Heimsmynd - 01.09.1989, Page 50

Heimsmynd - 01.09.1989, Page 50
og tóku nú að gagnrýna kenningar hans. Mestum tíðindum þótti sæta þegar Óskar Halldórsson snerist gegn bókfestu- kenningu Nordals og dró svokallaða sagnfestukenningu fram í dagsljósið á ný en samkvæmt henni áttu íslendingasögur að vera að hluta eða öllu leyti arfsagnir sem gengið hefðu munn- lega mann fram af manni þangað til þær voru skráðar. Hann efaðist um að rómuð ritgerð Sigurðar um Hrafnkels sögu stæðust en þar var talið nánast sannað að verkið væri skáld- skapur og verk eins höfundar. Á seinni tímum hafa ungir bók- menntafræðingar tekið verk og skoðanir Sigurðar til gagngerr- ar athugunar. Halldór Guðmundsson telur til dæmis í bók sinni Loksins, loksins að Sigurður og fleiri menntamenn hefðu tafið fyrir módernismanum í skáldskap með forræðishyggju sinni. Hann segir að Sigurður hafi óttast um afdrif íslenskrar menningar, ef erlend borgarmenning héldi hér innreið sína, og þess vegna haldið uppi óþarfri lofgerðarrullu um íslenska bændamenningu. Halldór segir að draumsýn Nordals á þriðja áratugnum hafi í senn falið í sér afturhvarfsþrá, forræðis- hyggju og barnslega samfélagssýn. En þannig geta ungu mennirnir látið sem aldrei kynntust fjallinu Sigurði Nordal. Hinir eldri stóðu allir í skugga þess. FORSETAÆTTIN Þegar Sigurður var ungur maður að búa sig undir að verja doktorsritgerð sína gekk hann að eiga sænska stúlku, Nönnu Boethius frá Karlskrona í Svíþjóð. Hjónaband þeirra stóð þó aðeins í tvö ár og varð barnlaust. Hann kvæntist svo öðru sinni 1922 og gekk þá að eiga unga íslenska konu sem var tíu árum yngri en hann. Hún hét Ólöf Jónsdóttir og var af ein- hverjum fínustu ættum á íslandi. Faðir hennar var Jón Jensson dómstjóri, bróðursonur þjóð- frelsishetjunnar miklu, Jóns Sigurðssonar forseta, en móðir hennar var Sigríður Hjaltadóttir Thorberg, bróðurdóttir Bergs Thorbergs landshöfðingja. Þegar síðar verður sagt frá sonum þeirra Sigurðar og Ólafar ber að hafa í huga að þeir sækja ekki síður svipmót til móðurfrænda sinna en hins áhrifamikla föður. Jón Jensson var eitt hinna mörgu barna Jens Sigurðssonar rektors Lærða skólans og konu hans Ólafar, dóttur Björns Gunnlaugssonar yfirkennara, „spekingsins með barnshjart- að“. Um Jón og bræður var það eitt sinn sagt að það væri eins og hinn náni skyldleiki við þjóðarleiðtogann mikla yrði þeim byrði alvöru og ábyrgðar líkt og þeim bæri skylda til að halda uppi virðingu forsetans. Þetta virtist hið alvöruþunga fas þeirra túlka. Aldrei urðu þeir vændir um að hnika hársbreidd frá því sem þeir vissu sannast og réttast. Elstur var séra Sigurður Jensson í Flatey. Hann ásamt Jóni bróður sínum var einn af helstu leiðtogum Landvarnarmanna í byrjun aldarinnar en það var flokkur þeirra róttækustu í sjálfstæðisbaráttunni, þeirra sem vildu hvergi hvika fyrir Dön- um. Börn hans voru Haraldur Sigurðsson vélstjóri á Gullfossi, Jón Sigurðsson sem átti eina fyrstu raftækjaverslunina í Reykjavík, Jens Sigurðsson gasstöðvarstjóri í Noregi, Jón Sig- urður Sigurðsson póstafgreiðslumaður í Flatey, Brynjólfur Sigurðsson gasstöðvarstjóri í Reykjavík og Ólöf Sigurðardótt- ir, kona Ólafs Sveinssonar skipaskoðunarstjóra. Næstur var Björn Jensson kennari við Lærða skólann. Börn hans voru Viggó Björnsson bankastjóri í Vestmannaeyjum, Ólöf Björnsdóttir, kona Péturs Halldórssonar borgarstjóra (börn þeirra Björn Pétursson bóksali, Halldór Pétursson list- málari, Ágústa Pétursdóttir, kona Péturs Snælands iðnrek- anda og Kristjana Pétursdóttir, kona Lúðvígs Hjálmtýssonar ferðamálafrömuðar), Sigríður Björnsdóttir kaupmaður, Ágústa Björnsdóttir, kona Kjartans Thors forstjóra (þeirra af- komendur raktir í Thorsætt (Heimsmynd 1. tbl. 1989)), Þórdís Björnsdóttir, kona Gunnlaugs Claessens læknis og bæjarfull- trúa, Arndís Björnsdóttir leikkona og Soffía Björnsdóttir, kona Helga Péturssonar verslunarfulltrúa. Þriðji var Jón Jensson, tengdafaðir Sigurðar Nordals, sem síðar verður komið að. 50 HEIMSMYND
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.