Heimsmynd - 01.09.1989, Page 90

Heimsmynd - 01.09.1989, Page 90
 ■ San Fransisco bjó Arngunnur IÝr í Mexíkanahverfinu og seg- ist hafa orðið fyrir miklum áhrifum af lífinu í hverfinu og lífsstíl fólksins sem þar býr. „Þetta er lifandi hverfi, mikil músík, litadýrð og allt fullt af börnum. Þetta er yfirleitt fá- tækt fólk, innflytjendur sem lit- ið er niður á, og mikið af lista- mönnum. Við bjuggum í yndis- legu húsi með stórum garði og oft vann ég í garðinum í náinni snert- ingu við lífið umhverfis. Mexíkanskur kúltúr er mjög spennandi og ekki síst viðhorf þeirra til dauðans og þján- ingarinnar. Þeir halda dag hinna dauðu einu sinni á ári og horfast ótta- laust í augu við þá staðreynd að dauð- inn kemur til okkar allra, sorgin er hluti af lífinu og engin ástæða til að vera í þessum felu- leik við dauðann sem við Vestur- landabúar stund- um. Þeir eiga frá- bæra listamenn, eins og til dæmis Fridu Kahlo, sem tjá þjáninguna óhikað. Þetta hjálpaði mér mikið eftir að Gunnhild- ur dó og eins sú staðreynd að sorg- in hefur verið við- fangsefni skálda og listamanna í gegn- um aldirnar. Ég var ekki sú eina sem hafði þurft vinna úr þeim tilfinningum.“ Það er auðséð á Arngunni Ýri að henni fellur þungt að tala um dauða systur sinnar: „Já, það er ennþá erfitt að tala um þetta“, viðurkennir hún, „og það var ólýsanlega erfitt að mála þessar myndir, en það hjálpaði mér mikið. í fyrstu var ég mjög efins um að þær ættu nokkurt erindi út á við, en viðbrögð fólks við sýningunni hafa sannfært mig um að það var rétt að sýna þær. Ég hafði ekki gert mér grein fyrir því fyrr hversu margir hafa upp- lifað það sama og það gaf mér mikið að finna viðbrögð fólks. Ég vona bara að ég hafi gefið þeim jafn mikið í stað- inn.“ En Arngunnur Ýr hefur líka upplif- að neikvæð viðbrögð fólks. Eiginmað- ur hennar, Larry, er þeldökkur og þótt henni finnist út í hött að litarhátt- ur hans skipti máli, hefur hún rekið sig óþyrmilega á það að ekki eru allir sömu skoðunar. Hún vill þó lítið tjá sig um það, segir miklu áhugaverðara að tala um list hans, en hann er virtur listamaður og hélt meðal annars sýn- ingu í Sah Fransisco Museum of Modern Art í vor og hlaut mjög góðar viðtökur. Viðhorf fólks hefur þó ekki fyllt hana fyrirlitningu á hroka hvíta kynstofnsins, miklu fremur að hún vorkenni fólki þröngsýnina: „Ég hafði ekki gert mér grein fyrir því fyrr hvað langt er í land í þessum málum“, segir hún, „og hvað margir eiga mikið ólært.“ Hún getur ekki hugsað sér að setjast að á íslandi, ekki síst vegna Pck) er erfitt al) vera hér vegna þess hve þröngsýnir Islendingar eru. Peir halda sig frjálsljnda og átta sig ekki á því hvcil feir eiga mikiö ókrt vegna fess hve sjaldan rejnir á þaé“ að þeirra fordóma sem þau hafa mætt hér. „Það er erfitt að vera hér vegna þess hvað Islendingar eru þröngsýnir. Þeir halda sig frjálslynda og átta sig ekki á því hvað þeir eiga mikið ólært vegna þess hve sjaldan reynir á það. Ef það væru sömu aðstæður hér og til dæmis í Danmörku, Svíþjóð og Vest- ur-Þýskalandi, þar sem innflytjendur flæða inn, er ég hrædd um að Islend- ingar stæðu sjálfa sig að því að vera ekki eins frjálslyndir og þeir þykjast vera.“ Arngunnur Ýr hélt sýningu í San Fransisco í vor, í galleríinu Show and Tell, og þá komst hún í samband við mjög virta og valdamikla konu í lista- heimi San Fransisco, Ann MacDon- ald, sem hún segist vonast til að eiga góða samvinnu við í framtíðinni. Ann- ars er framtíðin óskrifað blað og hún segist aldrei gera áætlanir lengra en eitt ár fram í tímann: „Þær standast hvort eð er aldrei“, segir hún og skellihlær. „Markmiðið er að halda áfram að vinna að listinni, bæta sig eins og framast er unnt, og auðvitað dreymir mann um að geta einhvern tíma lifað af henni. En þótt frægð og sala skipti máli, þá er aðalatriðið að vera heiðarlegur. Það þarf kjark til að halda sínu striki, óháð markaðinum, en ég tel að heiðarleiki, innri kraftur og trú á sjálfan sig séu lykilatriði í því að skapa góða list. Ef þetta skortir er frægðin innantómt stundarfyrirbrigði sem lognast út af. Til að listaverk geti lifað verður það að vera ekta.“ Áður en Arn- gunnur Ýr sneri sér alfarið að myndlist- inni var hún flautu- leikari og hana dreymir um að tengja þessar tvær listgreinar, tónlist- ina og myndlistina, meira saman en gert hefur verið: „Það ætti að vera hægt að blanda öll- um listgreinum saman, auka sam- vinnu listamanna í ólíkum greinum og gera fólk meðvit- aðra um list hvers annars. Þetta eru óskaplega sjálfmið- aðir heimar og ég held að það væri mjög spennandi að opna dyrnar þarna á milli.“ Hana dreymir líka um að mennta al- menning betur í listum, allt frá barnæsku, kynna Vesturlandabúum list annarra menningarsvæða og fá þá til að hætta að líta niður á hana. „Það er mjög mikill áhugi í San Fransisco á list frá öðrum menningarsvæðum, en hún er alltaf flokkuð sem list Asíu- búa, Indíána eða svartra og skín alls staðar í gegn að það liggi í hlutarins eðli, að hún sé ekki eins merkileg og list Vesturlandabúa. Ef hægt væri að fá fólk til að meta alla list á eigin for- sendum og hætta þessum eilífa saman- burði og flokkun held ég að það hefði mjög upplífgandi áhrif á alla listsköp- un.“ Þetta er augljóslega mikið hjartans mál, og Arngunnur Yr notar hendurn- ar óspart til að leggja áherslu á orð sín. Hendurnar og hugurinn eru henn- ar vopn og kæmi mér ekki á óvart þótt hún ætti með þeim eftir að skapa lista- verk sem muni eiga sinn þátt í því að halda nafni íslands á lofti í augum heimsins.D 90 HEIMSMYND
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.