Heimsmynd - 01.03.1990, Page 35
CHRISTOPHER BING
A special section
on global affairs prepared for
Heimsmynd
TheWorldPaper
Engir óviniri- engin vopn
Fjörutíu ára kalt stríð hefur
skilið eftir sig margvísleg
bardagaör. Uppbygging
hernaðarmáttar sem virkaði nógu^
ógnvekjandi á hersýningunni á
Rauða torginu hefur leitt af
sér þriðja heims hagkerfi í Sov-
étríkjunum. Á innan við ára-
tug hafa Bandaríkin með
hemaðarfj árhagsáætlun,
sem fer fram úr þjóðar-
framleiðslu flestra landa,
náð að verða skuldsett-
asta þjóð í heimi, meðj
rótgróna hergagnaiðn-T'
aðarsamsteypu sem,
að vissu leyti,
gremst að vera
svipt óvini
sínum.
/'ýM
Með slaknandi spennu austurs og vesturs
munu yfirburðir í áhrifamætti falla til þeirra
hagkerfa sem auðveldlegast snúa frá hernaðar-
framleiðslu til framleiðslu borgaralegs neyslu-
varnings, fylla eldflaugasílóin af korni og
smíða rennilegar fólksbifreiðar til útflutnings í
stað klunnalegra skriðdreka sem sitja iðjulausir
þótt tilbúnir séu í stríðið.
Japan gæti orðið hinn ólíklegi sigurvegari
kalda stríðsins þar sem það hefur sloppið við
ógn Damóklesarsverðsins og getað einbeitt sér
að því að byggja upp efnahagslegan
múrbrjót. Nú getur það jafnvel gert
svolítið betur við sjálft sig í eigin
varnarmálum. Nú, þegar markað-
urinn er að verða vígvöllur 21.
aldarinnar, kannar WorldPaper
vinningshorfur og váboða
við umbreytinguna frá
stríði til friðar.
HEIMSMYND 35