Heimsmynd - 01.09.1989, Page 26

Heimsmynd - 01.09.1989, Page 26
Konur af þessari kynslóð eru síðast en ekki síst afsprengi jafnréttisbarátt- unnar. Flestar þeirra eru þó aldar upp við fyrirmyndina af hinni heimavinn- andi húsmóður. Þar af leiðandi eiga þær einnig í innri baráttu þegar kemur að heimilishaldi og börnum. Þá vaknar spurningin um það hvort eiginmenn af þessari kynslóð séu öðruvísi en eigin- menn af fyrri kynslóðum. Flestir hafa verið upplýstir um jafna ábyrgð í barnauppeldi en rannsóknir sýna að þeim finnst þeir ennþá vera að hjálpa til. Þeir eru að passa börnin af því að . . . Konurnar eru einfaldlega með börnunum sínum. Þær eru aldrei að passa börn- in af því að . . . Enda hefur það margsinnis komið á daginn að maðurinn held- ur sínum starfsframa áfram en konan fœr sér vinnu þótt bæði hafi þau oft sömu menntun að baki. Flest ung hjón taka börnin sín með í sumarfrí vegna þess hve lítinn tíma þau hafa haft með þeim allt starfsárið. Af þessu leiðir að hjón eru sjaldnast tvö ein. Það hefur komið á daginn að hjónaskilnaðir í Bretlandi eiga sér helst stað eftir sumarleyfi. Fólk hefur gert sér væntingar um að ná saman í sumarfríum en þegar þar að kemur uppgötvar það fjarlægðina á milli sín sem oft endar með fyrrgreindum hætti. Sápuóperur eru sjaldnast til að taka alvarlega. Þótt sjónvarpsþátturinn Á fertugsaldri sé óneitanlega miðaður við amerískar kringumstæður nýtur hann ekki síður vinsælda hinum megin við Atlantshafið. Sú kynslóð sem hér náði því að verða nær fimmtíu þúsund, er í Bandaríkjun- um á sama tíma um sextíu milljónir og rúmar tíu milljónir í Bretlandi. Þetta er ekkert smáhlut- fall af íbúafjöldanum. Við það bætist sú staðreynd að stór hluti þessa hóps eru konur og mæður sem ryðjast út á vinnumarkað- inn. Slagurinn er harðari en nokkru sinni fyrr. í umræddum sjónvarps- þætti er fjallað um líf venjulegs miðstéttarfólks á þessum aldri þótt umbúðirnar séu ívið glæsilegri en í hversdagslífinu. Aðalpersónan Hope er sýnd þramma upp og niður stigann með pela handa barninu sínu og drykkjarföng fyrir veikan eiginmann. Engin venjuleg kona er í þessu hlutverki íklædd rúskinnsstígvélum og Armanifötum. Astæðurnar fyrir vinsældum þáttarins eru hins vegar þær, að vandamálin sem unga fólkið þar á við að glíma eru þau sömu og flestir kannast við. Hjónaband- ið er ekki dans á rósum, og það er erfitt að sameina starfsframa og fjölskyldu- líf. Það er lfka erfitt að horfa á lífið líða fram hjá sér og sjá vonirnar um hina glæstu framtíð verða að litlu. Svoleiðis hefur lífið verið frá örófi alda, fólk lifir að sönnu aðeins lengur nú, en miðbik ævinnar er alltaf jafnstutt. Þá veit þessi kynslóð harla lítið um það hver útkom- an verður með afkvæmi þeirra þegar upp er staðið. Nú þegar tíundi áratugurinn gengur í garð er þessi kynslóð hálft í hvoru að segja sjálfri sér stríð á hendur. Það varð uppi fótur og fit í Bretlandi um daginn þegar Bítillinn Paul McCartney gagnrýndi hertogaynjuna af Jórvík og eiginmann hennar, Andrew Breta- prins, fyrir það að hundsa afkvæmi sitt þar sem þau eru á stöðugum ferðalög- um. Við eigum börn og tökum þau með okkur hvert sem við förum, sagði Paul McCartney. Ein vinsælasta leik- kona veraldar um þessar mundir, hin FORDÓMARí GARÐ ÚTI- VINNANDI MÆÐRA Emilía Björg Björnsdóttir er 35 ára gamall blaðaljósmyndari og tveggja barna móðir. Hún er gift tannlækni sem rekur eigin stofu. „Við lifum ágætu lífi og ég kvarta ekki, allra sfst yfir skuldum. Við getum bara sjálf- um okkur um kennt ef við höf- um stofnað til of mikilla skulda. Einn er þó sá hlutur sem veldur mér og flestum öðr- um útivinnandi foreldrum áhyggjum og það eru dagvistarmálin. Eg veit um kon- ur sem hætta að vinna af því þær geta ekki fengið pössun. Eg veit einnig um konur sem hafa hætt við að eignast fleiri börn af sömu ástæðum. Sé fólk búið að mennta sig til ákveðinna hluta er fárán- legt að það geti ekki notið þess vegna aðstöðuleysis í dagvistarmálum. Sumar konur eru ef til vill í þannig stöðum að þær geta tekið sér löng frí til að sinna barnauppeldinu en ég held að það sé undantekning. Eg er ekki viss um að ég hefði fengið mitt starf aftur, hefði ég dregið mig í hlé í nokkur ár. Það er fár- ánleg della í gangi sem birtist í fordóm- um í garð útivinnandi mæðra. Það er ekkert sem sannar það að börn sem eru í gæslu komi eitthvað verr út úr því en börn sem eru heima hjá mæðrum sínum allan daginn. Ég hef orðið vör við það að sumum finnst eins og manni þyki ekki vænt um börnin sín, ef maður er útivinn- andi. Ég get vel ímyndað mér að sumar konur kysu helst að vera heima hjá börn- um sínum, en allar konur sem vilja starfa utan heimilis eiga að hafa fullan rétt á því að vera úti í atvinnulífinu.“ Astandið í dagvistarmálum er henni kappsmál sem fleiri ungum foreldrum. „Einstæðar mæður hafa alls staðar for- gang á dagvistarstofnunum en mér skilst að ákveðinn hluti barnanna verði einnig að koma frá foreldrum í sambúð. Það gefur auga leið að þetta er Þrándur í 26 HEIMSMYND
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.