Heimsmynd - 01.09.1989, Page 62

Heimsmynd - 01.09.1989, Page 62
Eg er að vinna að undirbúningi á næstu kvik- mynd minni sem er byggð á sjálfsævisögu franska rithöfundarins Marquerite Duras. Enginn bóka hennar hefur náð eins miklum vinsældum eins og L’AMANT eða Elskhug- inn. Hún hlaut Goncourt bókmenntaverðlaun fyrir þá bók en þau eru helstu bókmennta- verðlaun Frakka. Bókin fjallar um 15 ára stúlku og fyrstu kynni hennar af karlmönn- um. Hún er sjálfsævisöguleg og segir frá ást- arævintýri sem Marquerite Duras átti við Kínverja nokkurn sem var miklu eldri en hún. Sagan gerist í Viet Nam. Pótt ég byggi handrit mitt á bókinni þá er bók eitt og hand- rit annað. Ég túlka þær tilfinningar á ný sem í bókinni koma fram og þannig eru kvikmyndir mínar mitt verk þótt þær séu byggðar á skáldsögum. Vegna kvikmyndahandritsins sem ég er að skrifa eftir bókinni hef ég rætt við fjölda sálfræðinga í ýmsum löndum. Pað er athyglisvert að öllum sálfræðingum, hvort sem þeir eru í New York, Los Angeles, París eða Lond- on, ber saman um að fólk finni fyrst til, bregðist við því og taki síðan ákvarðanir. Vegi svo og meti þær eftir á. Svo að skynsemishugsun er eins og uppgjör og endurskoðun á því sem þú hefur þegar ákveðið eða jafnvel framkvæmt. Rauði þráður kvikmyndarinnar Björninn er að dýr drepa til að lifa. Veiðimaður sem lifir á því að selja skinn á það á hættu að fjölskylda hans deyi úr hungri ef hann drepur ekki dýr til að framfleyta henni. Það sem ég vil segja með þessari mynd er að maður getur sett sig í spor allra manna og dýra ef maður skilur aðstæðurnar. Ég get sett mig í spor þess sem drepur og þess sem er drepinn. Við verðum að viðurkenna að lífsbarátta okkar byggist á að drepa önnur dýr. Flestir vilja trúa að mað- urinn sé góður en hann er jafn hrokafullur, ráðríkur og grimmur og flestar dýrategundir. Hið góða og illa er til en skilin á milli þess eru oft ekki skörp. Þegar við vorum að kvik- mynda atriðið þar sem björninn er að drepa fiskana í ánni þá neitaði björninn að yfirgefa svæðið fyrr en hann hafði drepið alla silungana sem við höfðum á staðnum og þeir voru um hundrað. Hann drap þá sér til skemmtunar en borðaði þá ekki, beit bara í þá. Við vorum í stöðugri lífshættu við tökurnar. Það var aðeins rafmagnsþráður sem skildi á milli okkar og bjarnarins, þráður sem hann hefði hvernær sem er getað slitið og ráðist á okkur. Allir tæknimenn urðu að vera kyrrir og máttu hvorki tala sam- an, matast né reykja svo klukkustundum skipti. Eftir nokkra mánuði gekk allt svo vel að ég ákvað að brjóta reglurnar þótt ég hefði stranglega bannað öllum öðrum að gera það. Ég vildi fá mynd af mér og birninum og fór yfir þráðinn og stillti mér upp fyrir framan björninn. Hann vó um níuhundruð kfló og var þriggja metra hár. Ég hélt á ljósmæli í annarri hendinni og leit við og rétti hana upp. Þá hélt björninn að ég ætlaði að gera honum mein og stökk á mig svo ég steinlá. Til allrar hamingju hafði ég lesið bók um hvað gera skyldi undir þess- um kringumstæðum og lést vera dauður og þá fór hann í burtu. En áður en hann yfirgaf staðinn potaði hann klónum undir buxnastrenginn á gallabuxunum mínum og særði mig djúpu sári. Ég varð að ganga daglega til læknis vegna áverkanna í tvo mánuði á eftir og halda áfram að leikstýra honum því við vorum rétt hálfnaðir með myndina. Tveim- ur dögum áður en þetta gerðist höfðum við tekið atriðið á klettasyllunni þar sem björninn ógnar manninum og eftir það atriði áttaði björninn sig á valdi sínu yfir okkur og var mjög erfiður okkur og dýraþjálfaranum eftir það. Áður var hann eins og barn en eftir þetta skyldi hann hversu framhald á bls. 105
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.