Heimsmynd - 15.01.1990, Side 86
lánuðu fé til stríðsreksturs-
ins, stunduðu bæði smygl
sem löglega verslun með
nauðsynjavöru í stríðunum;
hveiti, baðmull og vopn auk
þess sem þeir sáu um færslur
á greiðslum milli Bretlands
og meginlandsins. Elsti sonur
Mayers sá um að reka við-
skiptin í Frankfurt, annar var
í London, sá þriðji í París og
hinir yngstu í Vín og Napólí.
Veldi Rothschildanna jókst
stöðugt og þeir tóku virkan
þátt í iðnvæðingu Evrópu á
síðari hluta 19. aldar. Þótt
önnur ættarveldi risu upp,
yrðu ríkari og voldugri hefur
Rothschild ættin haldið um-
svifum sínum fram á þennan
dag, ef til vill mest vegna
þeirrar hefðar sem frum-
kvöðullinn lagði áherslu á:
að viðskiptunum væri ekki
skipt upp og áherslan ekki á
umframgróða.
Þann 5. febrúar árið 1804
fæddist í Jakobstad,
sænska hluta Finnlands,
Johan Ludvig Runeberg, eitt
mesta skáld Finna fyrr og
síðar. Verk hans báru sterk-
an keim af föðurlandsást og
þar sem þau voru skráð á
sænsku urðu áhrifin enn út-
breiddari.
ann 24. febrúar 1848
varð bylting gegn kon-
ungdæminu í Frakklandi sem
breiddist út til annarra ríkja í
Evrópu nema Rússlands,
Spánar og Norðurlandanna.
Þessi röð byltinga hófst á
Sikiley og breiddist þaðan út
til Frakklands, Þýskalands,
Italíu og Austurríska keisara-
dæmisins. Byltingin heppn-
aðist aðeins í París þar sem
hún leiddi til stofnunar ann-
ars lýðveldisins og almenns
kosningaréttar.
Frumkvöðull kvennabar-
áttu í Bandaríkjunum,
Susan B. Anthony, fæddist
Kvenréttindakonan.
þann 15. febrúar 1820 í Mas-
sachusetts. Hún var forkólf-
urinn í baráttunni fyrir kosn-
ingarétti kvenna í Bandaríkj-
unum og forseti þar að
lútandi samtaka fyrir síðustu
aldamót. Starf hennar leiddi
til þess að Bandaríkjaþing
samþykkti lög um kosninga-
rétt kvenna árið 1920.
Susan B. Anthony fékk
sjálfstætt uppeldi. Hún var
læs og skrifandi þriggja ára
gömul. Fyrir utan kvenna-
baráttu beitti hún sér gegn
afnámi þrælahalds og var
starfandi með hreyfingu gegn
því allt fram að borgarastyrj-
öldinni 1861. Hún var alþjóð-
lega viðurkennd fyrir störf
sín í þágu kvenna þegar hún
dó 1906.
Þann 3. febrúar 1898
fæddist Alvar (Hugo
Henrik Alvar) Aalto í rússn-
eska hluta Finnlands, síðar
einn frægasti arkitekt þessar-
ar aldar. Aalto vann bæði að
LEIKHUS
Jóhann Sigurðarson.
Það er mjög uppörvandi að fá svona boð,“ segir Jóhann
Sigurðarson leikari, sem nýverið fékk boð um að
koma
til Oslóar í júní og taka þátt í samnorrænni sýningu á Aft-
urgöngum Ibsens. Jóhann mun leika hlutverk sonarins Os-
valds, annað burðarhlutverkið í leikritinu. „Þetta er hátíð-
arsýning í tilefni af samnorrænni hátíð í Akershusvirki og
er einum leikara frá hverju Norðurlandanna boðið að taka
þátt. Eg kann enga skýringu á því hvers vegna einmitt mér
er boðið frá Islandi, en ég er mjög ánægður með að fá
þetta tækifæri.
Ég hef ekki leikið áður í Noregi og hlakka mjög til að
vinna með kollegum mínum frá hinum Norðurlöndunum.
Annars er ég lítið farinn að velta þessu fyrir mér ennþá,
enda í nógu að snúast í leiklistinní hér heima.“
Jóhanni var einnig boðið að lesa úr íslendingasögunum
á hátíðadagskrá í Akershusvirki, einu frægasta virki Norð-
manna, sem nú hefur verið gert að menningarmiðstöð þar
sem ætlunin er að bjóða upp á það besta í norskri list.
Jóhann er fastráðinn leikari hjá Þjóðleikhúsinu og leikur
um þessar mundir Berg Jónsson í Lítið fjölskyldufyrirtæki.
Einnig er hann í einu aðalhlutverkinu í Endurbyggingu
Václavs Havel, sem frumsýnt verður 8. febrúar: „Þetta er
leikrit um það hvernig miskunnarlaust kerfi fer með fólk
og ég leik fulltrúa kerfisins, ritara í tékkneska kommún-
istaflokknum,“ glottir hann.
Hvað við tekur að lokinni Endurbyggingu er óráðið og
Jóhann segist ekki á þessu stigi vita af fleiri verkefnum í
bráð. Enginn vafi er þó á því að þau munu verða næg,
hvort heldur verður hér heima eða á erlendri grund.
Arkitektinn.
skipulagi borga sem og hönn-
un húsgagna og hlaut al-
menna viðurkenningu fyrir
nútímalega hönnun og notk-
un upprunalegra efna.
Skáldið IV. H. Auden
fæddist þann 21. febrúar
1907 í York á Englandi og dó
í Vín árið 1973. Hann varð
frægur á kreppuárunum og
mjög róttækur í skoðunum.
Faðir hans var þekktur lækn-
ir og vísindamaður og móðir-
in hjúkrunarkona. Auden
ólst upp í kaþólskri trú og
miklum áhuga föður síns á
Islandi en fjölskyldunafnið
töldu þeir komið af íslenska
nafninu Hálfdan. Auden
kom til íslands árið 1936 og
Skáldið.
var þá orðinn nafntogaðasta
skáld sinnar kynslóðar á
Englandi. Hann skrifaði bók
um ísland, Bréf frá íslandi,
og dró ekki upp ýkja fagra
mynd af þjóðlífinu og
Reykjavík fannst honum
voðalegt pláss. Mataræðið
hér fannst honum hræðilegt
og klæðaburður íslenskra
karlmanna fyrir neðan allar
hellur. Þá fannst honum
mannasiðum ábótavant þótt
kurteisi væri íslendingum
eðlislæg. Menningin fannst
honum bágborin og var sann-
færður um að framtíð íslend-
inga í þeim efnum væri undir
því komin að þeir innbyrtu
það besta úr evrópskri menn-
ingu. Auden kom aftur til ís-
lands í boði stjórnvalda árið
1964, þá orðinn heimsþekkt
skáld. Hann kvæntist Ériku,
dóttur skáldsins Tómasar
Mann, árið 1936 og gerðist
bandarískur ríkisborgari á
stríðsárunum.
86 HEIMSMYND