Heimsmynd - 01.03.1990, Síða 14
ingunni um tilgang lífsins og Michael er
ein leiðin. Þetta sálnasafn er fræðiafl
sem fræðir þá sem til þess leita í gegnum
miðla. Þessa afls varð vart í Evrópu fyrr
á þessari öld og síðan aftur í Bandaríkj-
unum á áttunda áratugnum þegar nýöld-
in var að ryðja sér til rúms. Fyrir tæpum
þremur árum hitti ég mann sem hafði
komist í kynni við Michael. Fyrir hans
tilstuðlan fékk ég áhuga á að kynna mér
þessi mál. Hann lánaði mér bókina,
Message from Michael eða Skilaboð frá
Michael og þegar ég fór að glugga í hana
hrópaði ég upp yfir mig, loksins, loksins!
En ég er alveg laus við alla dulræna hæfi-
leika sjálf og lífi mínu lífi eins og ég hef
alltaf gert, borða hrátt kjöt, reyki og
drekk áfengi.“
Helga segir að þessi maður hafi lýst
hennar sálnagerð en þær eru alls sjö:
Konungur og stríðsmaður, prestur og
þjónn, sögumaður og hagleiksmaður og
lærdómsmaðurinn. „Maður hlýtur eitt
hlutverk í upphafi sem er innsti kjarni
sálarinnar og fer í gegnum öll þroska-
skeið sálarinnar í efnisheimi og getur
það þýtt hátt á fjórða hundrað jarðvistir,
eftir því hve fólki tekst vel að þroska sig
á hveiju skeiði fyrir sig. Sálin kemur frá
Guði og hefur líf sitt á svonefndu ung-
barnaskeiði og skiptist það í sjö þrep.
Því næst hefst smábarnaskeið, þá unga
skeiðið, þroskaða skeiðið og loks gamla
skeiðið. Hvert skeið skiptist í sjö undir-
flokka á þroskabrautinni, rétt eins og
þroskaþróunin er í hverju jarðlífi. Maður
velur sér einnig markmið, viðhorf og
fleira sem eru liður í að þroska mann,
nokkurs konar grunnpersónueigindir.
Helga hafði samband við dr. José
Stevens fyrir um einu ári. Hún sendi
honum bréf til Kaliforníu og bað hann
að koma til íslands. Eftir því sem dr.
Stevens segir höfða „Michaelfræðin fyrst
og fremst til sálna á þroskaða og gamla
skeiðinu. Dr. Stevens bað mig að senda
sér ljósmynd af mér svo hann gæti beðið
Michael að greina mig. Hann er vöku-
miðill sem þýðir að hann fellur ekki í
trans til að ná sambandi við Michael.
Hann sendi mér bréf og var greiningin á
mér sú sama og komið hafði fram áður.
Margir halda að það sé eitthvað betra að
vera kóngur en þjónn og gömul sál frek-
ar en ung sál. En eigi maður til dæmis
tvö börn segir maður ekki að hið eldra
sé betra en hið yngra. Það er aðeins
komið lengra á þroskabrautinni.“
Það er engum blöðum um það að
fletta að þótt áhangendur Michael segi
að það sé ekki merkilegra að vera ung
sál eða gömul, kóngur eða hagleiksmað-
ur - að flestir vildu greinast sem gamlar
sálir frekar en ungar. Bæði hún og fleiri
sem hafa komist í kynni við Michael
segja að það séu ungu sálirnar sem fram-
kvæmi hlutina, eða séu með öðrum orð-
um drifkraftur efnisheimsins. A móti má
spyrja hvort einmitt þær sálir kunni þá
ekki að hafa fleiri jarðvistir að baki,
meiri reynslu - eins og önnur fræði en
Michael hafa bent á. Samkvæmt Michael
DÆMI UM ÞANKAGANG
NÝALDARINNAR
• Afþví að gömlu aðferðirnar duga
ekki lengur.
• Af því að breytingin frá hinu
gamla til hins nýja leiðir til
þroska.
• Af því við höfum uppgötvað að
þrátt fyrir hindranir getum við
breytt.
• Afþví að trúin á okkur sjálfleiðir
til trúar á œðri mátt.
• Af því að við verðum að finna
aðferðir til að fara betur með
jörðina og íbúa hennar.
• Afþví að skortur og strit eru ekki
mannsœmandi.
• Af því að það er mikilvœgara að
lifa í sátt og samlyndi en við átök.
• Af því að það að hafa rétt fyrír
sér þarf ekki að ráða hugsunar-
hœtti okkar eins og í gegnum ald-
irnar.
• Af því að óttinn hið innra með
okkur hefur skyggt á kærleikann
allt of lengi.
• Af því að það er afl hið innra
með okkur sem verður ekki kceft
öllu lengur.
• Afþví að fólk er að berjast við að
verða frjálst, frá sjálfu sér.
• Af því að ástin er að sigra óttann
hið innra með okkur.
• Af því að við erum það sem við
erum.
DÆMI UM NÝALDARFÓLK
• Fólk sem hefur hugrekki til að
stjórna lífi sínu sjálft.
• Fólk sem hefur visku til að láta
aðra í friði með líf sitt.
• Fólk sem veit að það verður að
vera sátt við sjálft sig áður en það
er sátt við aðra.
• Fólk sem treystir á eigið innsœi
þegar það tekur ákvarðanir.
• Fólk sem setur sjálfu sér há sið-
gœðismörk og byggir á eigin
reynslu.
• Fólk sem hugsar um líkamann,
þroskar hugann og nœrir andann
til að vera heilt og í jafnvœgi.
• Fólk sem notar frjálsan vilja til að
verða eigin gœfu smiðir.
• Fólk sem veit að frelsið kemur
innan frá óháð ytri kringumstœð-
um.
• Fólk sem nýtur leiðsagnar æðri
máttarvalda, sem eru um leið,
hluti af því sjálfu.
• Fólk sem skilur að hið óþekkta er
hluti af Guði sem enn hefur ekki
verið uppgatvaður.
• Fólk sem leitar fullkomnunar
Guðs um leið og það fyrirgefur
sjálfu sér og öðrum fyrir að vera
ekki fullkomið.
• Fólk sem leitast við að lœra af
lífsreynslunni í stað þess að þola
þjáningar lífsins.
er algengt að fólk í stjórnmálum eða þeir
sem sækjast eftir völdum séu sálir á unga
skeiðinu en aðrir hafa bent á að einmitt
slíkar sálir hafa talsverða reynslu á þess-
um sviðum eða meiri reynslu. Þetta kom
til dæmis fram í viðtali við stjörnuspek-
inginn James Braha í febrúarblaði
HEIMSMYNDAR.
Þá segir Helga að skynja megi aldurs-
skeið sálnanna á því viðmóti sem maður-
inn sýnir öðru fólki og einnig megi lesa
hana úr augum fólks. Sjálf bendir hún á
að hroki sé ein sín aðalhindrun en segi
ekkert til um sálaraldur hennar eða eins
og hún útskýrir það: „ímyndum okkur
að ég sé stödd fyrir handan og sé að
kjósa mér næsta fæðingarstað og for-
eldra. Ég þekki minn innsta sálarkjarna
og hef yfirsýn yfir öll mín fyrri líf. Ég
veit að það er ákveðið karma sem ég
þarf að endurgreiða í næsta lífi, borga
það sem ég hef miður gert í fyrri tilvist-
um. Kannski hefur það reynst mér erfitt
að læra mína lexíu og ég hef þurft að
eyða mörgum jarðvistum á einu skeiði.
Ég vel mér foreldra og umhverfi þar sem
ég hef möguleika á að hitta það fólk sem
ég þarf að jafna mitt karma með, kann-
ski launa því á einhvern hátt hafi ég
gengið á hlut þess áður eða öfugt. Áður
en ég fæðist set ég mér fyrir þá lexíu sem
ég þarf að læra í næstu tilvist því ég er
staðráðin í að þroskast og því vel ég allar
þessar grunnpersónueigindir saman.
Takmarkið með þessu öllu er vitneskjan
um það að maðurinn er brot af kærleiks-
ríku alheimsafli, sem við köllum Guð og
lokatakmarkið er altæk ást þar sem ég
veit að næsta manneskja er hluti af mér
sjálfri, við af Guði og náttúrunni allri. Á
unglingsárunum velur maður sér ein-
hverja hindrun sem hefur áhrif á það
hvernig manni tekst að vinna úr þessu
lífsskeiði. Þessi hindrun getur verið
þijóska, græðgi, sjálfsvorkunn eða
hroki.“
Til frekari skýringar segir hún að alls
lags fælni sem fólk upplifi tengist fyrri
lífsskeiðum og einn þáttur þess að vinna
úr þeirri fælni sé vitneskjan um þessi
fyrri líf. Sjálf hefur hún aldrei komist í
það ástand sem sumir aðrir segjast
þekkja að skynja fyrrilífsmyndir í gegn-
um hugleiðslu eða drauma. „Mér hefur
verið sagt ýmislegt en finnst það ekki
skipta máli. Dr. Stevens segir mér að
það sé mjög algengt að fólk vilji vita
hvort það hafi verið þekktir einstakling-
ar í veraldarsögunni. Ein kona spurði
hann til dæmis hvort hún hefði einhvern
tíma verið fræg eða tengd frægu fólki.
Michael á að hafa svarað að hún hafi í
einu sinna fyrri lífa verið móðursystir
Sókratesar. Konunni fannst það ekki
ýkja merkilegt. Flestir vilja hafa verið í
sögufrægum hlutverkum og sýnir það að
þeir skilja ekki alveg út á hvað líf og
þroski gengur.“
Hún segir að áhuginn á Michaelfræð-
unum sé vísbending um það að mikil
gerjun sé í gangi. Fólk sé að leita að ein-
hverri leið út úr efnishyggju. „Michael-
14 HEIMSMYND