Heimsmynd - 15.01.1990, Side 20
STÖÐ 2 SACAN ÖLL
ars Páls Haukssonar útvarpsfréttamanns frá 9. október, þar
sem meðal annars var spurt hvort NBC gerði sér grein fyrir að
Stöðin væri í skoðun hjá skattrannsóknastjóra fyrir meint und-
anskot á söluskatti.
Pegar ljóst var orðið í nóvember að NBC yrði ekki það
haldreipi sem bjargaði Stöðinni fóru Stöðvarmenn á fullt að
leita annarra ráða. Jón Óttar hafði samband við Ingimund
Sigfússon í Heklu og bauð honum hlut í Stöðinni. Ingimundur
hafði samband við nokkur önnur fyrirtæki, þar á meðal Vífil-
fell og Hagkaup - síðar bættust í þennan hóp Prentsmiðjan
Oddi og Árni Samúelsson, bíókóngur - og þau hófu athuganir
á því að koma þama inn. Parna var samankominn fríður hóp-
ur virtra og vel metinna kaupsýslumanna sem flestir eru af
annarri kynslóð í rótgrónum fyrirtækjum. sem sum spanna
hálfrar aldar feril. Auk Ingimundar og Árna tóku þátt í þess-
um viðræðum Lýður Friðjónsson frá Vífilfelli, Sigurður Gísli
Pálmason í Hagkaup, Þorgeir Baldursson í Odda. Þeir gengu
vel undirbúnir til þessa leiks. Ingimundur er sagður hafa haft
mann í fullri vinnu við að yfirfara þau gögn, sem Stöðvarmenn
og bankinn lögðu fyrir þá og fleiri í hópnum gerðu sínar eigin
athuganir á öllum útreikningum. Þeir telja sig hafa eytt 160
klukkustundum í þetta þjark, svo að það hefur verið næstum
full vinna.
Nær samtímis hafði formaður bankaráðsins, Gísli Valentín-
us Einarsson, samband við Árvakur, útgáfufélag Morgunblað-
sins, og bauð þeim þátttöku. Þar var engum dyrum lokað en
bent á að eitt og sér hefði það fyrirtæki ekkert bolmagn til að
takast slíkt bákn á hendur. Þó mætti líta á gögn málsins. Við-
ræður voru þó varla hafnar, þegar þær voru settar í bið og eft-
ir það mun Árvakur hafa látið sér nægja að standa álengdar
og fylgjast með samningum við Hekluhópinn og annarri fram-
vindu mála.
1987: „Stöðin er orðin fjártiagslega skotheld og
þegar ter að vora getum við geit upp fortíðina.“
Þessa ógnun notuðu svo Stöðvarmenn sér til að koma á
tengslum við Alþýðuflokkinn, ráðherrana Jón Baldvin og Jón
Sigurðsson og vara þá sterklega við því að hægri öflin væru
kannski í þann veginn að ná tökum á Stöð 2. Þar kom við
sögu sameiginlegur bílstjóri utanríkisráðherra og Stöðvar 2,
Kristinn T. Haraldsson, sem oft er nefndur „rótari" Alþýðu-
flokksins og var meðal annars rótari Jóns Óttars í margfrægri
brúðkaupsveislu hans. Vegna fjarveru Jóns Baldvins erlendis
mestallan þann tíma, sem í hönd fór, mun Jón Sigurðsson
hafa tekið að sér að kanna málið. Hluti af þessum samskiptum
kom fram í því að utanríkisráðuneytið greiddi fyrir að koma á
sambandi Stöðvarinnar við Canal plus í Frakklandi. Jón Sig-
urðsson leitaði hófanna við ýmis kratafyrirtæki innanlands.
Við höfum áreiðanlegar heimildir fyrir því að í þessum við-
ræðum hafi Stöðvarmenn að fyrrabragði boðist til að reka
hvern þann fréttamann af fréttastofu Stöðvarinnar, sem ráð-
herra kysi - nöfn Elínar Hirst og Ólafs Friðrikssonar hafi sér-
staklega verið nefnd, en þar sem Jóns Sigurðssonar armurinn í
Alþýðuflokknum hafi ekkert átt sökótt við fréttamenn hefðu
menn látið eins og þau orð væru ósögð.
Svo er að sjá sem Jón Óttar hafi haft öll þessi járn í eldinum
í einu, beitt einum hópnum sem keyri á annan og jafnframt
varað stjórnarsinna við því að einlitir skoðanahópar kaup-
sýslumanna, Árvakur annars vegar, Hekluhópurinn hins veg-
ar, væru að ná tökum á Stöðinni og það væri í þágu almanna-
heilla, að ríkið gengi fram fyrir skjöldu til að koma í veg fyrir
þetta.
Fram til 4. desember var Hekluhópurinn í beinum samn-
ingaviðræðum við eigendur Stöðvarinnar. Eftir það voru þær
beint við Verslunarbankann. Undirstaða þessara samninga er
sjónvarpsleyfið sjálft, sem veitt er af ráðherra. Það er bundið
nafni Islenska sjónvarpsfélagsins, sem getur haldið leyfinu allt
Valgerður Matthíasdóttir hafði sérstöðu innan fyrirtækisins.
*
Kvennamál sjónvarpsstjórans voru hluti al ímyndinni en
hann gekk að eiga Elvu Gísladóttur, einn af upphaflegum
hluthöfum, vorið 1989.
í þessu húsi á Öldugötu býr Hans Kristján Árnason og þar sátu
erindrekar stjórnvalda nóttina fyrir gamlárskvöld.
20 HEIMSMYND