Heimsmynd - 01.03.1990, Side 37
The WorldPaper
ENGIR ÓVINIR - ENGIN VOPN
Perestrojka
veltur á
umbreytingu
Frá byssum í smjör, smám saman
EFTIR alexander pumpiansky
í Moskvu, Sovétríkjunum
Við skyndilegt og óvænt lát Andrei
Sakharoffs í desember 1989, komu mér í
hug þær skörpu beygjur og byltingar-
kenndu breytingar sem lífsferill hans
tók. Faðir vetnissprengjunnar varð
óspillanlegur mannréttindapostuli, hand-
hafi friðarverðlauna Nóbels og framúr-
skarandi baráttumaður fyrir algildu
mannlegu verðmætamati. Hann lýsti upp
leiðina til umbreytingar, sýndi okkur
hvað bæri að gera.
Ævi hans var sannarlega einstök.
Snillingurinn er alltaf holdgervingur al-
gilds sannleika. Boðskapur Andrei Sak-
haroffs var: „Það er bara ein leið út úr
gildrunni. Það er umbreyting - frá stríði
til friðar.“
Áhrifamikil ræða Mikhails Gorbat-
sjevs á allsherjarþingi Sameinuðu þjóð-
anna í desember 1988 er enn í minnum
höfð. Hún boðaði vatnaskil í sambúð
austurs og vesturs, róttæka breytingu frá
árekstrum til sátta. Hann lagði til um-
breytingu sovéska hagkerfisins frá
vopnakapphlaupinu til afvopnunarkapp-
hlaups.
Þetta var kristalljós yfirlýsing um
grundvallarreglu, en hvernig verður
henni umbreytt í veruleika? Sovéski for-
sætisráðherrann Nikolaj Ryzhkoff hefur
lýst því fyrir þinginu hvernig á að hrinda
þessum áformum í framkvæmd. Meira
en 100 verksmiðjur í varnargeiranum á
Alexander Pumpiansky er aðalritstjóri
WorldPaper fyrir Sovétríkin.
að aðhæfa framleiðslu neysluvara á árinu
1990. Ríkisstjórnin mun beita sér fyrir
endurnýjun tækjabúnaðar í öllum grein-
um borgaralegs iðnaðar með aðstoð
hernaðariðnaðarins. Framleiðsluafköstin
eiga að hafa vaxið um 45 prósent 1995,
sagði hann, frá framleiðslustiginu 1989,
meðan hergagnaframleiðslan á að hafa
dregist saman um 20 prósent, og her-
gagnaverksmiðjur eiga að auka fram-
leiðslu borgaralegs varnings um 82 pró-
sent frá núverandi framleiðslustigi.
En þessi ferill getur orðið þunglama-
legur og svifaseinn. Framleiðsla og af-
hending sumra hergagna skreppur raun-
ar saman í samræmi við þær pólitísku
ákvarðanir, sem teknar eru á æðsta
stjórnstigi. En fólkið á verksmiðjugólf-
inu kvartar yfir því að þessir hlutir gangi
of hratt fyrir sig í þeirra verksmiðju, sem
alls ekki er tilbúin til framleiðslu neyslu-
vara.
Hvað á að gera við hergögnin sem
dæmd hafa verið til eyðingar samkvæmt
gagnkvæmum samningum Sovétríkjanna
og Bandaríkjanna um meðal- og lang-
dræg flugskeyti og einhliða sovéskra
ákvarðana um að draga til baka 10 þús-
und skriðdreka og önnur vopn frá Aust-
ur-Evrópuríkjunum? Hagnýting þessara
hertóla, sem mörg eru búin dýrum og
flóknum tækjabúnaði, var ekki fyrirfram
hugsuð út í æsar. Hvers vegna ekki að
fara eftir tillögum sem fram hafa komið,
rífa byssurnar af skriðdrekunum og selja
skrokkana til Vesturlanda sem brotajárn
í stað þess að sprengja þá í loft upp eða
pressa þá í klumpa og grafa. (framhald)
The WorldPaper featum fresh persþedives from around the world on matters ofglobal concem,
appearing monthly in English, Spanish, Chinese or Russian editions in the followingpublications:
ASIA
China & the World Beijing
Economic Information Beijing
Mainichi Daily News Tokyo
Executive HongKong
Korea BusinessWorld Seoul
Business Review Bangkok
The Nation Lahore
Dailv Observer Colombo
Business India Bombay
LATIN AMERICA
The News Mexico City
Actualidad Económica Sanjosé
Gerencia Guatemala City
Estrategia Bogotd
El Diario de Caracas Carncas
Daily Journal Caracas
El Cronista Comercial Buenos Aires
La Epoca Santiago
Debate Lima
Hoy Quito
MIDDLE EAST
Cairo Today Egypt
USSR
New Times Moscow
NORTH ATLANTIC
Heimsmynd Reykjavik
AFRICA
Business Lagos
.o
jStftffeyp
J WORtpTtMUS n
• 'TRIBLNt.MONniAI I T
/ TiimpoMlmiiaí w
President & Editor in Chief
Crocker Snow, Jr.
The WorldPaper / Wrrld Times Inc.
23.0 Wforld Trade Center, Boston MA 02210, USA
Tel: 617-439-5400 Telex: 6817273
Fax: 617-439-5415
Volume XII, Number 3 0 Copyright Wsrid Tlmes
HEIMSMYND 37