Heimsmynd - 01.03.1990, Page 11
saman og skapi fjárhagslegar forsendur
fyrir einni myndugri stöð í einkaeign ætti
samkeppni tveggja stöðva að geta tryggt
íslendingum gott íslenskt sjónvarp, sem
sé menningu þjóðarinnar lyftistöng, en
ekki bara boðveita fyrir ódýrt, erlent af-
þreyingarefni. Samkeppni þriggja geti
ekki orðið um annað en lágkúruna.
Annað mál er svo það, hvort menningin
sé það sem þessir menn hafa helst að
leiðarljósi.
Pað er heldur engan veginn víst að
sjónvarpsstöð, sem nær eingöngu ætlaði
að að starfa sem afþreyingarstöð með er-
lendum kvikmyndum og léttu efni sem
uppistöðu, gæti lifað af samkeppnina við
erlent gervihnattasjónvarp. Tugir þús-
unda íslendinga ná nú þegar slíkum
sendingum. Og Radíóbúðin auglýsir
þessa dagana móttökudiska á 70 og 90
þúsund í mónó og stereo, sem nú þegar
geti náð fimmtán stöðvum en sextán
bætist við fyrir áramót. Með sjálfvirkni-
búnaði fyrir 35 til 40 þúsund krónur til
viðbótar megi svo ná til miklu fleiri
gervihnatta. Það sé rangt að gervihnatta-
stöðvarnar séu yfirleitt að fara yfir í lok-
aða dagskrá. Það eigi bara við um tvær
stöðvar, Film-net og Sky movies. Þannig
mundi fjögurra íbúða sambýlishús eða
stigagangur geta fengið sér móttak sem
kostaði álíka eða minna en ársáskrift að
Stöðinni á íbúð og afskrifað það á einu
ári. Hvort þessir möguleikar á erlendri
samkeppni verði til að þjappa mönnum
hér saman skal ósagt látið. □
Hœttulegasta vopnið í veski konunnar
er blóðrautt frá Astor