Heimsmynd - 01.03.1990, Page 13
Helga Agústsdóttir
er alveg sannfærð um það að
fólk eigi óta! jarðvistir að
baki. „Alls lags fælni sem
fólk upplifir tengist fyrri lífs-
skeiðum."
Fólk sem hefur áhuga á dulspeki
er ekki endilega gætt dulrænum
hæfileikum og án efa er slíkt fólk
í minnihluta. Helga Agústsdóttir er ein
þeirra sem er í hópi áhugafólks um dul-
ræn málefni eða handan-mál eins og hún
kallar þau sjálf.
Hún er kennari að mennt, rúmlega
fertug, tveggja barna móðir og vinnur
sem textagerðarmaður á auglýsinga-
stofu. Helga er sem stendur að þýða
bókina The Michael Handbook og gefur
Iðunn bókina út.
Þaö er Helga sem hefur skipulagt
heimsóknir dr. José Stevens, prófessors
við Berkley háskóla í Kaliforníu til Is-
lands og er hann væntanlegur í þriðja
sinn hingað nú í mars. Dr. Stevens mun
halda námskeið hér um Michael og kom-
ast færri að en vilja. Tæplega hundrað
manns eru á biðlista að komast í einka-
tíma hjá Dr. Stevens.
„Dr. Stevens kennir sálfræði við Berk-
ley, rekur sjálfstæða sálfræðiþjónustu og
hefur skrifað fjölda bóka. Hann er að
auki bæði sérstæður og skemmtilegur
miðill."
En fyrir hvað stendur þetta Michael?
Með örlitlu brosi útskýrir Helga að
Michael sé sálnafjölskylda, samsett úr
rúmlega 1000 sálum sem löngu eru
komnar yfir móðuna miklu. „Þær hafa
hver um sig lokið öllum jarðvistum sín-
um, lært þær lexíur sem þær ætluðu sér
og hafa nú sem samstæð heild það verk-
efni að kenna okkur sem erum núna að
afla okkur lífsreynslu og þekkingar. Eftir
því sem Michael segir lifum við minnst
fjörutíu sinnum og getum átt allt að fjög-
ur hundruð jarðvistir að baki þegar til-
vist okkar í efnislíkama lýkur. Dr.
Stevens komst í kynni við Michael og
tók ákvörðun um að þróa miðilshæfi-
leika sína. Miðilsstarf hans er fólgið í því
að leyfa kennara að koma í gegnum sig
og nota rödd sína til að koma á framfæri
fræðslu. Hann er sjálfur skyggn.“
Helga komst í kynni við þetta fyrir-
bæri fyrir nokkrum árum. Hún segist alls
ekki líta á þetta sem trú þótt hún sé
nokkuð viss í sinni sök um endurholdg-
anir og sálnagerðir en samkvæmt Micha-
elfræðunum skiptist fólk niður í sjö
sálnagerðir. Einhver benti Helgu á
hvaða sálnagerð hún væri og var það
fyrsta skrefið í þá átt að hún fór að
kynna sér Michaelfræðin. „Aðalsmerki
þessara fræða eru mannkærleikur og um-
burðarlyndi. Fólk er orðið leitt á eilífri
samkeppni og efnishyggju. I auknum
mæli eru margir að leita svara við spurn-
HEIMSMYND 13