Heimsmynd - 01.03.1990, Page 30
„Grundvallar-
spurningin í þessu
starfi er að við
erum að leitast
við að lækna fólk
fyrir það sjálft, en
ekki fyrir okkur
læknana eða
ættingja
sjúklingsins . .
- Þorsteinn
Svörfuður
Stefánsson
svæfíngarlæknir
Þorsteinn Svörfuður Stefánsson útskrifar hjartasjúkling daginn eftir vel heppnaða aðgerð.
sveitaþorp samanborið við hin stóru ríki.
Við flýjum hins vegar alveg eins undan
því að taka á hinum siðferðilega vanda
og aðrar þjóðir, því að það liggur í tíðar-
andanum alls staðar í okkar hluta heims-
ins að halda dauðahaldi í lífið. En ég
hugsa að hér mundi finnast einhver
læknir með nægilegt bein í nefinu til að
fylgja eftir óskum fólksins, og einstakt
tilfelli yrði þannig leyst í kyrrþey án þess
að skapa nokkurt fordæmi. Þetta er erf-
iðara viðfangs í stórum samfélögum þar
sem allir eru ókunnugir og mikil hræðsla
ríkjandi í læknastéttinni, eins og í
Bandaríkjunum við málssóknir vegna
hvers kyns frávika frá hinni almennu
reglu. En það er nauðsynlegt að fá um
þetta umræðu því að tæknin knýr á um-
byltingu hugarfarsins og breyttra við-
horfa við lífi og dauða. Þetta varðar ekki
bara samband læknis og sjúklings heldur
siðferðisviðhorf alls samfélagsins.
Þorsteinn Svörfuður Stefánsson er 52
ára gamall svæfingarlæknir á gjörgæslu-
deild Landspítalans. Var 12 ár við fram-
haldsnám og störf í Svíþjóð, lengst við
Sahlgrenska spítalann í Gautaborg.
Doktorsritgerð hans fjallaði um svæfing-
ar á öldruðum. Hann er hár, grannur og
hraustlegur og talar rólega og yfirvegað
um starf sitt og erfiðar ákvarðanir því
samfara.
Það er óvenju lítið um að vera þennan
þriðjudagsmorgun þegar okkur ber að
garði. Gjörgæsla Landspítalans hefur yf-
ir ellefu rúmum að ráða og er gjörgæsla
fyrir allar deildir Landspítalans og ríkis-
spítalana, nema fyrirbura og nýbura, og
hjarta- og kransæðasjúkdóma. „Hér er
ryndís Konráðsdóttir starfar að Heiinahlynningu
Krabbameinsfélagsins ásamt þremur öðrum
hjúkrunarfræðingum og tveimur læknum. Frá síð-
astliðnu hausti gekk Rauði krossinn til liðs við þetta starf
og Heimahlynningin er nú starfrækt allan sólarhringinn,
virka daga sem helga. Bryndís segir að starfsliðið sé þegar
orðið of fátt til að anna eftir-
spurn eftir þessari þjónustu
og starfsfólkið leggur á sig
mikla ólaunaða sjálfboða-
vinnu utan venjulegs vinnu-
tíma til að geta fullnægt þörf-
um þeirra sem eftir leita. Til
lengdar er auðvitað ekki hægt
að byggja starfsemi sem þessa
á slíkri óeigingirni og fórn-
fýsi. Höfuðmarkmið þessarar
þjónustu er að styðja þá, sem
eru með langt genginn
krabbameinssjúkdóm, til þess
að vera sem lengst heima, eft-
Bryndís Konráðsdóttir á vakt heimilishlynningar
ir því sem þeir óska og þeirra aðstæður leyfa. Starfið er
byggt á grundvelli hugmyndafræði, sem kallast hospice og
er orðin útbreidd um allan heim. í þeirri hugmyndafræði
er gengið út frá að dauðinn sé eðlileg staðreynd lífsins og
lögð áhersla á að á síðasta tímabili ólæknandi sjúkdóms
séu hvorki gerðar tilraunir til að lengja né stytta líf sjúkl-
ings, þegar von um h'fsgæði og færni einstaklingsins þverr.
Með starfshópi Heimahlynningar vinnur ráðgjafarnefnd,
sem í eru meðal annarra prestur, sálfræðingur, heimspek-
ingur og fleiri sérfræðingar, enda er litið á þarfir sjúklings-
ins í heild. andlegar, líkamlegar, félagslegar og trúarlegar.
„Við virðum rétt hvers einstaklings til sjálfsákvörðunar."
segir Bryndís, „og leggjum
áherslu á að sjúklingur geti
verið þátttakandi í ákvörðun-
um er varða líf hans og dauða
eftir að hafa fengið nægilegar,
hlutlausar og heiðarlegar
upplýsingar. Við leggjum
mikið upp úr að hann geti átt
þess kost að dvelja síðustu
stundirnar á eigin heimili ef
aðstæður leyfa."
Hvert er svo viðhorf sjúkl-
inganna til þessarar þjónustu?
Eygló Viktorsdóttir tekur á
móti okkur í íbúð sinni og
eiginmanns síns við Rauðalæk. há kona og grönn. björt yf-
irlitum og stillileg. Hún segist ekki hafa langa reynslu af
Heimahlynningunni, en þetta sé ómetanleg þjónusta sem
hefði þurft að koma miklu fyrr. Hjá henni uppgötvaðist
krabbameinsæxli í ristli sem var fjarlægt í byrjun desem-
ber. „og gerbreytti líðan minni til hins betra.“ En krabba-
30 HEIMSMYND