Heimsmynd - 15.01.1990, Side 33
ljómun með markvissri ástundun hug-
leiðslu og hreins lífernis sem færir þá
nær guðdómnum. Þær sálir sem komn-
ar eru lengst á þróunarbrautinni eru
gúrúar eins og Maharishi (sem Bítlarn-
ir voru hjá), hinar uppljómuðu sálir.
Braha segir að hindúar trúi því að þeg-
ar maður deyi renni líf hans á einu ör-
skoti fyrir hugskotssjónum hans, hann
upplifi hvert einasta andartak án til-
finninga og síðan leggist sál hans til
hvílu og komi aftur eftir einhver ár,
jafnvel hundruð ára, og þá ákveði þessi
sál hvað hún vilji gera í næsta jarðlífi,
ekkert sé tilviljun en karma fylgir alltaf
með.
„Þeir sem öðlast frægð að verðleik-
um hafa unnið til þess í fyrri lífum.
Þeir sem fæðast inn í auðlegð hafa
ákveðið það og uppskorið samkvæmt
karma jafnvel þótt slíkt hlutskipti geti
verið til bölvunar. Menn eins og John
Lennon til dæmis hafa verið komnir
langt á þróunarbrautinni. Eða þekktir
stjórnmálaleiðtogar - þeir eru ekki að
slá í gegn í fyrsta sinn í þessu jarðlífi.
Flestir hafa verið í stjórnmálum í gegn-
um margar jarðvistir. Mín skoðun er sú
að menn séu að eyða einni jarðvist til
einskis ef allt gengur út á auðsöfnun en
engu að síður geta þeir verið að upp-
skera eitthvað frá fyrri lífum. Þeir sem
hafa áður verið auðmenn geta þess
vegna hafa kosið sér fábreyttara hlut-
skipti í þessu jarðlífi til þess að þroska
andann. Ég hef oft velt því fyrir mér
hvaða karma fylgi snillingum eins og
málaranum Van Gogh - það hlýtur að
hafa verið stórkostlegt en líf hans var
samt sem áður ömurlegt. Sumt fólk
hefur gott karma en misnotar það í
þessari jarðvist, til dæmis fólk sem nær
langt með því að troða á öðrum. Slíkt
fólk má búast við því að fá ekki sömu
tækifæri í næstu jarðvist. Hver jarðvist
leiðir af sér nýtt karma og veltur á því
hvernig maður notar það karma sem
fylgir manni í upphafi. Fegurð getur til
dæmis verið karma. Fagrar konur hafa
eytt löngum tíma í fyrri jarðvistum til
að efla ásýnd sína. Komist ekkert ann-
að að hjá þeim en útlit þeirra er hugs-
anlegt að þær séu að misnota þetta
karma. Karma er vandmeðfarið og
auðvelt að spilla því. En það eru ekki
bara þeir frægu og framagjörnu sem
hafa gott karma. Aðrir sem minna ber
á kunna að vera komnir lengra á
þroskabrautinni og hafa þegar náð ver-
aldlegum árangri en koma nú hingað
og hafa kosið sér einfaldara líf.
Karma er fyrir flestum óútskýran-
legt. Af hverju deyr fólk í flugslysi eða
fremur sjálfsmorð? Er sjálfsmorð skráð
í stjörnurnar eða ræður frjáls vilji ferð-
inni? Flestir trúaðir menn eru þeirrar
fullvissu að vitneskja um hvert einstakt
líf búi í guði. Sjálfsmorð er eitt við-
kvæmasta fyrirbæri stjömuspekinnar.
Santhanam sá fyrir sjálfsmorð í einu
korti sem ég bar undir hann. Þótt
menn vilji trúa á frjálsan vilja og sjálfs-
ákvörðunarrétt einstaklings ganga flest
trúarbrögð út á örlög, að líf manna sé í
hendi guðs. Afstaða pláneta í áttunda
húsi stjörnukortsins segir til um ævi-
lengd fólks en eina leiðin til að lifa
heilbrigðu lífi er að trúa því að maður
geti sjálfur lagt hönd á bagga og það sé
frjáls vilji - þó svo að j>uð almáttugur
viti allt um endalokin. Eg er ekki þeirr-
ar skoðunar að fólk þróist aftur á bak
eða verði að dýrum. Illar gjörðir fylgja
þeim þó alltaf. Og það skrýtna er hka
að persónulegir eiginleikar fylgja fólki
út í gegn um allar jarðvistir, alvara,
kátína, óþolinmæði og vingjarnlegheit.
Þegar ég skoða stjörnukort frægra
einstaklinga kemur ýmislegt í ljós. Ég
er til dæmis alveg sannfærður um að
Marilyn Monroe framdi ekki sjálfs-
morð því hún hafði slíka lífsorku í átt-
unda húsi sem einnig er tákn kynorku
og getunnar til að eignast böm. Sam-
kvæmt korti Marilyn var hún í mikilli
hættu á því tímabili sem hún dó og átti
að fara sérstaklega varlega á þeim tíma
en það er hvergi skráð að hún eigi að
deyja. Með því að lesa kort Johns
Lennon er unnt að sjá að hann var í
stórkostlegri hættu á þeim tíma þegar
framhald á bls. 89
REYKSUGAN
frá EXHAUSTO leysir flest vandamál kring um arinn.
Reyksugan útilokar niðurslátt í skorstein, varnar neysta-
flugi frá arninum og stórminnkar því eldhættu í heimahús-
um. Auk þess gerir Reyksugan skorsteininn að loftræsti-
kerfi sem vinnur allan sólarhringinn
HEIMSMYND 33