Heimsmynd - 01.09.1989, Síða 70

Heimsmynd - 01.09.1989, Síða 70
„Aðalatriðið er að komast í svo nána snertingu við fólk og staði, að úr verði ný sköpun.“ iwik kom til íslands í því skyni að hvfla sig eftir erfiða törn, en hafði meðferðis ljósmyndagræjur af gömlum vana. Komið var framí október og hann átti ekki annarra kosta völ en fara á bflaleigu og leigja sér traustan bfl. Hann langaði að komast í snertingu við landið sjálft og var við öllu búinn þegar hann lagði upp suður- og austurum land. Samt kom það sem gerðist honum í opna skjöldu. Sem hann ók í kringum landið uppgötvaði hann alltíeinu að hann var í fyrsta sinn um langan aldur einn með sjálfum sér (en ekki einmanna) og hinu nakta landslagi. Kannski var það einmitt þetta sem hann þurfti mest á að halda: að vera aleinn með sjálfum sér. Og í því efni var landið honum hjálplegt: í þrjár vikur sá hann varla nokkra lifandi hræðu nema rétt kvölds og morgna á gisti- stöðum. Verkefnið í Feneyjum hafði knúið Siwik til að leita uppi raunverulegar mann- eskjur að baki litskrúðugum grímunum á kjötkveðjuhátíðinni. A Islandi fann hann sig knúinn til að gægjast bakvið eigin grímu. Hann telur sig ekki hafa losnað við grímuna, enda er hún honum oft gagnleg í varnarskyni, en honum þykir mikilvægt að gægjast bakvið hana og gera sér grein fyrir hvað hún felur. Siwik kveður vandkvæðum bundið að tiltaka nákvæmlega, hvað það var í ís- lensku landslagi sem heillaði hann. Þegar hann kom heim til Þýskalands var hann furðu lostinn yfir því sem á filmunum var. Það var þá sem hann afréð að búa til bók um ísland. Siwik kom öðru sinni til landsins sumarið 1984 og kannaði það rækilegar, en það var ekki fyrren sumarið 1985 að hann lagði upp í langferð í jeppa yfir hálendið um Landmannalaugar og Sprengisand til Mývatns og víðar um Norðurland. Hann leigði sér líka litla flugvél til að taka myndir úr lofti. í fjórðu heimsókninni 1986 reið hann ásamt hópi Islendinga í tíu daga um óbyggðirnar með eitt hundrað og fimmtíu hesta og lifði þá dæmafáu reynslu sem hestaferðalög um ísland eru. Allar heimsóknir Hans Siwiks til Islands eru ferðir inní hans eigið sálardjúp frem- ur en athuganir í íslenskri náttúru. Þetta á hann bágt með að útskýra á röklegan hátt, þareð það felur í sér sjálfsmótsögn: að vera einn ánþess að vera raunverulega einn. Eftirað Siwik hafði áttað sig á sjálfum sér og íslensku umhverfi sneri hann sér að því að skoða fólkið í landinu og festa það á filmu. Hann var svo lánsamur að hitta nokkra mjög minnisverða einstaklinga; sumum þeirra er bókin um Island tileinkuð. Siwik kveður það í sjálfu sér ekkert sérstakt keppikefli að gefa út bók, en hitt sé eftirsóknarvert að setja saman bók, öðlast reynslu af fólki og landslagi sem leiði til þess að hægt sé að skapa eitthvað verðmætt og sígilt. Að sjálfsögðu sé mikilsvert að hafa eitthvað uppúr vinnu sinni, svo hægt sé að halda áfram, en það sé samt auka- atriði. Aðalatriðið sé að komast í svo nána snertingu við fólk og staði, að úr verði ný sköpun. Meginefnið í bók Siwiks eru töfrandi litmyndir af fólki og landslagi, þrungnar ljóðrænum innileik og máttugri tilfinningu kyrrðar, einangrunar og einsemdar. Myndasíðurnar átta í hverjum kafla eru umluktar völdum köflum úr nokkrum helstu íslendingasögum. Enska útgáfan birtir kafla úr Eglu, Laxdœlu, Gísla sögu, Njálu og Grettlu, en sú þýska birtir kafla úr Grettlu, Eglu, Fóstbrœðra sögu, Laxdœlu og Gísla sögu. Hubert Seelow valdi kaflana í þýsku útgáfuna og samdi for- mála fyrir henni, en undirritaður hafði veg og vanda af þeirri ensku. Það var Ice- land Review sem stóð að ensku útgáfunni í samvinnu við þýska útgefandann Braus.D 70 HEIMSMYND
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Heimsmynd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.