig á réttum stöðum eða of lítið.“
Það hlýtur að hafa verið erfitt fyrir
Ragnhildi að koma inn í þessa stráka-
klíku, en hún gerir lítið úr því: „Þetta
þróaðist svona af sjálfu sér eftir að við
Jakob gerðumst kærustupar og ég varð
aldrei vör við nein mótmæli frá hinum.
Það eina sem var erfitt var að ég náði
ekki uppí þessa hæfni hjá þeim, en féll
samt ágætlega inní húmorinn. Eg ólst
upp með strákum og kann að umgangast
þá, hef enga vanmetakennd gagnvart
þeim eða fólki yfirleitt. Ég held að það
sé vanmetakenndin sem gerir það að
konur verða oft undir í karlahóp. Auð-
vitað eru þetta óttalegir egóistar og ég
varð að beijast fyrir mínu til að ná full-
um hlut, en það verður maður víst alltaf
að gera.“
— rosm i
Og Ragnhildur lítur svo sannar-
lega út fyrir að vera fullfær um
að halda sínum hlut gagnvart
hverjum sem er. Hún situr á
móti mér við geysistórt borð-
stofuborðið á heimili þeirra
Jakobs í grænmynstruðum
silkikenndum afanáttfötum,
með svarta hárið í tagli uppi á höfðinu,
sérstök og glæsileg að vanda, hlýleg og
brosandi, en jafnframt svo ákveðin og
afgerandi að ég myndi treysta henni til
að hafa sigur í baráttu við hvern sem
væri. Hún og Jakob eru ekki gift en „við
köllum okkur oft popphjón, svona eins
og Ellý og Svavar og Svanhildur og
Gaukur, þú veist það er þessi húmor-
inn.“ Hún hefur látið hafa það eftir sér
að hún myndi aldrei taka í mál að búa
með poppara ef hún væri ekki þátttak-
andi sjálf og ég spyr hana hvort þessi
heimur sé svo fullur af freistingum að
hún myndi ekki treysta manninum ef
hún sæti heima.
“Nei, það er ekki það. Þetta er bara á
sama grunni og að ég gæti aldrei hugsað
mér að vera gift sjómanni. Það er ekki
vegna þess að líf popparans sé fullt af
kynsvalli, fylleríi og dópi, ég vil bara fá
að vera með í þessum heimi, vera þátt-
takandi. Það er fullt af stelpum sem þyk-
ir ofsalega spennandi að lenda í sam-
bandi við poppara, en sitja svo heima
leiðar og sárar þegar þeir eru að ferðast
og taka upp á því að reyna að fara að
breyta lífi þeirra. Það gengur ekki. Það
heíur oft eyðilagt stemmninguna í bönd-
um þegar konurnar ætla að fara að
skipta sér af. Þær verða annað hvort að
sætta sig við þetta líf eins og það er eða
sleppa því.“ Ég spyr hana hvort konur
hinna Stuðmannanna séu þá ekki sárar
út af því að hún sé þátttakandi í þessum
heimi sem þeim sé lokaður, en hún segir
svo ekki vera: „Þær hafa þroska til að
skilja þetta líf og meðtaka það. Þetta eru
greindar konur. Ég hef oft fundið slæma
strauma frá eiginkonunum í öðrum
böndum sem ég hef verið í, einhverja af-
brýðisemi út í mig sem var algjörlega
ástæðulaus, en ég hef aldrei fundið fyrir
því frá Stuðmannakonunum. Kannski af
því að við Jakob erum saman.“
Kjaftasögur eru leiðinlegur fylgifiskur
frægðarinnar og ein af þeim kjaftasögum
sem gengið hafa um Ragnhildi er að hún
hafi eyðilagt hjónaband Jakobs og Önnu
Björns á meðan á tökum myndarinnar
Með allt á hreinu stóð. „Það er algjör
della. Anna og Jakob voru búin að vera
skilin í meira en ár áður en við svo mikið
sem kysstumst í fyrsta skipti. Við tókum
ekkert eftir hvort öðru þegar við vorum
að vinna í Með allt á hreinu, enda vissi
ég ekki betur en að maðurinn væri harð-
giftur. Nei, ég kippi mér ekkert upp við
svona kjaftasögur. Sumar koma sér auð-
vitað illa fyrir mann, en ég bara hlæ að
þeim. Ef maður tæki slíkt nærri sér væri
maður löngu hættur. Hitt hefur hins veg-
ar oft vakið furðu mína hvernig í ósköp-
unum sumar sögur komast af stað, það
get ég alls ekki skilið."
Hinir Stuðmennirnir sögðu spila-
mennskuna taka sinn toll af heimilislíf-
inu en hvernig heimilislíf er það þegar
bæði eru í þeim bransa? Ragnhildur
þekkir ekki annað, en segist ekki vita
Lumma, Grýla,
Gæra, Stuðmaður,
Ragnhildur
„þorskalýsi"
hljómsveitarinnar.
82 HEIMSMYND
Wr' • ■
1
l1 . íf
-'M m