Heimsmynd - 01.03.1990, Side 27

Heimsmynd - 01.03.1990, Side 27
HVERNIG LÆKNAR ÁKVEÐA HVER A AÐ OG HVER Á AÐ Á stærstu spítölum landsins þurfa læknar, sjúklingar og aðstandendur þeirra æ oftar að glíma við spurninguna um hvar skuli draga mörk lífs og dauða. Tæknilegar framfarir gera valkostina æ áleitnari, sársaukafyllri og vandmeðfarnari. eftir ÓLAF HANNIBALSSON ODD STEFÁN Læknisfræðilegri þekkingu hefur fleygt fram á síðustu áratugum og þá ekki síður þeirri tækni, sem læknar hafa tekið í þjónustu sína. Þetta leiðir tíl þess að læknar standa æ oftar frammi fyrir spurningunni um hvort lengra líf verði sjúklingnum, ættingjum hans og vinum til yndis eða hvort „lækningin“ leiði til lífs sem verður sjúklingnum án inntaks og tilgangs og samferðamönnum hans kvöl. Atakanlegust eru þau dæmi sem við höfum erlendis frá þar sem sjúklingum er haldið á lífí í vélum og með margvíslegum tækjabúnaði meðvitundarlausum, jafnvel árum saman, í þeirri veiku von, að einhvern tíma geti komið að því að þeir vakni til vitundar og jafnvel enn veikari von um að slíkt kraftaverk leiði til eðlilegrar tilveru það sem eftir er. Dramatískustu ákvarðanirnar eru þær sem teknar eru á skurðstofum slysadeilda, þar sem læknirinn verður að taka ákvörðun á staðnum og stundinni, án þess að þekkja til sjúklingsins og oft án þess að geta ráðfært sig við aðstandendur. En læknar standa frammi fyrir slíkum ákvörðunum líka annars staðar í heilbrigðiskerfinu, þótt ekki sé með jafndramatískum hætti. Þórarinn Arnórsson skurðlæknir, Níls Christian Nílsen svæfingarlæknir og Hannes Petersen aðstoðarlæknir við uppskurð á Landakoti. Af þessu leiðir ný viðhorf og nýtt samband læknis, . sjúklings og aðstandenda. Hér á landi hafa menn löngum borið takmarkalítið traust til sérfræðiþekkingar læknanna og viljað eftirláta þeim allar ákvarðanir. í Bandaríkjunum hafa ágreiningsmál lækna, sjúklinga og aðstandenda þeirra æ oftar orðið mál sem dómstólar hafa verið látnir skera úr. Það hefur ýtt undir að læknar hafí meira samráð við skjólstæðinga sína, jafnvel svo að varpa örlagaríkum ákvörðunum yfir á þeirra herðar. Steinn Jónsson, gjörgæslulæknir á Landakoti, er menntaður í Bandaríkjunum. Hann segir að það samráð sem hann vandist úti í Texas hafi í fyrstu verið tekið óstinnt upp af skylduliði sjúklinga hér; mönnum fannst að læknirinn væri að varpa ábyrgðinni yfir á sig. En skilningur á nauðsyn samráðs af þessu tagi hefur smám saman verið að aukast hér og læknar telja nauðsynlegt að aukin umræða fari fram um þessi viðkvæmu mál. HEIMSMYND fékk að fylgjast með nokkrum læknum Landakots og Landspítalans í starfi og leitaði hjá þeim svara við spurningunni um hvernig ákvörðun væri tekin á þessum tæknivæddu stofnunum um hverjir skuli lifa og hverjir deyja. HEIMSMYND 27

x

Heimsmynd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.