Heimsmynd - 01.09.1989, Page 85

Heimsmynd - 01.09.1989, Page 85
betur en að þau lifi svona tiltölulega venjulegu lífi: „Petta er rólegt og gott líf, við erum mikið heima og njótum þess að hafa börnin í kringum okkur. Ég elda og finnst það ofsalega gaman, er mikið fyrir tilraunamennsku í eldhúsinu. Jakob kann ekkert að búa til mat. Pað eina sem hann kann er að rista brauð og setja banana, ost og marmelaði ofan á, það er hans sérgrein. Jú, hafragrauturinn hefur einu sinni heppnast hjá honum.“ “Börnin? Stuðmenn starfa ekki nema tvo mánuði á ári og þá hafa systir Jakobs og móðir mín hjálpað til með afkvæmin. Við erum yfirleitt ekki í burtu nema eina til tvær nætur í einu, svo ég held ekki að þetta sé neitt alvarlegt fyrir þau. Ég við- urkenni hins vegar að mér finnst leiðin- legt þegar krakkar eru að nota eldri stelpuna til að komast hérna inn og spyrja spjörunum úr, en hún gerir sér grein fyrir því að þegar fólk er í fjölmiðl- um þá vekur það forvitni annarra og við höfum gert með okkur samkomulag, ég og hún, um það hvernig hún eigi að snúa sér í þessu.“ Ragnhildur er treg til að tjá sig mikið um félaga sína í hljómsveitinni, segist halda að þjóðinni sé enginn greiði gerður með því að raska þeim hugmyndum sem hún hafi um þá. „Við erum náttúrlega mest áberandi, ég, Jakob, og Egill, hinir sjást minna. Geiri er algjörlega óþekkt stærð fyrir fólki og hann vill held ég hafa það þannig. Tómas og Þórður eru fyndn- ustu menn sem ég hef kynnst á ævinni. Þeir hafa svo hárbeittan húmor. Jakob? Það hljómar náttúrulega hræðilega væm- ið, en hann er óskaplega rómantískur og blíður, góður við börnin og góður sínu fólki. “ Ragnhildur kom beint úr Grýl- unum inn í Stuðmenn og hlýt- ur að hafa einna besta yfirsýn hérlendra yfir muninn á kon- um og körlum í bransanum. „Mér finnst best að hafa konur og karla í bland í þessu, rígur- inn er búinn að vera. Það er bara svo sjaldgæft að íslenskar konur sérhæfi sig eitthvað á þessu sviði og leggi allan sinn metnað í þetta. Þær vilja bara koma fram sem sætar dúkkur og syngja fallega og búið. Mér fannst þegar ég var í Grýlunum að áhuginn væri talsverður meðal kvenna, maður var í símanum nætur og daga að telja kjark í stelpur sem langaði til að læra á bassa eða eitt- hvað. Núna virðist þessi áhugi vera horf- inn. Mér finnst þetta fáránlegt, undar- legt og óskiljanlegt. Það er ekki eins og þessi leið sé lokuð konum, það eru ekki uppi skilti í hljóðfæraverslunum þar sem stendur: SELJUM EKKI KONUM RAFMAGNSGÍTARA og engin klásúla sem bannar konum aðgang að tónlistar- skólum. Það vantar einhverja vakningu meðal kvenna. Kannski er þetta snertur af vanmetakennd og svo er þetta ekki hin hefðbundna leið. Það er svo ríkt í ís- lenskum konum að stofna bú, gifta sig, eignast krakka, skella í kleinur og ég veit ekki hvað og hvað. Og allt skeður þetta svo hratt að fólk hefur ekki tíma til að finna sig í neinu. Það eru vondir tímar þegar fók flýtir sér svona mikið, það hef- ur ekki tíma til að vera til. Það eru alltaf einhver efnisleg gæði sem sitja fyrir; það þarf að helluleggja garðinn, setja flísar á baðið, það er aldrei sagt: “Nú þarfég að vera til“. Þetta er sennilega stór ástæða fyrir því að konur vilja ekki verða popp- arar. Það er ekki normal að vera popp- ari. Normal á íslenskan mæikvarða er að fara í sambúð átján ára gifta sig tvítugur og vera þá komin með barn, bæta nokkr- um börnum við og skilja síðan.“ Aðalgagnrýnin sem Stuðmenn hafa orðið fyrir hin síðari ár er að þeir séu að farast úr peningagræðgi. Ragnhildi finnst þetta fáránlegt: „Fólk trúir bara því sem það vill trúa. Það þýðir ekkert fyrir mig að segja þjóðinni að ég hafi verið tekju- laus síðastliðin tvö ár, fólk trúir því ekki. Enda er aldrei talað um töpin. Ekki varð það stórfrétt í blöðunum að við hefðum tapað á Atlavíkurhátíðinni um síðustu verslunarmannahelgi, en ef við græðum ætlar allt vitlaust að verða. Stuðmenn eru ein af fáum hljómsveitum sem hefur þorað að taka áhættur; fjármagnað eigin kvikmyndir, plötur, bækur, farið til Kína, alls konar tilraunastarfsemi. Ekki er það ríkið sem kostar þetta. Við höfum öll fengið okkar skerf af því að lifa fyrir hugsjónina og fá enga peninga en ef við græðum finnst fólki það ekki rétt. Ég skil ekki af hverju fólk gleðst ekki bara með okkur.“ vað segir Ragnhildur um fram- tíð Stuðmanna? „Stuðmenn eru einstætt fyrirbæri í hljóm- sveitabransanum, því þeir taka sig ekki of alvarlega, en leyfa sér allt. Sumir poppsérfræðing- ar kalla Stuðmenn fyrstu nýbylgjuhljómsveit í heimin- um, það er ansi fijálslegt. Og það er þetta frelsi sem maður finnur svo vel fyr- ir. Stuðmenn eru margar hljómsveitir í einni og þar er enginn einn sem segir fyr- ir verkum. Hugmyndirnar bara flæða yf- ir og það virðist enginn hörgull á þeim. Meðan fólk heldur heilsu og húmor sé ég ekkert í veginum fyrir því að halda áfram að kafa í hugmyndabrunninn, það takmarkast ekki við aldur. Ég get þó ekki séð aðrar hljómsveitir fyrir mér, sem gætu haldið sínu striki í tuttugu ár. Ekki Sykurmolana, Langa Sela eða Strax, til dæmis, en Stuðmenn eru bara einhvern veginn allt annars eðlis." HEIMSMYND 85
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.