Heimsmynd - 01.03.1990, Page 10
Frá stjórnarfundi
Sýnar nýverið. Sveinn R.
Eyjólfsson og Jónas
Kristjánsson.
BLimiR FA SYN -
OG SJÁANDl LÍKA!
að er víst sönnu nær að segja að
skjálfti fremur en titringur hafi
farið um Stöðvarmenn á Krók-
hálsinum þegar tilkynnt var um
nýja hluthafa í sjónvarpsstöð
Sýnar hf., hlutafé yrði yfir 180
milljónir og kappkostað að
sjónvarpssendingar gætu hafist
með haustinu. Fyrir ýmsa
hinna nýju hluthafa í Stöð 2 var þetta
áfall. Þcir höfðu staðið í þeirri trú að
Stöðin mundi sitja ein að markaðnum og
stutt yrði í það að hún færi að verpa gull-
eggjunum. Nú var sýnt að allur yrði sá
róður erfiðari og fjarri því að Stöðin
mundi sigla lygnan sjó þegar öldurnar
lægði eftir yfirtöku hinna nýju aðila.
Samkvæmt heimildum HEIMSMYND-
AR höfðu einungis 99 milljónir verið
greiddar inn þegar fyrri eigendur og hóp-
ur manna með þeim greiddu að fullu sín
hlutafjárloforð upp á 150 milljónir 5.
febrúar. t>á stóðu leikar þannig að þær
fjórar milljónir, sem þremenningarnir
áttu af fyrra hlutafé, gátu gert herslu-
muninn á vegasaltinu ef Eignarhaldsfé-
lagið stillti sínu hlutafé á þá sveifina.
(Fjölmiðlun 250 milljónir - Eignarhalds-
félagið 100 milljónir - hópurinn með þre-
menningunum 154 milljónir). Sögur hafa
gengið um mikinn og heiftugan ágrein-
ing milli Gísla V. Einarssonar, formanns
stjórnar Eignarhaldsfélagsins, og Þor-
varðar Elíassonar, varaformanns þess og
sjónvarpsstjóra, um afstöðuna til hlut-
hafahópanna, en Þorvarður kannast ekki
við að ágreiningur þeirra snúist um
þetta, enda væri það brigð á samkomu-
lagi Eignarhaldsfélagsins við hluthafa-
hópinn í Fjölmiðlun. Stjórnarformaður
Stöðvarinnar, Jóhann J. Ólafsson, segir
að allt hlutaféð sé nú komið inn. Eftir er
að sjá hver samstaða manna milli reynist
að baki þessu fjármagni. En hver svo
sem ofan á yrði í innbyrðis erjum innan
Stöðvarinnar er ljóst að framundan er
slagur upp á líf og dauða um framtíð
þessa eftirsótta fyrirtækis. Það kann því
að skipta litlu máli hver þar vinnur sigur.
Sigurvegari orrustunnar getur hæglega
orðið sá sem tapar stríðinu.
HEIMSMYND reyndist sannspá um
það í grein sinni um Stöð 2, að sam-
skiptalok Verslunarbankans og svo-
nefnds Hekluhóps ættu eftir að draga á
eftir sér langan slóða um samfélagið.
Um miðjan febrúar var tilkynnt að þrír
aðilar úr Hekluhópnum, sem raunar
heldur enn saman undir nafninu Ara-
mót, hefðu gengið ásamt Frjálsri fjöl-
miðlun (DV) til samstarfs við SÝN hf.,
sem alllengi hefur verið með áætlanir á
prjónunum um stofnun helgarsjónvarps.
Þetta voru þeir Árni Samúelsson bíó-
kóngur, Þorgeir Baldursson í prent-
smiðjunni Odda og Lýður Friðjónsson (
Vífilfelli. Þetta er geysifjársterkt félag
strax í upphafi með 184 milljón króna
hlutafé. Áuk þessara manna sitja í
stjórninni Jónas Kristjánsson og Sveinn
R. Eyjólfsson af hálfu DV og er Jónas
formaður. í spjalli við HEIMSMYND
kvað Jónas fyrirtækið verða rekið upp á
gamla mátann: tekjurnar kæmu fyrst og
síðan yrðu útgjöld ákveðin í samræmi við
það. Áætlanir fyrri eigenda yrðu allar
endurskoðaðar nú og ekki endilega ein-
skorðaðar við helgarsjónvarp, aðrir
möguleikar yrðu skoðaðir. Sýnarmenn
væru opnir fyrir samstarfsmöguleikum
við Stöð 2, til dæmis um myndlyklanotk-
un. Sýn hóf göngu sína með ráðningu
þriggja lykilmanna frá Stöð 2: Goða
Sveinssonar dagskrárstjóra, sem verður
sjónvarpsstjóri, Páls Baldvins Baldvins-
sonar aðstoðardagskrárstjóra, sem verð-
ur innkaupastjóri, og Jóns Gunnarssonar
auglýsingastjóra, sem verður markaðs-
stjóri Sýnar. Aðspurður hvort Sýn
mundi feta í fótspor Stöðvar 2 og yfir-
bjóða fleira starfsfólk, sagði Jónas þetta
hafa verið snögga en vel heppnaða að-
gerð og yrði að öðru leyti farið hægt í
mannaráðningar til vors.
Það er áreiðanlega ekki ofsögum sagt
að þetta hafi verið „snögg og vel heppn-
uð aðgerð“, því að þetta eru menn í lyk-
ilstöðum á Stöð 2. Þarna er því alvarlega
vegið að helstu tekjuliðum Stöðvarinnar
og þarf mikið að hafa gengið á til að
þessir lykilmenn yfirgæfu skútuna,
snöggt og fyrirvaralaust. Þeir hljóta ein-
faldlega að hafa misst trúna á því að í
hönd færi betri tíð með blóm í þeirra
heimahaga.
Stöð 2 á enn stórar upphæðir óupp-
gerðar við erlend dreifingarfyrirtæki
kvikmynda og áskrifendur eru byrjaðir
að kvarta yfir lélegri dagskrá. Hið nýja
hlutafé í Stöð 2 hefur enn ekki komið
henni nema að takmörkuðu gagni, þar
sem einungis 150 milljónir hafa runnið til
fyrirtækisins, hitt er fast í Islandsbanka.
Innlend dagskrárgerð er það sjónvarps-
efni sem er dýrast, en um leið það efni
sem gerir íslenskri sjónvarpsstöð kleift
að skera sig úr í samkeppni um hylli
áhorfenda. Samdráttur á því sviði gæti
því hæglega kippt fótunum undan Stöð-
inni. Jón Óttar hefur verið með hug-
myndir um að afla aukins fjár með því
að gera Stöðina að almenningshlutafé-
lagi. Haraldur Haraldsson stjórnarmaður
er hugmyndinni hlynntur, en segir betra
að stilla vörunni upp í hillur fyrst en selja
ekki eftir myndlista. Það gæti því orðið
bið á fjáröflun eftir þeirri leið.
Ýmsir hafa orðið til þess að benda á
að nú hafi þeir hópar kaupsýslumanna,
sem annars vegar standa að Stöðinni og
hins vegar Sýn, skapað sér stöðu til að
tala saman. Vafasamt verði að teljast að
hinn litli íslenski markaður þoli sam-
keppni þriggja aðila. Eigi að vera áfram
við lýði metnaðarfull samkeppni við rík-
issjónvarpið, verði hún að vera af hálfu
stöðvar með fullburða fréttastofu og ís-
lenska dagskrárgerð, sem hvort tveggja
kosti mikla peninga. Missi Stöð 2 veru-
legan fjölda áskrifenda séu allar forsend-
ur brostnar fyrir tilveru hennar í núver-
andi mynd; sem afþreyingarstöð ein-
göngu sé hún of skuldsett til að standast
samkeppni við Sýn. Starfsfólk hennar
hljóti þá að tvístrast og sú mikla starfs-
reynsla sem þar er saman komin að fara
forgörðum. Finni forráðamenn þessara
stöðva hins vegar flöt á því að starfa
10 HEIMSMYND