Heimsmynd - 01.09.1989, Page 42

Heimsmynd - 01.09.1989, Page 42
ýmsum öpum hafa fundist veirur sem minna á HIV. Ein 30-70% af grænum marköttum (Cercop- ithecus aethiops) í Súdan og Eþíópíu hafa í sér „apaalnæmis- veiru“ (SIV, simian immunodef- iciency virus), en virðist ekki verða meint af. Ef apar frá Asíu taka þessa veiru, sem dæmi eru til í dýragörðum þar sem teg- undirnar lifa saman, veikjast þeir og fá að lokum alnæmi. Afrísku aparnir hafa aðlagast veirunni og veiran þeim, enda er báðum fyrir bestu að sambúðin sé áfallalítil. í nýrri tegund veld- ur veiran hins vegar usla. Menn hafa getið sér þess til að alnæmisveiran hafi á einhvern máta borist úr öpum í menn í Afríku fyrir fremur skömmum tíma. Gallo nefnir tuttugu til á nokkrar aldir. Gallo og Montagnier telja að HlV-veiran hafi svo leynst í einangruðum byggðum til sveita þar til smit hafi borist til borga í Afríku og þaðan út um heiminn. Bandarískur farsóttafræðing- ur, Robert M. Swenson, birti nú í ár grein (sjá heimildaskrá) þar sem hann ber alnæmi saman við farsóttir fyrri tíma. Þar er að vísu ólíku saman að jafna: I fyrstu svartadauðaplágunni í Evrópu um miðja fjórtándu öld létust á aðeins þremur árum um 25 milljón manns, eða helmingur til þriðjungur Evrópubúa, og síðari faraldrar héldu íbúatölunni niðri næstu 150 árin. Aðeins kjarnorkustríð og hörmungarnar í kjölfar þess gætu valdið slíku hruni nú á dögum. Samanlagður manndauði af völdum al- næmis á enn nokkuð í land að ná dánar- tölunni í spænsku veikinni 1918. Faraldur brýst ekki út nema ákveðin skilyrði séu fyrir hendi. Á elleftu og tólftu öld ríkti þokkalegur friður í Evr- ópu og matvælaframleiðsla jókst mjög, svo að íbúatalan þrefaldaðist - fór úr 25 í 75 milljónir á árunum 950 til 1250. Um aldamótin 1300 kólnaði veðurfar veru- lega um alla álfuna. Af því leiddi upp- skerubrest og hungursneyð; fólk flykkt- ist í borgirnar og lifði þar við þrengingar og örbirgð. Allt stuðlaði þetta að út- breiðslu plágunnar, þegar við bættist að rottum fór við þessar aðstæður stórfjölg- andi í borgunum, en svartidauði berst í menn úr rottum með flóm. Á sama hátt má finna ýmsar aðstæður nú á tímum sem ýta undir útbreiðslu al- næmis. Samgöngur eru greiðari en nokkru sinni fyrr og ferðalög milli landa afarvenjuleg. Þá ber að nefna að veiran barst inn í lokuð samfélög samkyn- hneigðra karla á tímum þegar losnað Þessi mynd af bandarískri fjölskyldu var tekin árið 1985. Fjölskyldufaðirinn, Patrick Buck, var dreyrasjúkur og smitaðist af HIV við blóðgjöf. Áður en honum var það ljóst smitaði hann konu sína, Lauren, sem smitaði son þeirra, Dwight, á með- göngutíma eða við brjóstagjöf. Dóttirin, Nicole, er ósmituð. Þegar myndin var tekin voru feðgarnir komnir með al- næmi. Þeir eru nú látnir. hafði um ýmsar hömlur á kynlífi. Loks varð útbreidd notkun fíkniefna með samnýtingu á sprautum til að koma veir- unni út meðal gagnkynhneigðra. Þegar faraldur gýs upp eru viðbrögðin alltaf og alls staðar áþekk. Fyrst reyna menn að loka augunum, afneita vandan- um. Svo er öðrum kennt um. Kristnir menn kenndu múslímum um svartadauð- ann, múslímar töldu hina kristnu eiga sök á farsóttinni, og báðir skelitu svo skuldinni á gyðinga, sem m.a. voru sagð- ir hafa eitrað vatnsból. Þegar kólera flæddi yfir Bandaríkin á 19. öld var fátækt af ýmsum talin til ódyggða, afleiðing leti og óreglu, og fá- tæklingar, einkum fátækir innflytjendur, voru taldir eiga sök á útbreiðslu farsótt- arinnar. Vændiskonur áttu með ósiðlegu líferni að kalla kóleru yfir sig og gesti sína, þótt ekkert benti til að sjúkdómurinn smitaðist við kyn- mök. Inflúensan sem Frakkar köll- uðu spænsku veikina (eða Veiki hinnar spænsku frúar) gekk á Englandi undir nafninu franska veikin. Alnæmi hefur orðið tilefni margra ásakana. Umheimurinn ásakar Afríkubúa fyrir að þar hófst faraldurinn. Hommum og eiturlyfjaneytendum er kennt um að færa veiruna til Banda- ríkjanna og halda henni þar við. Prédikarar telja alnæmi refsi- vönd guðs yfir þessu fólki vegna syndsamlegs lífernis. Meðan engin lækning er í vændum, er fyrir öllu að út- breiða þekkingu á eðli sjúk- dómsins. Smitleiðirnar eru þekktar og menn geta verulega dregið úr hættunni á að smitast með því að forðast ákveðna lífs- hætti. Smitun með blóðgjöf er nú eiginlega útilokuð á vestur- löndum. Flestum stafar mest hætta af óvarlegum kynmökum. Hér er því brýn þörf á tæpi- tungulausri kynfræðslu. Sums staðar er viðbúið að þekkingin hrökkvi skammt. Sprautufíklar láta t.d. lítt segjast við fræðslu. Víða í Afríku, þar sem veikin er útbreidd, eru eng- in tök á að fylgjast með mótefnum í blóði til blóðgjafar. Eg sótti fyrstu málsgrein þessa pistils í grein þeirra Callos og Montagniers, og nú ætla ég að gera lokaorð þeirra að mínum: „Við verðum öll að axla nokkra ábyrgð; læra hvernig HlV-veiran berst, draga úr áhættusömum lifnaði, láta til okkar heyra hvar sem reynt er að mæla lífsháttum eiturlyfjaneytenda bót, og forðast að stimpla og úthrópa fórnar- lömb sjúkdómsins. Ef við getum tekist á herðar slíka ábyrgð verður verstu mar- tröðinni létt af alnæmisfarsóttinni.“ Helstu heimildir: What science knows about AIDS. Scientific Amer- ican, allt októberheftið 1988, tíu greinar um ýmsa þætti alnæmisvandans. Orðrétt er vitnað í fyrstu greinina, AIDS in 1988, eftir Robert C. Gallo og Luc Montagnier. Robert M. Swenson, Plagues, History and AIDS. Dialogue, 83. 1/1989. AIDS Monitor, fastur þáttur í enska tímaritinu New Scientist. Skýrslur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO). Skýrslur landlæknisembœttisins. Dr. med. Guðjón Magnússon aðstoðarlandlæknir las greinina yfir í handriti. Höfundur er líffræðingur og á sæti í landsnefnd um alnæmisvarnir á vegum Heilbrigðisráðuneytisins. 42 HEIMSMYND
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.