Heimsmynd - 15.01.1990, Blaðsíða 24
STOÐ 1 SACAN OLL
100 milljón króna hlutafé til viðbótar. Á skjánum ljómaði Jón
Óttar af ánægju og taldi þetta sín bestu áramót í mörg ár. Til
viðbótar þessum fréttum var Hekluhópnum gert kunnugt að
Stöðin mundi leysa út hlut Páls Jónssonar í Pólaris, sem upp-
haflega var 70 milljónir á 105 milljónir króna. Jafnframt hafði
ný stjórn Stöðvarinnar gert þriggja ára starfssamning við fyrri
eigendur Stöðvarinnar með 300 þúsund mánaðarlaunum, svo
og við Magnús fjárbónda á Vatnsenda og konu hans Kristrúnu
Jónsdóttur. Fullyrt hefur verið að þessir samningar séu gerðir
án fyrirvara um að við hlutafjárinnborgun verði staðið og séu
öðrum þræði hugsaðir sem starfslokasamningar þeirra félaga
við Stöðina ef til kemur, að þeir hrökklist alveg út úr henni,
umbun fyrir frumkvæði þeirra og kjark í að koma þessu fyrir-
tæki á fót og svona langt áleiðis. Heklumenn lýstu þá yfir að
með þessum málalokum væri afskiptum þeirra af málinu alfar-
ið lokið og hurfu á brott sárir og móðgaðir og má mikið vera
ef þessi samskipti bankans og þessa hóps eiga ekki eftir að
draga á eftir sér langan slóða. Hópurinn hefur reyndar haldið
saman síðan og stofnað formlega með sér félagið Áramót,
sem er líklegt til að eiga eftir að hafa áhrif í viðskiptalífinu og
hefur þegar verið orðað við helgarsjónvarp Sýnar hf. ásamt
DV.
MAT HEKLUHÓPSINS
Hekluhópurinn lagði mikla vinnu í að skoða þetta mál ofan
í kjölinn og sagt er að þeir hafi haft mann í vinnu í heilan
mánuð til að skoða þetta mál. HEIMSMYND ræddi við ýmsa
á hópnum og leitaði álits þeirra á framvindu mála.
Við byrjuðum á því að skoða gögn varðandi fyrirtækið og
mynduðum okkur þá skoðun að við vissar aðstæður væri
þarna um gott fyrirtæki að ræða þótt engin ástæða væri til að
ætla að það yrði nokkur gullnáma. Það koma þarna inn miklir
peningar og það hefur orðið til að villa mörgum sýn og þeir
skoðað fyrirtækið með glýju í augunum. Við töldum okkur í ®
upphafi fá villandi upplýsingar frá bankanum um hag fyrirtæk-
„Fyrr eða síðar gáfust allir upp á mglinu í Jóni
Óttari. Hann var höfuð fyrirtækisins en um leið á
kafi í dagskrárgerð, sem gerði það að verioim að
allar áætlanir leystust upp.“
isins og rekstráætlanir hans alveg út í hött. Hagnaður á árinu
1990 átti að verða 200 milljónir um fram öll útgjöld og reyndar
160 milljónir á síðasta ári. Við teljum það mikinn ábyrgðar-
hlut af virðulegri bankastofnun að setja mál upp á þennan
hátt. Við bárum þetta undir eina tvo aðila utan okkar hóps og
þeir voru sama sinnis. Það var ljóst að til þess að skila hagnaði
þurfti að koma inn í þetta mikið fé og afskrifa talsvert af
skuldum. Við töldum ekki ósanngjarnt, að Verslunarbankinn
hreinlega afskrifaði töluvert af þeim skuldum sem hann hefði
stofnað til við fyrirtækið með ógætilegri lánastarfsemi og
ófullnægjandi eftirliti. Einnig að Páll í Pólaris yrði hreinlega
að viðurkenna, að hann hefði verið hlunnfarinn í viðskiptum
og tapað á því 70 milljónum. Væntanlega hefði bankinn ein-
24 HEIMSMYND