Heimsmynd - 15.01.1990, Side 95

Heimsmynd - 15.01.1990, Side 95
STÖÐ 2 SACAN ÖLL HINIR NÝRÍKU GRÍPA GÆSINA Vart hafa menn kvatt gamla árið til fulls þegar þarf að heilsa nýju ári og takast á við þau verkefni sem það ber með sér. Haraldur Haraldsson í Andra hf., Isúf hf., sem á þessa stundina í vandræðum með verksmiðjuskipið Andra út í Alaska og utanríkis og sjáv- arútvegsráðuneytið í að redda þeim málum, og í þann veginn að selja bönk- unum hlut Korta hf. í Kreditkortum hf. (Eurocard greiðslukortakerfinu), og auk alls þessa formaður Félags ís- lenskra stórkaupmanna ákveður að fara út að borða á nýárskvöld. Hann hefur vart hreiðrað um sig í salnum á Hótel Holti, þegar hann verður þess var að Jón Olafsson í Skífunni og fyrr- verandi formaður stjórnar íslenska út- varpsfélagsins, situr við næsta borð. Þeir taka tal saman og Haraldur verður þess var, að Jón hefur þessa notalegu og jákvæðu strauma, sem hann kann svo vel við. Hey, hefurðu nokkuð kíkt á Stöðvar 2 málið? segir Haraldur. Nei, en þú? segir Jón. Rétt aðeins byrj- aður, segir Haraldur, hefurðu áhuga? Heyrðu, mjög mikinn, ansar hinn og þar með eru þeir komnir á kaf í spegla- sjónir. Þetta eru menn sem eru ekki neitt að tvínóna við hlutina. Þann 10. janúar er tilkynnt að Eignarhaldsfélag Verslunarbankans hafi selt 150 milljón- ir af sínu hlutafé í Stöð 2: 50 milljónir Kortum hf., sem Haraldur Haraldsson er fulltrúi fyrir, 50 milljónir Jóni Ólafs- syni í Skífunni og 50 milljónir Guðjóni Oddssyni formanni Kaupmannasam- „Eins og blindur maður að leita að svörtum kefli í myriwuðu hertergi - sem kööurinn er ekki í“. AMERISKU RUMIN KOMIM AFTUR! Amerísku //Sealy”-rúrnin eru alveg ómótstæðileg. Þau eru hönnuð í samráði við færustu beinasérfræðinga Bandaríkjanna. Tvær þykkar dýnur, undir- og yfirdýna, sem Qaðra saman og ná þannig að gefa þér góðan nætursvefn án bakverkja að morgni. 15 ára ábyrgð. Marco hf., Langholtsvegi 111, 2. hæð sími 680690.

x

Heimsmynd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.