Heimsmynd - 01.09.1989, Blaðsíða 66
[iríkur fer ekki dult með aðdáun
sína á Davíð Oddssyni í samtali
við HEIMSMYND. Hann telur
hann einn mesta stjórnmálaskör-
ung samtíðarinnar og segir að
ekkert annað en eitthvert stór-
kostlegt slys geti komið í veg fyrir
að þessi maður verði leiðtogi
þjóðarinnar.
Bók Eiríks Jónssonar ber und-
irtitilinn: Þetta er sagan um Davíð
Oddsson, lœknissoninn og skáld-
ið sem lagði höfuðborgina að fótum sér.
Sjálfur er Eirikur sonur Jóns Þorsteins-
sonar læknis en hvort hann leggur höfuð-
borgina að fótum sér með þessu verki er
önnur saga.
„Eg var beðinn að skrifa allt aðra bók
upphaflega um efni sem mér leist ekkert
á. Önundur Björnsson útgefandi hafði
samband við mig þegar ég hætti sem
fréttastjóri á Stjörnunni síðastliðinn vet-
ur og kom með ýmsar uppástungur. Þeg-
ar nafn Davíðs Oddssonar bar á góma,
greip ég þá hugmynd á lofti. Eg held að
Önundur hafi samt búist við allt öðruvísi
bók.
Eitt sinn rakst ég á bók í flugvél sem
bar titilinn The Life and Story of Frank
Sinatra. Hana hafði ég í huga þegar ég
hóf verkið um Davíð Oddsson. Upphaf-
lega var talað um að þetta yrði viðtals-
bók. Agætur maður hefur bent á, að í
þeim aragrúa viðtalsbóka sem út komi á
íslandi árlega, sé skrásetjarinn flaðrandi
upp um viðmælandann eins og hundur.
Útkoman er misjöfn en sagan er sögð
eins og viðmælandinn túlkar hana sjálf-
ur.
DAVIÐ
LÍFOG
SAGA
Þetta er sagan um Davíð Oddsson,
lœknissoninn og skáldið sem lagði
höfuðborgina að fótum sér.
Hér er tæpast um ævisögu að ræða þar
sem Davíð Oddsson er rétt rúmlega fer-
tugur. Þó vildi ég hafa hann með í ráð-
um, sérstaklega í lokaskrifum bókarinn-
ar og hófst því ekki handa fyrr en Davíð
kom aftur frá Japan þar sem hann var í
nokkrar vikur síðastliðið vor. Þegar ég
hitti hann á skrifstofu hans sagði hann
mér að tvö bókaforlög væru þegar búin
að hafa samband við hann í því skyni að
gefa út viðtalsbók. Ég sagði honum strax
að þetta yrði engin viðtalsbók. Heldur
yrði þetta einhvers konar Life and Story
of Frank Sinatra. Hann skildi um leið
hvað ég var að fara. Sagðist ekki vilja
neina ævisögu fyrr en hann væri orðinn
sextugur en benti á að sem lögfræðingur
vissi hann vel, að hann gæti ekki stöðvað
þessa bók. Hún yrði bara að vera mitt
mál. Ég spurði hann hvort ég mætti hafa
samband við hann síðar. „Ég tek á móti
öllurn“, svaraði hann og leit ég á það
sem grænt ljós.
Á þessum fyrsta fundi okkar tjáði
Davíð mér að ég hefði verið á svörtum
lista hjá honum vegna fréttaskrifa minna
í DV. Hann tilkynnti símastúlkunni sinni
að ef Eiríkur Jónsson hringdi þá væri
hann ekki við. Hann sagði að fréttaskrif
mín hefðu verið andstæð sér. Fleiri virð-
Vorið 1947 brá ung kona úr Hafnarfirði sér í heimsókn til foreldra
sinna, læknishjónanna á Selfossi. Ingbjörg Lúðvíksdóttir var eiginkona
Snorra Björnssonar bókara og saman áttu þau son á þriðja ári. Á Sel-
fossi var starfandi ungur aðstoðarlæknir, Oddur Ólafsson og eigi má
sköpum renna, læknisdóttirin og ungi aðstoðarlæknirinn felldu hugi
Draumar hans um
erlendis
saman. Hún var 25 ára og hann 33 ára.
Kalda janúarnótt árið 1948 í Hlíðahverfinu í Reykjavík, þegar sjómenn í
Vestmannaeyjum treystu sér ekki á sjó af því að barómeterinn var óhag-
stæður, fæddist Davíð Oddsson.
Ingibjörg hafði skilið við Snorra Björnsson og eftir fæðingu Davíðs
reyndu hún og Oddur að hefja sambúð, sem ekki gekk upp. Eftir það
stóð Ingibjörg uppi ein með syni sína tvo. Fluttist hún til foreldra sinna á
Selfossi með eldri soninn og Davíð tveggja mánaða. Þar
dvöldust þau næstu sex árin. Afi Davíðs, Lúðvík
Norðdal héraðslæknir, gekk honum í
66 HEIMSMYND